Fréttatíminn


Fréttatíminn - 12.12.2014, Side 18

Fréttatíminn - 12.12.2014, Side 18
Jólin 2014 Hágæða vörur og fyrsta flokks þjónusta. Jólabæklingurinn er kominn út. Sjá nánar á sminor.is. Fullt af glæsilegum vörum á jólaverði. BOSCH Töfrasproti MSM 67170 Kraftmikill, 750 W. Hljóðlátur og laus við titring. Fullt verð: 17.900 kr. Jólaverð: 13.900 kr. SIEMENS Ryksuga VSZ 3A222 Orkuflokkkur A. Parkett og flísar, flokkur C. Teppi, flokkur D. Útblástur A. Hljóð: 79 dB. Fullt verð: 29.900 kr. Jólaverð: 23.900 kr. Rommelsbacher Vöfflujárn WA 1000/E Glæsilegt 1000 W vöfflujárn úr burstuðu stáli frá þýska framleiðandanum Rommelsbacher. Viðloðunarfrítt yfirborð. Fullt verð: 14.900 kr. Jólaverð: 11.900 kr. Lux Hangandi ljós 15308-29 Fullt verð: 21.900 kr. Jólaverð: 15.900 kr. BOSCH Hárblásari PHD 5767 2000 W. Quattro-Ion tækni: Afrafmagnar hárið, gerir það mýkra og veitir því gljáa. Fullt verð: 10.500 kr. Jólaverð: 7.900 kr. Unglingsstelpur og ungar konur sækja sérstaklega í að leggja ofuráherslu á rassæfingar en mikilvægt er að æfa þannig að líkaminn sé í jafnvægi. Kim Kardashian er í raun fræg fyrir að vera fræg og fyrir að vera með stóran rass. Hún hefur farið í fjölda lýtaaðgerða og er ófeimin við að sýna hold. NordicPhotos/Getty Ofþjálfun á rassi leiðir til bakverkja Varhugavert að einblína á rassinn Jens Andri Fylkisson, einkaþjálfari hjá Sporthúsinu, hefur tekið eftir miklum áhuga hjá konum, sérstaklega ungum stelpum, á því að leggja sérstaka áherslu á rassinn en Jens segir það geta verið varhugavert. „Þessi tíska úr módelfitness hefur greinileg áhrif en þar er beinlínis verið að yfirþjálfa einn vöðva, rassvöðvann. Þegar ég þjálfa legg ég áherslu á alhliða styrktarþjálfun og mæli aldrei með því að yfirþjálfa einn vöðva. Að yfirþjálfa rassvöðvann skekkir mjaðmagrindina þannig að hún yfirspennist, það kemur líka yfirfetta á neðra bakið sem leiðir til stoðkerfisvandamála. Með því að yfirþjálfa rassvöðvann er þannig jafnvel verið að ýta undir bakmeiðsli,“ segir Jens. Hann bendir á að það sé ekki aðeins í æfingum fyrir módelfitness sem sé lögð ofuráhersla á rassinn heldur sé það líka í þeim „pósum“ sem sýndar eru á sviði, en í einni þeirra stinga keppendur rassinum út og horfa afturábak þannig að mikil fetta kemur á líkamann. Jens Andri tekur dæmi af 15 ára stelpu sem leitaði til hans þar sem hana langaði að byrja að æfa fitness. „Það er mjög algengt að fitness-stelpum sé illt í bakinu. Ég veit samt að það eru alveg þjálfarar sem passa vel upp á þetta. Ég fór með þessari stelpu í gegn um hvað svona ofþjálfun gerir við líkamann og á endanum ákvað hún að hætta í við að fara í fitness og sneri sér að ólympískum lyftingum þar sem henni gengur mjög vel. Ég veit líka að stelpur eru að mæta í sérstaka „buttlift“ – tíma þar sem er lögð áhersla á rassinn en þá þurfa þær að mæta í aðra tíma til að vega upp á móti þessu, þar sem þær styrkja aðra vöðva, styrkja kviðinn og auka liðleika. Þetta þarf allt að vera í jafnvægi,“ segir Jens Andri. Hann bendir á að það sé ekki betra að vera með vanþjálfaðan rassvöðva en ofþjálfaðan og því eigi skrifstofufólk og aðrir sem sitja mikið einnig hættu á bakvandamálum ef þeir virkja ekki rassvöðvann til að vega upp á móti kyrrsetunni. Flytja fitu til að stækka rassinn Þórdís kJArtAnsdóttir, lýta- læknir hjá DeaMedica í Glæsibæ, segir að sú leið sem farin er á Ís- landi til að stækka rassa sé að flytja fitu en hún er einn þeirra lækna sem gerir slíkar aðgerðir. „Þetta kallast fitufylling eða lipofilling. Þá er fita tekin til dæmis af mjöðmun- um, hún meðhöndluð og hreinsuð í skilvindu og síðan sprautað ofan á rassinn. Þetta er því flutningur á lifandi vef og en það verður alltaf einhver rýrnun á fitu sem er flutt,“ segir hún. Vegna þess hversu ólíkar þessar aðgerðir eru milli einstaklinga segir Þórdís erfitt að segja til um hvað þær kosta og meta þurfi hvert tilvik sérstaklega. Hún segir hægt að stækka rassa með sílíkonpúðum, líkt og settir eru í brjóst, en hún veit ekki til þess að það hafi verið gert á Íslandi. „Tæknilega er mun flóknara að setja púða í rass og því þarf að gera mjög margar slíkar aðgerðir til að verða góður í því. Stærstu vöðvar líkamans eru í rassinum og það kemur mjög illa út ef stækkunin er ekki jöfn,“ segir Þórdís. Hún veit til þess að í Brasilíu sé mikið gert af því að setja sílíkonpúða í rassa enda séu stórir rassar þar mikið í tísku og telur líklegt að einhverjir læknar í Bandaríkjunum gerir slíkar aðgerðir. Kvenlíkaminn er ekki tískuvara Þórdís Filipsdóttir, einkaþjálfari hjá BalanceNr1, hefur ekki heyrt það frá sínum viðskiptavinum að þeir vilji leggja sérstaka áherslu á rassinn þó hún hafi vissulega orðið vör við þessa svokölluðu rassatísku í popp- menningunni. „Fólk kemur ekki til mín til að fegra á sér rassinn sér- staklega heldur frekar til að taka á andlegum og líkamlegum málum, því það helst í hendur. Rassinn á fólki er tengdur við restina á líkamanum, svo ef fólk tónar sjálfið þá tónast afturendinn í kjölfarið, segir hún. Þórdís segir að það umtal sem hún hafi heyrt um rassatískuna sé neikvætt frekar en hitt. „Það er afskaplega undarlegt hvernig ákveðinn kvenlíkami er í tísku. Áður voru það brjóstin, nú eru það rassarnir. Við konur erum ekki markaðsvara og ég held að fólk sé orðið meðvitaðra en svo að það elti allt sem matað er ofan í það. Ég finn mest fyrir því að fólk vill hugsa um heilsuna og lifa í jafnvægi,“ segir hún. Rassatískan svokallaða hefur vart farið framhjá neinum sem fylgist með poppmenningu eða módelfitness en talað erum að stór rass sé það sem vegleg brjóstaskora var áður. Kim Kardashian er ein af táknmyndum þessarar tísku en eitt af því sem hún er hvað frægust fyrir er stór rassinn sem hún sýnir óspart. Áður fóru stjörnur í lýtaaðgerðir til að láta stækka brjóstin en nú eru það aðgerðir til að láta stækka rassinn en slíkar aðgerðir eru gerðar hér á landi með því að flytja fitu milli líkamshluta. Á líkamsræktarstöðvunum hefur orðið mikil aukning á sérstökum tímum til að styrkja rassinn en þær sem æfa módelfitness eru jafnvel að ofþjálfa rassvöðvann með þeim afleiðingum að þær þjást af bakverkjum. Ekki eru þó allir á eitt sáttir við þessa rassatísku frekar en aðra og benda á að best sé að halda líkamanum í jafnvægi og hætta að líta á kvenlíkamann sem tískuvöru sem breyta þarf eftir tíðarandanum. erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is 18 úttekt Helgin 12.-14. desember 2014
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.