Fréttatíminn


Fréttatíminn - 04.07.2014, Blaðsíða 18

Fréttatíminn - 04.07.2014, Blaðsíða 18
É g man ekki eftir mér öðruvísi en prjónandi og ég er bara alltaf með prjónana í höndunum. Ég man reyndar ekki lengur hver það var ná- kvæmlega sem kenndi mér að prjóna en ég kem úr mikilli handavinnufjölskyldu. Allar konurnar prjónuðu og ég hef örugg- lega bara lært af mömmu eða ömmu,“ segir Halla Ben sem er handavinnukenn- ari að mennt. „Ég kenndi handavinnu í Keflavík og þá lagði ég alltaf mikla áherslu á að allir lærðu að prjóna. Ég hef alltaf verið að reyna að fá alla í kringum mig til að prjóna, það mætti halda að ég hefði einhvern hag af því, að ég ætti hlut í Ístex, en svo er ekki,“ segir Halla og hlær. „Ég er alls ekki í neinni í ullar- klíku.“ Nennti ekki að vera heimavinnandi „Þetta ævintýri byrjaði þegar við fjöl- skyldan fluttum hingað fyrir 5 árum. Maðurinn minn kom til að vinna og ég hafði hugsað mér að vera heimavinn- andi húsmóðir. Ég hélt það nú ekki lengi út þar sem mér leiddist svo svakalega, svo ég ákvað að skella mér í skóla,“ segir Halla sem lærði textíl-og menningarmiðl- un við Prosessionshojskolen. „Brautin er ný en hún er sprottin úr mjög rótgrónum skóla sem margar íslenskar konur hafa farið í og lært handavinnu. Ég var svo heppin að fara til Anne Sofie Madsen sem er mjög stórt nafn í tískuheiminum hér. Við náðum strax mjög vel saman svo hún bað mig um að hanna peysu í stíl við línuna hennar. Eftir starfsnámið réð hún mig svo sem verktaka til að hanna aðra peysu sem var sýnd á síðustu tískusýn- ingu. Núna er ég á fullu að prjóna pant- anir sem berast í þá peysu, en ég þarf að klára tíu peysur fyrir fyrsta ágúst og sömuleiðis hanna næstu peysu sem verður á tískuvikunni í haust.“ Ótrúleg tilfinning að sjá sína hönnun á tískupöllunum „Þetta er algjörlega ný upplifun og bara fáránlega skemmtilegt,“ segir Halla um þá nýju stefnu sem prjónaskapurinn hef- ur tekið. „Það er ótrúlegt að sjá peysurn- ar sýnar á „catwalki“ þar sem allt fína og flotta fólkið kemur saman. Fyrsta skiptið sem ég upplifði þetta þá bara leið næst- um yfir mig. Eftir margra mánaða vinnu við að prjóna og rekja upp og svo prjóna aftur, við að laga og betrumbæta, er alveg magnað að sjá afraksturinn á tísku- pöllunum og þar að auki heimsþekkta ljósmyndara vera að mynda mína peysu. Maður verður pínu háður og langar bara til að gera meira af þessu.“ En hvað er svona heillandi við lopann? „Hann er svo hrikalega léttur. Það er svo gott að prjóna úr honum miðað við til dæmis bómullina sem er ekki jafn með- færileg. Svo er ullin bara svo frábær í flík- ur. Hún er hlý, andar og hrindir frá sér vatni og það kemur ekki vond lykt í hana. Íslenski lopinn kemur líka í ótrúlega fal- legum litum og svo er hann ódýr.“ Vill kenna Dönum að vera í íslensku ullinni Halla segir íslenska lopann seljast vel í Danmörku en samt finnist mörgum Dönum hann stinga. „Íslenski lopinn stingur meira en önnur ull því við erum bara með öðruvísi kindur, og hann er með þetta hráa og grófa útlit, hefur þennan aukaþráð í sér. En mitt „mission“ er að kenna Dönum að vera í íslenska lopanum, því hann hættir að stinga eftir smá notkun. Svo ég vil endilega fá fólk til að fara í lopann tvisvar þrisvar og finna hvernig lopinn vex við mann og hættir að stinga.“ Halla er hægt og rólega að nálg- ast takmark sitt því þegar íslensk ull er rædd í Danmörku þá er nafn Höllu Ben mjög oft sett í samhengi við hana. „Ég hef verið mjög dugleg á netinu, bæði með blogg og facebókar-síðu svo tek ég þátt í umræðuvefjum sem tengjast prjónaskap. Ég finn fyrir miklum meðbyr og hef farið í viðtöl og blandast inn í menningartengd verkefni til að kynna íslensku ullina. Við vorum með kynningu á íslensku hand- prjóni og ullinni hér fyrir tveimur árum og það var fullt út úr dyrum svo áhuginn er svo sannarlega til staðar,“ segir Halla sem er orðin hálfgerður sendiherra ís- lensku ullarinnar í Danaveldi. Fáránlegt prjónanörd Í september heldur Halla utan um stóran prjónaviðburð í Menningarhúsi Íslend- inga, Grænlendinga og Færeyinga í Kaupmannahöfn til að kynna íslenska lopann. „Það verða engar unnar vörur til sýnis heldur allt sem tengist prjóna- skapnum sjálfum. Það kemur stór hópur frá Íslandi en enn er pláss fyrir fleiri þátttakendur. Ég veit að þetta á eftir að vera vel heppnað því það er ótrúlegur áhugi fyrir Íslandi hér. Dönum finnst allt svo fallegt frá Íslandi, hvort sem það er fólkið, vörurnar, maturinn eða landið. Það er allavega mín upplifun.“ Halla stefnir á að koma heim eftir Dan- merkurævintýrið en vill þó helst ljúka því verkefni að koma Dönum í íslenska lop- ann fyrst. „Ég er reyndar líka með annað „mission“ hér. Ég er ein af þeim sem er alltaf með prjóna á mér svo fólk hérna fór að spyrja mig út í íslensku peysuna sem Sara Lund í vinsælu sjónvarpsseríunni „Forbrydelsen“, eða „Glæpnum“, var alltaf í. Peysan var alltaf kölluð „Islende- ren“ og það fór óstjórnlega í taugarnar á mér því hún er alls ekki íslensk heldur færeysk. Allar þessar munstruðu peysur sem eru færeyskar að uppruna eru alltaf kallaðar „Islenderen“. Þetta gerist vegna þess að upp úr 1800 fara þessar fær- eysku peysur að koma til Danmerkur, en í gegnum Ísland. Ég skrifaði smá pistil um þetta sem ferðaðist víða á netinu svo núna þegar íslenska peysan er nefnd er alltaf vitnað í þessa grein. Svo þetta „mis- sion“ mitt er að takast. Ég er náttúrlega bara alveg fáránlegt prjónanörd.“ Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is Vill kenna Dönum að klæðast íslensku ullinni Halla Ben hefur alla tíð verið með eitthvað á prjónunum og segist vera alveg fáránlegt prjónanörd. Hún býr nú í Kaupmannahöfn þar sem hún prjónar fyrir tískupallana milli þess sem hún fræðir Dani um íslensku ullina sem hún segir alls ekki stinga. „Drift Jumper“ peysan er líka hönnuð fyrir Anne Sofie Madsen. Halla segir það vera ótrúlega upplifun að sjá heimsfræga ljósmyndara mynda verkin sín á tískupöll- unum. Hér klæðast Halla og elsta dóttir hennar „Rótinni“, en það er kragi úr íslenskri ull og sjálflýsandi nælonþræði sem gerir það að verkum að kraginn glóir í myrkri. Kraginn fæst í Kraum. Þetta er fyrsta peysan sem Halla hannaði í samstarfi við Anne Sofie Madsen. Halla leggur mikla áherslu á að vinna alltaf með íslenskan lopa. Fjölbreytt úrval aF hurðum, Framhliðum, klæðningum og einingum, geFa þér endalausa möguleika á að setja saman þitt eigið rými. 25% aFslát tur aF öllu m eldhúsinn réttingum út júlÍ aFsláttur 25 Sjóðheitt Sumar tilboð Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • Opið: Mán. - fim. kl. 09-18 / Fös. 9-17 - Lokað á laugardögum í sumar friform.is 18 viðtal Helgin 4.-6. júlí 2014
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.