Fréttatíminn


Fréttatíminn - 12.12.2014, Page 3

Fréttatíminn - 12.12.2014, Page 3
Komdu inn úr kuldanum www.n1.is facebook.com/enneinn Hluti af öruggri vetrarumferð  Samgöngur Eftir áramót gEngur Strætó út á KEflavíKurflugvöll Strætó út á Keflavíkurflugvöll f rá og með 4. janúar gengur Strætó milli Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar og mið- borgar Reykjavíkur. „Leið 55 mun keyra níu ferðir á dag milli mið- borgar Reykjavíkur og Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar frá byrjun janú- ar. Vagninn stoppar meðal annars við Kringluna, Fjörð í Hafnarfirði og Keili í Reykjanesbæ á leiðinni. Ferðalagið tekur eina klukkustund og sautján mínútur samkvæmt áætlun Strætó,“ segir á ferðavefnum Túristi.is. Strætómiði milli höfuðborgar- innar og Keflavíkurflugvallar mun kosta 1.400 krónur og fá farþegar skiptimiða til að nota í aðra vagna, til dæmis við komuna til Reykja- víkur. Til samanburðar kostar farið með Airport Express 1.900 krónur hvor leið og 1.950 krónur með Flug- rútunni. Þessar nýju almennings- samgöngur eru á samstarfsverkefni Sambands sveitarfélaga á Suður- nesjum og Strætó. Túristi greinir frá því að fyrsti vagn á morgnana leggi í hann frá Umferðarmiðstöðinni klukkan 6.23 og rennur í hlað við flugstöðina klukkan 7.40. Íbúar höfuðborgar- svæðisins á leið í morgunflug með íslensku flugfélögunum geta því ekki nýtt sér þessar samgöngur en áætlunin passar vel fyrir morgun- flug erlendu flugfélaganna auk ann- arra brottfara síðar um daginn. Erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is Leið 55 hjá Strætó mun aka 9 ferðir á dag milli miðborgar Reykjavíkur og Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar.  tónliSt gEiSladiSKa Sala minnKar milli ára Sala á geisladiskum dregst sífellt saman. Æ fleiri notast við stafrænar veitur á borð við Spotify. Átta af tíu mest seldu geisladiskum landsins í síðustu viku voru safnplötur. Minnkandi sala er áhyggjuefni hvað varðar fjármögnun á nýrri útgáfu. a uðvitað er þetta áhyggjuefni en um leið er þetta eðlilegt því neyslan er að færast yfir á stafrænu miðlana,“ segir Eiður Arnarsson, framkvæmdastjóri Fé- lags hljómplötuframleiðenda. Sala á tónlist hefur dregist saman um fimmtán prósent frá því í fyrra. Þetta er samkvæmt tölum Félags hljómplötuframleiðenda frá ársbyrj- un og út síðustu viku. Þær eru birtar vikulega í Tónlistanum. „Salan er 85 prósent af því sem hún var í fyrra. Við erum bjartsýn að hún verði á þessu bili út árið. Það eru stórir dag- ar fram undan,“ segir Eiður. Hann bendir á að sala á tónlist breytist nú hratt. Auk stafrænu neyslunnar hafi plötusala færst inn á tónleika listamanna. Sú sala komi ekki fram á Tónlistanum. „Það er ótrúlega drjúg sala á „giggunum“. En svo hefur stafræn neysla farið gríðarlega mikið upp. Þetta er því Plötusala dregst saman um fimmtán prósent milli ára líka ákveðin tilfærsla, ekki bara minnkun.“ Vandamál tónlistarmanna snýr hins vegar að því að stafræna neysl- an skilar ekki sömu tekjum og sala á geisladiskum og vínylplötum. „Það er einfaldur útreikningur að fyrir eina plötu sem hætt er við að kaupa, að til að hún skili sömu tekjum á Spo- tify þá þarf einstaklingur að spila hana hundrað sinnum. Þetta er auð- vitað mikið áhyggjuefni hvað varðar fjármögnun á nýrri útgáfu.“ Aðspurður hver sé mest selda plata ársins á Íslandi kveðst Eiður ekki hafa nákvæmar tölur á reiðum hönd- um. „En ég myndi leyfa mér að giska á að enn sé komið er sé það SG hljóm- plötur, safnplata sem kom út snemma á árinu. Reyndar er það mjög athyglis- vert að í síðustu viku voru sjö eða átta ferils- og safnplötur á topp tíu. Í sömu viku í fyrra var ein slík á topp tíu.“ Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is 16 þúsund einstaklingar með Spotify-áskrift Eiður Arnarsson segir að mikil aukning hafi verið í stafrænni sölu á tónlist milli ára. Í fyrra var hún 10-12 prósent af heildarveltu í tónlistarsölu en í ár er hún um 30 prósent af veltunni. „Það eru 16 þúsund Íslendingar rétt tæplega sem greiða áskrift að Spotify. Það er rétt um fimm prósent landsmanna og Spotify opnaði í apríl í fyrra hér.“ Velta tónlistarmarkaðarins n Vínylplötur n Stafrænir miðlar n Geisladiskar 10% 30% 60% *Fyrstu sex mánuðir ársins skv. tölum frá Félagi hljómplötuframleiðenda. Strákarnir í Skálmöld hafa selt 1560 eintök af nýju plötunni sinni, Með vættum, samkvæmt Tónlistanum. Hún er í öðru sæti yfir mest seldu plötur ársins. Carbon Recycling byggir í Þýskalandi Íslenska hátæknifyrirtækið Car- bon Recycling International (CRI) mun reisa verksmiðju í Þýskalandi byggða á tækni CRI til framleiðslu á vistvænu eldsneyti en CRI rekur þegar eldsneytisverksmiðju í Svartsengi. Verksmiðjan í Þýska- landi mun framleiða metanól úr rafmagni og koltvísýringi úr útblæstri kolaorkuvers í Ru- hrhéraðinu. Verkefnið sem áætlað er að kosti 11 milljónir evra, um 1.700 milljónir króna, hefur hlotið styrk úr Horizon 2020 rannsókn- aráætlun Evrópusambandsins. Í tilkynningu frá CRI segir að með þessu stígi fyrirtækið stórt skref á alþjóðamarkaði við inn- leiðingu tækni til framleiðslu á vistvænu eldsneyti úr rafmagni, sem þróuð var hér á landi. Meðal samstarfsaðila CRI í verkefninu er Mitsubishi Hitachi Power Systems Europe, evrópskir háskólar og rannsóknarstofnanir. Lögreglumaður dæmdur Hæstiréttur hefur þyngt refsingu yfir lögreglumanni sem ákærður var fyrir líkamsárás við handtöku konu á Laugavegi í fyrra. Maðurinn var dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi og til að greiða konunni 430 þúsund krónur í bætur, auk 300 þúsund króna sektar. Myndband af handtökunni fór sem eldur í sinu um netið. Endurnýjun á stórum raftækjum og húsgögnum Veruleg aukning varð í nóvember á í sölu á stórum raftækjum og húsgögnum, og sala á snjallsímum jókst um 168,8% á föstu verðlagi í nóvember miðað við sama mánuð í fyrra sem er fyrst of fremst vegna þess að hafin var sala á nýrri útgáfu snjall- síma í byrjun mánaðarins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Rannsóknarsetri verslunarinnar. Þar segir að sala húsgagna hafi aukist um 26,6%. Þar af jókst sala á rúmum um 45,7%. Velta í sölu á stórum raftækjum eins og þvottavélum og ísskápum jókst um 30,4% og sala á minni raftækjum, sjónvörpum og hljómflutningstækjum um 22,1% Aukin dreifing Fréttatímans í dag Auk hefðbundinnar dreifingar Frétta- tímans í lúgur á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri er blaðinu í dag dreift í allar lúgur á Selfossi og Reykjanesbæ, auk þess sem blaðið er í hefðbundinni dreifingu um allt land í matvöruverslunum og á stöðvum N1 og Olís. Upplag Fréttatímans er því um 90 þúsund eintök. fréttir 3 Helgin 12.-14. desember 2014
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.