Fréttatíminn


Fréttatíminn - 04.07.2014, Qupperneq 38

Fréttatíminn - 04.07.2014, Qupperneq 38
38 ferðalög Helgin 4.-6. júlí 2014  Samkeppni Flugleitarvélar og heimaSíður Þ að er vel annan tug flug-félaga sem stunda milli-landaflug frá Keflavík yfir sumarmánuðina. Samkeppnin er þar af leiðandi töluverð um þessar mundir og á sumum flugleiðum eru þrjú flugfélög um hituna. WOW air hefur reglulega boðið farmiða á undir tíu þúsund krónur síðustu vikur og framboð á ódýru flugi hjá erlendum flugfélögunum er einnig þó nokkuð. Hjálp í leitarvélum Það eru sennilega ekki margir íslenskir ferðalangar með það á hreinu hvaða erlendu félög fljúga hingað, hvaðan þau koma og hvaða vikudaga þau nota fyrir Íslandsflug. Ein leið til að kanna framboðið er að láta flugleitarvélar eins og Dohop, Momondo og Skyscanner finna fyrir sig hentugt flug frá Keflavík til ákveðinnar borgar. Fargjöldin sem þessar síður finna á beinu flugi er oft mjög svipað og vísa þær í mörgum tilfellum notand- anum beint á heimasíðu viðkom- andi flugfélags. Farþeginn bókar þar og er verðið þá oft aðeins hærra en það sem leitarvélin fann því hún tekur ekki alltaf tillit til bókunar- og kreditkortagjalda viðkomandi flugfélags eða ferðaskrifstofu. Borgar sig að kíkja á heima- síður flugfélaga Leitarvélarnar eru því fínn kostur til að komast að því hverjir fljúga til borgarinnar sem ferðinni er heitið. Sumar sýna hvernig verðin á flugleiðinni breytast á milli daga og þannig er súlurit dönsku leitar- vélarinnar Momondo.com ákaflega gagnlegt fyrir þá sem eru sveigjan- legir. Þeir geta þá smellt á þær súl- ur sem eru lægstar og sett saman ódýra ferð. Á heimasíðum flugfélaga eins og easyJet, Flybe, German Wings, Norwegian og Vueling má líka fá yfirlit yfir fargjöld hvers mánaðar og þannig verður auðvelt að fá heildarsýn yfir þá kosti sem í boði eru. Með því að opna þessi dagatöl er oft hægt að finna dagsetningar sem eru miklu ódýrari en aðrar. Þetta á til dæmis reglulega við um flug Norwegian héðan til Oslóar og á heimasíðu easyJet er hægt að kalla upp yfirlit yfir ódýrustu fargjöld ársins. Galli við nokkrar af þessum heimasíðum er sá að það kemur ekki skýrt fram hvert er flogið beint og hvenær þarf að millilenda. Þó mörg erlendu flugfélaganna stundi aðeins Íslandsflug fram á haust þá eykst framboðið á veturna einnig jafnt og þétt. Sú tíð er því liðin að nóg sé að gera verðsaman- burð á íslensku flugfélögunum áður en miðinn út er bókaður. Í vetur munu til að mynda alla vega sex flugfélög halda uppi millilandaflugi héðan og á flestum flugleiðum til Evrópu munu tvö félög keppa um farþegana. Leitin að ódýrum flugmiðum Ennþá er hægt að finna farmiða héðan til útlanda í sumar fyrir rúmar sjö þúsund krónur og framboð á miðum undir tuttugu þúsund krónum er töluvert. Það er þó ekki alltaf svo auðvelt að finna þessi ódýru sæti. Í sumar bjóða Airberlin, German Wings og WOW air upp á reglulegar ferðir til Berlínar. Ljósmynd/Visit Berlin Í vetur fór um fjórða hver vél sem tók á loft í Keflavík áleiðis til Lundúna. Það er því úr mörgum ferðum þangað að velja allt árið um kring. Ljósmynd/London on View Kristján Sigurjónsson kristjan@turisti.is www.lindesign.is Lín Design Laugavegi 176 Glerártorgi Sími 533 2220 lindesign.is Einstakar brúðargjar Brúðargjafatilboð SÉRFRÆÐINGAR Í RAFGEYMUM Bíldshöfða 12 · 110 RVK · 577 1515 · www.skorri.is Mesta úrval landsins af rafgeymum í allar gerðir farartækja mælum • skiptum um • traust og fagleg þjónusta • 30 ára reynsla MEÐ ALLIR ÚT AÐ HJÓLA 2 0 1 4 00000 w w w . v e i d i k o r t i d . i s Eitt kort 36 vötn 6.900 kr FLEIRI VÖTN ÓBREYTT VERÐ 2 0 1 4
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.