Fréttatíminn


Fréttatíminn - 12.12.2014, Blaðsíða 68

Fréttatíminn - 12.12.2014, Blaðsíða 68
68 fjölskyldan Helgin 12.-14. desember 2014 Gott skipulag foreldra getur ráðið úrslitum um farsæld jólanna M yrkur að morgni og myrkur þegar fjölskyldan kemur heim í lok vinnu- og skóla-dags. Stórhríð og frost með tilheyrandi ófærð og fingraloppnir foreldrar skafa mestu klakabrynjuna af fjölskyldubílnum. Auðvitað án þess að hafa gert ráð fyrir aukamínútunum sem veðurguðirnir krefja okkur um þegar þeim býður svo við að horfa. Þetta einstaka par skammdegis og vetrarveðurs mætir í desember hvort sem okkur líkar það betur eða verr og við fáum engu um það ráðið. Þá gildir ekkert nema æðruleysið. Hins vegar hafa foreldrar val um flest annað í lífi fjölskyldunnar í þessum myrkasta mánuði ársins. Það er val hvort streita fái að dafna á heimilinu eða hvort við öndum djúpt og kveikjum á kertum í stað þess að bölva myrkrinu. Það er val hvort við veifum kredit- kortinu í verslunarmiðstöðvum eða bökum smákökur í jólapakkann. Það er val hvort þurfi raunverulega að kaupa jólaföt ef fjölskyldumeðlimir eiga hvort sem er ágætis- fatnað og ég fregnaði að sá hinn frægi jólaköttur hafi orðið úti árið 2007. Það er líka algjört val hvort þurfi að þrífa í öllum herbergjum og hornum – og bílskúrnum sem er fullur af hlutum hverra örlög við höfum ekki geta ákveðið til þessa. Hvílíkt frelsi sem er í boði frá álagi og fjárútlátum og ég reikna með að flest börn myndu fagna því að losna undan innkaupaferðum og stórfelldum tiltektar- og þrifaaðgerðum. Hver sagði forðum að betri séu óhreinindi í hornum en hreint helvíti? Er ekki nokkuð til í þeirri staðhæfingu? Síðan er ýmislegt sem börn myndu velja í desember án þess að hika. Þau kjósa bakstur með fjölskyldunni með jólatónlist í bakgrunninum, föndur til að gefa eigin jólagjafir og kósíkvöld og kakó með fjölskyldumynd sem endar vel. Gleymum ekki samvinnu allra í jólatrésstússinu hvort sem fjölskylduhefðin er margnota tré úr geymslunni, aðkeypt grenitré, jarðlæg birkigrein úr garðinum eða bara jólaljós á stærsta stofublómið. Og jólaskrautið, hvert eitt og einasta barn vill skreyta og þeim mun meira, þeim mun betra. Allt þetta skemmtilega sem við gerum bara í desem- ber skapar tilbreytinguna sem verður í huga barnanna okkar táknmynd jólanna og hvernig fjölskyldan „mín“ heldur jól. Sem sagt, val foreldra núna í desember verður hefð næstu kynslóðar. Ögurstundir eru svo hátíðisdagarnir sjálfir og ekki hvað síst aðfangadagskvöldið sjálft. Gleði og tilhlökkun geta auðveldlega umbreyst í vonbrigði og sárindi þegar spenna og þreyta setja ungviðið á yfirsnúning. Það er nefnilega svo ógn erfitt að vera lítið barn með stórar væntingar. Gott skipulag foreldra getur þá ráðið úrslitum um farsæld jólanna. Skiptum verkum og setjum einn fullorðinn á barnavaktina til að fara út og hreyfa mann- skapinn ærlega til að losa um spennu. Takið endilega öll upp einn vel valinn pakka fyrir matinn til að taka ögn hrollinn úr þeim áhugasömustu og það er gott að geyma eftir- réttinn þar til seinna um kvöldið. Ef pakkaflóðið er mikið, er sjálfsagt að geyma nokkra til að taka upp á jóladag því í ofgnóttinni minnkar gleðin yfir hverjum og einum. Svo er heillandi tilhugsun að fjölskyldan geri eitthvað fleira saman heldur en að borða og opna pakka á þessu hátíðarkvöldi. Því ekki að syngja, ganga saman kringum jólatréð, leika leiki og spila gott fjölskylduspil eða bara lönguvitleysu? Það er samveran og tilbreytingin sem gefur hátíðinni merkingu. Svo skulum við muna að í desember fjölgar uppalendum á hverju barnaheimili um þrettán þegar vaskir jólasveinar arka til byggða, einn og einn í senn og blanda sér af afli inn í heimilislífið. Ef einhver þeirra rekst á þennan pistil, ráðlegg ég þeim eindregið að hafa hemil á gjafmildi sinni og sýna aðgát. Litlar og látlausar gjafir í skóinn eru stórfínar, mandarínur, smákökur, tannbursti eða sokkapar gleður og ekki síður bréf frá sveinka. Munið líka, kæru bræður, að standa við orð ykkar og kröfu um góða hegðun og prúð- mennsku á heimilinu. Börn eru stórgáfuð og vita hvenær þau eiga skilið að fá hráa kart- öflu – og hvenær ekki. Hver sagði forðum að betri séu óhreinindi í hornum en hreint helvíti? Börnin fara að hlakka til... Margrét Pála Ólafsdóttir ritstjórn@ frettatiminn.is heiMur barna Ef pakkaflóðið er mikið, er sjálf- sagt að geyma nokkra til að taka upp á jóladag því í ofgnóttinni minnkar gleðin yfir hverjum og einum. Jólasveinarnir heimsækja Þjóðminja- safnið alla daga fram að jólum klukkan 11. Heimsókn jólasveinanna í Þjóðminja- safnið er löngu orðin fastur liður á aðventunni en þeir mæta alla daga klukkan 11. Auk þess munu Grýla og Leppalúði láta sjá sig um helgina. Á fyrstu hæð safnsins hefur verið sett upp jólasýning út frá bókinni Jólin hans Hallgríms eftir Steinunni Jó- hannesdóttur. Bókin segir frá að- ventunni í Gröf og hafa safnkenn- arar unnið ratleik um safnið út frá sýningunni. Meðal annars eru þar gömul leikföng eins og leggir, skeljar og völur ásamt nútíma útgáfu af jóla- húsinu í Betlehem sem börnin geta sjálf raðað upp. Á þriðju hæð safns- ins er svo hægt að upplifa jólin eins og þau birtust í stofum landsmanna á sjötta áratug síðustu aldar. Alla daga aðventunnar geta börn lagt leið sína á jólaverkstæði ráðhússins og fengið efni til að föndra sitt eigið jólaskraut, tekið það með sér heim eða hengt það upp á vegg í salnum. Aðstoðarmaður jólaverkstæðisins mun verða börnum til aðstoðar. Verkstæðið verður opið frá 12 til 18 um helgina. -hh  Jólaskapið uM helgina Jól í Þjóðminjasafninu og ráðhúsinu FLOTTAR LÉTTAR BÆKUR SEM SMELLPASSA Í JÓLAPAKKANN Áttu vini í útlöndum? Metsölulisti Eymundsson Landkynningarbækur. Vika 49 2. www.forlagid.is – alvöru bókabúð á netinu Metsölulisti Eymundsson Landkynningarbækur. Vika 49 1. M e s t s e l d a u n g l i n g a b ó k i n ! 1.12.–7.12.2014 1 UNGMENNA- BÆKUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.