Fréttatíminn - 04.07.2014, Page 38
38 ferðalög Helgin 4.-6. júlí 2014
Samkeppni Flugleitarvélar og heimaSíður
Þ að er vel annan tug flug-félaga sem stunda milli-landaflug frá Keflavík yfir
sumarmánuðina. Samkeppnin er
þar af leiðandi töluverð um þessar
mundir og á sumum flugleiðum eru
þrjú flugfélög um hituna. WOW
air hefur reglulega boðið farmiða
á undir tíu þúsund krónur síðustu
vikur og framboð á ódýru flugi hjá
erlendum flugfélögunum er einnig
þó nokkuð.
Hjálp í leitarvélum
Það eru sennilega ekki margir
íslenskir ferðalangar með það á
hreinu hvaða erlendu félög fljúga
hingað, hvaðan þau koma og hvaða
vikudaga þau nota fyrir Íslandsflug.
Ein leið til að kanna framboðið
er að láta flugleitarvélar eins og
Dohop, Momondo og Skyscanner
finna fyrir sig hentugt flug frá
Keflavík til ákveðinnar borgar.
Fargjöldin sem þessar síður finna
á beinu flugi er oft mjög svipað og
vísa þær í mörgum tilfellum notand-
anum beint á heimasíðu viðkom-
andi flugfélags. Farþeginn bókar
þar og er verðið þá oft aðeins hærra
en það sem leitarvélin fann því hún
tekur ekki alltaf tillit til bókunar-
og kreditkortagjalda viðkomandi
flugfélags eða ferðaskrifstofu.
Borgar sig að kíkja á heima-
síður flugfélaga
Leitarvélarnar eru því fínn kostur
til að komast að því hverjir fljúga
til borgarinnar sem ferðinni er
heitið. Sumar sýna hvernig verðin
á flugleiðinni breytast á milli daga
og þannig er súlurit dönsku leitar-
vélarinnar Momondo.com ákaflega
gagnlegt fyrir þá sem eru sveigjan-
legir. Þeir geta þá smellt á þær súl-
ur sem eru lægstar og sett saman
ódýra ferð.
Á heimasíðum flugfélaga eins
og easyJet, Flybe, German Wings,
Norwegian og Vueling má líka fá
yfirlit yfir fargjöld hvers mánaðar
og þannig verður auðvelt að fá
heildarsýn yfir þá kosti sem í boði
eru. Með því að opna þessi dagatöl
er oft hægt að finna dagsetningar
sem eru miklu ódýrari en aðrar.
Þetta á til dæmis reglulega við um
flug Norwegian héðan til Oslóar
og á heimasíðu easyJet er hægt
að kalla upp yfirlit yfir ódýrustu
fargjöld ársins. Galli við nokkrar
af þessum heimasíðum er sá að
það kemur ekki skýrt fram hvert
er flogið beint og hvenær þarf að
millilenda.
Þó mörg erlendu flugfélaganna
stundi aðeins Íslandsflug fram á
haust þá eykst framboðið á veturna
einnig jafnt og þétt. Sú tíð er því
liðin að nóg sé að gera verðsaman-
burð á íslensku flugfélögunum áður
en miðinn út er bókaður. Í vetur
munu til að mynda alla vega sex
flugfélög halda uppi millilandaflugi
héðan og á flestum flugleiðum til
Evrópu munu tvö félög keppa um
farþegana.
Leitin að ódýrum flugmiðum
Ennþá er hægt að finna farmiða héðan til útlanda í sumar fyrir rúmar sjö þúsund krónur og
framboð á miðum undir tuttugu þúsund krónum er töluvert. Það er þó ekki alltaf svo auðvelt
að finna þessi ódýru sæti.
Í sumar bjóða Airberlin, German Wings og WOW air upp á reglulegar ferðir til Berlínar. Ljósmynd/Visit Berlin
Í vetur fór um fjórða hver vél sem tók á
loft í Keflavík áleiðis til Lundúna. Það er
því úr mörgum ferðum þangað að velja
allt árið um kring. Ljósmynd/London on View
Kristján
Sigurjónsson
kristjan@turisti.is
www.lindesign.is
Lín Design Laugavegi 176 Glerártorgi Sími 533 2220 lindesign.is
Einstakar
brúðargjar
Brúðargjafatilboð
SÉRFRÆÐINGAR Í RAFGEYMUM
Bíldshöfða 12 · 110 RVK · 577 1515 · www.skorri.is
Mesta úrval landsins af rafgeymum í allar gerðir farartækja
mælum • skiptum um • traust og fagleg þjónusta • 30 ára reynsla
MEÐ
ALLIR ÚT AÐ HJÓLA
2 0 1 4
00000
w w w . v e i d i k o r t i d . i s
Eitt kort
36 vötn
6.900 kr
FLEIRI VÖTN ÓBREYTT VERÐ
2 0 1 4