Fréttatíminn - 04.07.2014, Qupperneq 42
42 heilsa Helgin 4.-6. júlí 2014
Heilsa Útivera í góðra vina Hópi
utilif. isGLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND
Á
R
N
A
S
Y
N
IR
Meindl ohio
Léttir og þægilegir til
notkunar á göngustígum.
Verð: 42.990 kr.
Meindl Kansas GTX
þægilegir og traustir
skór fyrir flestar leiðir.
Verð: 42.990 kr.
Meindl Island GTX
Hálfstífir og öflugir.
hentugir í lengri ferðir.
Tnf verbara lite mid gtx
Sérlega léttir og liprir
fyrir léttara land.
Verð: 35.990 kr.
Betra útsýni
í betri gönguskóm
Verð: 59.990 kr.
Frisbígolf feiki vinsælt
Frisbígolf er eins og golf, nema það er spilað með frisbídiskum. Ekkert kostar að spila frisbígolf
og það hentar bæði ungum sem öldnum, byrjendum og lengra komnum. Egill Einarsson á sæti í
eina folf-liðinu á Íslandi, Team Liger Woods.
Á myndinni eru liðsmenn Team Liger Woods, ásamt nokkrum öðrum folf-spilurum. Liðið skipa þeir Steindi Jr. grínisti, Diddi Fel
tónlistarmaður, Haukur Harðarson íþróttafréttamaður, Örn Tönsberg tónlistarmaður og Egill Einarsson.
F risbígolf, eða folf, nýtur æ meiri vin-sælda og er völlunum hér á landi allt-af að fjölga. Egill Einarsson er einn
þeirra fjölmörgu sem stunda íþróttina og
segir hann folfið fyrst og fremst skemmti-
lega útiveru í góðra vina hópi. „Folfið er
góður göngutúr eins og golf nema að hægt
er að taka börnin með, jafnvel í barnavagni.
Svo kostar folfið ekkert og það þarf ekki að
panta tíma.“ Egill á sæti í eina folf-liðinu á
Íslandi, sem vitað er um, Team Liger Wo-
ods. Folfið er einnig vinsælt víða í Evrópu
og í Bandaríkjunum. Þegar Egill er á leið-
inni í folf á Klambratúni er hann oft stopp-
aður af fólki sem vill forvitnast um folfið
og hvar hægt sé að kaupa góða diska. „Svo
þegar maður er að spila á Klambratúni ger-
ist það oft að fólk stoppar og fylgist með.“
Folf er spilað líkt og hefðbundið golf
nema með frisbídiskum. Takmarkið er
að kasta disknum í körfuna í sem fæstum
skotum.
Annað skot er tekið þar sem diskur lend-
ir eftir fyrsta skot og sá á fyrst að gera sem
lengst er frá körfu. Fyrir byrjendur í folfi
þarf ekki annað en einn frisbídisk og spil-
aði Egill þannig fyrsta árið. Lengra komnir
nota fleiri tegundir af diskum. „Dræver-
ar“ eru þá notaðir fyrir lengstu skotin og
geta vanir kastarar kastað þeim 150 til 200
metra. Miðlungsdiskar eru notaðir í milli-
skotin þar sem nákvæmnin skiptir meira
máli en lengdin. Þeir henta líka vel fyrir
byrjendur og þykja tilvaldir ef spilari á að-
eins einn disk. „Pútterarnir“ eru svo hæg-
ustu diskarnir en þeir nákvæmustu. Með
þeim er hægt að hitta körfuna af stuttu
færi með mikilli nákvæmi. Að sögn Egils
er hægt að fá góðan útbúnað fyrir lítinn
pening.
Varðandi tækni í köstunum segir Egill að
hver og einn finni sinn stíl. „Ég fékk smá
kennslu þegar ég byrjaði og kíkti svo á You-
Tube til að læra meira.“ Frisbígolf er kennt
á Klambratúni og er hægt að fá nánari upp-
lýsingar um kennsluna í Frisbígolf búðinni
við Reykjavíkurveg 60 í Hafnarfirði. Upp-
lýsingar um íþróttina og velli víðs vegar um
landið má finna á síðunum www.folf.is og
www.frisbigolf.is.
Dagný Hulda Erlendsdóttir
dagnyhulda@frettatiminn.is
Ég fékk smá
kennslu
þegar ég
byrjaði og
kíkti svo á
YouTube
til að læra
meira.
Egill Einarsson, frisbígolf-spilari segir íþróttina
fyrst og fremst skemmtilega útiveru í góðra
vina hópi. „Folfið er góður göngutúr eins og
golf nema að hægt er að taka börnin með, jafn-
vel í barnavagni. Svo kostar folfið ekkert og það
þarf ekki að panta tíma,“ segir hann.
Spínat, vínber og engifer heilsudrykkur
Á síðunni Heilsu-
drykkir Hildar eru
margar skemmti-
legar uppskriftir.
Þessi er frískandi
og stútfullur af
góðri næringu.
2 lúkur af spínati
1/3-1/2 gúrka
1 dl frosin vínber,
ca. 10 stykki
1 dl engifersafi
frá Ölgerðinni
lime safi úr ca.
1/2 lime
1 tsk maca (val)
Öllu blandað saman
og hrært þar til
mjúkt og fallegt.
Af heilsudrykkir.is
VARSTU
BÚIN AÐ
FRÉTTA
AÐ Á
FISKISLÓÐ
39 ER ...
landsins m
esta úrval b
óka,
á Forlagsve
rði?
stærsta kor
tadeild land
sins?
www.forlagid.is– fyrst og fre
mst
– fyrst og fre
mst
ódýr!
1098kr.kg
Grísakótilettur, fros
nar
í kassa, ca. 5 k
g
v
5
kg
VAKANDI!VERTU
blattafram.is VERNDARI BARNA Í 10 ÁR
93% þolenda þekkja þann
sem beitir þá kynferðislegu
ofbeldi!