Fréttatíminn


Fréttatíminn - 04.07.2014, Page 29

Fréttatíminn - 04.07.2014, Page 29
Þótt veikindin hefðu sett nokkur strik í reikninginn í náminu, fór það ekki svo að Anna Christina lyki ekki stúdentsprófi, og það af tveimur brautum, sálfræðibraut og félagsfræðibraut. Menntun frá Tækniskólanum og HR Eftir endurhæfingu á líkama og sál í Bretlandi þar sem móðir hennar bjó, fór Anna í Tækniskólann að læra tækniteiknun og lauk því námi með hæstu einkunn. „Kennarar hvöttu mig til að fara í Tækniháskólann og gera eitthvað meira úr þessu svo ég hlýddi því og fór að læra byggingariðnfræði. Þeg- ar Tækniháskólinn og Háskólinn í Reykjavík sameinuðust ákvað ég að taka BS í viðskiptafræði þaðan. Við vorum tvær sem tókum tungu- málatengd próf svo ég tók ensku próf frá Cambridge háskólanum. Við fórum svo í áfanga sem hét Fríverslunarsamningar og Kína og Aðalsteinn Leifsson kennari sagði: Eftir fimmtíu ár þegar við kveikjum á sjónvarpinu hlustum við ekki á hvað Bandaríkjamenn segja, við hlustum á hvað Kínverjar segja.“ Og þá fór ég til Kína. Meðan ég var þar, hringdi vinkona mömmu sem starfar á skrifstofunni hjá HR og sagði að þeir væru að byrja með nám í alþjóðaviðskiptum með áherslu á Kína. Það var eiginlega ástæðan fyrir að ég dreif mig heim, því ég hefði alveg getað hugsað mér að vera áfram í Kína. Þannig að ég lauk meistaranámi í alþjóða- viðskiptum og kínversku árið 2009. Mér finnst ég hafa verið rosalega heppin hvað varðar vinnu. Núna er ég að vinna við það sem mér finnst mjög skemmtilegt og mjög krefjandi, nýti mér hluta úr minni menntun þar sem ég lagði áherslu á „cultural differences“ sem ég hafði rannsakað bæði í BS námi og meistaranámi. Dýrmætasta gjöf lífsins Börkur er að sjálfsögðu dýrmæt- asta gjöf sem ég hef fengið í lífinu Ég hugsa stundum að þar sem ég átti ekki að geta eignast barn hafi Guð ákveðið að úr því að mitt líf væri svolítið vesen, skyldi hann láta mig fá eitt „prima“ eintak af barni sem yrði bara til gleði. Við erum of- boðslega náin og heimilið okkar er rosalega rólegt. Við plönum aldrei neitt, gerum bara það sem okkur dettur í hug þá stundina. Hann er á kafi í fótbolta í Val og er algjör meistari. Hann hefur átt sömu vin- ina ár eftir ár eftir ár en sem dæmi um vináttu milli okkar, þá fórum við tvö á Justin Timberlake tón- kleika í London, það var jólagjöfin okkar til hvors annars. Við eigum svo gott skap saman, við Börkur, rífumst aldrei, hann felur ekkert fyrir vinum sínum þegar hann er að kyssa og knúsa mömmu sína og ég er ekkert að tuða ef mér finnst hann mega taka betur til í her- berginu sínu. Hann spyr á hverju kvöldi hvort hann geti gert eitt- hvað fyrir mig næsta dag. Ég held að fáir sautján ára strákar séu jafn hjálplegir á heimili og miklir vinir mömmu sinnar og hann Börkur – þó algjörlega án þess að það bitni á félagslífi hans. Draumur minn er að sýna honum Ástralíu því það er svo stór hluti af lífi mínu og svo langar okkur mikið að fara aftur í Dali, þorpið okkar í Kína.“ Anna Christina setti eitt skilyrði fyrir þessu viðtali: „Það má ekki vera væmið, ekkert væl og það þarf að geta hjálpað þeim sem standa í sömu sporum og ég stóð.“ „Við þrjú trúðum á baráttuna, lífið, að njóta þess til fulls og miðla öðrum af okkar reynslu og hjálpa öðrum í sömu sporum.“ (Úr minn- ingargrein um Fróða Finnsson f. 1975, d. 1994). Anna Kristine ritstjorn@frettatiminn.is Nokkrum dögum áður en Börkur, sonur Önnu, kom ætlaði breskur vinur hennar sem talar kínversku að fara með henni að leita að íbúð. „Ég beið ég utandyra eftir honum og sem mér varð litið niður á götuna sá ég hundsgrey sem ekið hafði ver- ið á. Vinur minn skildi vel að ég vildi fara með hundinn á dýraspítala en hann á þrjá hunda og gat ekki tekið hræið í sinn bíl því útihundar geta borið með sér alls kyns sýkingar. Við skófluðum því greyinu upp á vespuna mína og ég elti vin minn í 40 mínútur til dýralæknis. Þar var hann í tíu daga og við Börkur fórum þá að sækja hundinn. Þegar hundurinn sá mig, kom hann fljúgandi í fangið á mér og það var engu líkara en ég hefði átt hann árum saman. Börkur varð mjög hrifinn af hundinum, svo við fórum með hann í hunda-spa og út kom nýr hundur. Hann var hálfblindur og heyrnarlaus á öðru eyra svo við ákváðum að eiga hana sjálf og gáfum henni nafnið Skutla. Þegar við höfðum átt hana í mánuð fórum við með hana í bólusetningu. Læknirinn skoðaði tíkina mjög vel og sagði svo að hann gæti ekki bólu- sett hana. Af hverju ekki? Babies! Þá hafði tíkin verið orðin hvolpafull þegar keyrt var á hana. Berki fannst frábært ef við gæt- um fengið marga hunda. Við bjugg- um á 8. hæð í blokk og þegar leið að goti var Skutla orðin svo feit að við þurftum að halda á henni í lyftunni tvisvar, þrisvar á dag svo hún gæti farið út að pissa. Við útbjuggum fyr- ir hana lítið herbergi með teppum og handklæðum svo hún gæti verið í friði þegar kom að gotinu. Skutla skoðaði sig mjög vel um í herberg- inu og kúrði niður í teppið. Eitt kvöldið vorum við að horfa á sjón- varpið þegar Skutla kom og mændi á okkur biðjandi augum. Ég sagði henni að hún gæti ekki komið í sóf- ann, en hún bara ýlfraði og ýlfraði svo ég tók hana upp. Þá kom bara púff – hvolpur. Sá fyrsti af tólf! Við komum þeim á legg og fórum daglega með tólf hvolpa og Skutlu á veitingastað sem var rekinn á neðstu hæð hússins, keyptum við fimm skammta af hrísgrjónum og eggjum og settum dýramat út í. Það fréttist af okkur, sérstaklega þar sem svartir hundar eru taldir boða ógæfu í Kína og blaðamaður mætti og tók viðtal og birti mynd af Berki með Skutlu.“ Sagan af Skutlu ÚTBÚÐU UPPÁHALDS RÉTTINN ÞINN TAKTU girnile ga INSTAG RAM M YND af rét tinum MERKtu MYNDINA#GOTTiMATINN ogdeildu á FACEBOOK 1. 2. 3. MEÐ HRÁEFNI FRÁ GOTT Í MATINN! Sendu okkur þína girnilegu matarmynd og þú Gætir unnið weber grill! eða glæsilega gjafakörfu Taktu þátt í matarmyndaleik Gott í matinn. Útbúðu þinn uppáhaldsrétt úr ljúffengu hráefni frá Gott í matinn, taktu girnilega Instagram mynd af réttinum og deildu henni með okkur á Facebook. Girnilegasta matarmyndin verður valin úr pottinum og sigurvegarinn hlýtur að launum glæsilegt Weber grill. Sendu okkur þína girnilegu matarmynd H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA viðtal 29 Helgin 4.-6. júlí 2014

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.