Fréttatíminn - 12.12.2014, Side 68
68 fjölskyldan Helgin 12.-14. desember 2014
Gott skipulag foreldra getur ráðið úrslitum um farsæld jólanna
M yrkur að morgni og myrkur þegar fjölskyldan kemur heim í lok vinnu- og skóla-dags. Stórhríð og frost með tilheyrandi ófærð og fingraloppnir foreldrar skafa mestu klakabrynjuna af fjölskyldubílnum. Auðvitað án þess að hafa gert ráð
fyrir aukamínútunum sem veðurguðirnir krefja okkur um þegar þeim býður svo við að
horfa. Þetta einstaka par skammdegis og vetrarveðurs mætir í desember hvort sem okkur
líkar það betur eða verr og við fáum engu um það ráðið. Þá gildir ekkert nema æðruleysið.
Hins vegar hafa foreldrar val um flest annað í lífi fjölskyldunnar í þessum myrkasta
mánuði ársins. Það er val hvort streita fái að dafna á heimilinu eða hvort við öndum djúpt
og kveikjum á kertum í stað þess að bölva myrkrinu. Það er val hvort við veifum kredit-
kortinu í verslunarmiðstöðvum eða bökum smákökur í jólapakkann. Það er val hvort
þurfi raunverulega að kaupa jólaföt ef fjölskyldumeðlimir eiga hvort sem er ágætis-
fatnað og ég fregnaði að sá hinn frægi jólaköttur hafi orðið úti árið 2007. Það er líka
algjört val hvort þurfi að þrífa í öllum herbergjum og hornum – og bílskúrnum sem
er fullur af hlutum hverra örlög við höfum ekki geta ákveðið til þessa. Hvílíkt frelsi
sem er í boði frá álagi og fjárútlátum og ég reikna með að flest börn myndu fagna
því að losna undan innkaupaferðum og stórfelldum tiltektar- og þrifaaðgerðum. Hver
sagði forðum að betri séu óhreinindi í hornum en hreint helvíti? Er ekki nokkuð til
í þeirri staðhæfingu?
Síðan er ýmislegt sem börn myndu velja í desember án þess að hika. Þau kjósa
bakstur með fjölskyldunni með jólatónlist í bakgrunninum, föndur til að gefa eigin
jólagjafir og kósíkvöld og kakó með fjölskyldumynd sem endar vel. Gleymum ekki
samvinnu allra í jólatrésstússinu hvort sem fjölskylduhefðin er margnota tré úr
geymslunni, aðkeypt grenitré, jarðlæg birkigrein úr garðinum eða bara jólaljós á
stærsta stofublómið. Og jólaskrautið, hvert eitt og einasta barn vill skreyta og þeim
mun meira, þeim mun betra. Allt þetta skemmtilega sem við gerum bara í desem-
ber skapar tilbreytinguna sem verður í huga barnanna okkar táknmynd jólanna og
hvernig fjölskyldan „mín“ heldur jól. Sem sagt, val foreldra núna í desember verður
hefð næstu kynslóðar.
Ögurstundir eru svo hátíðisdagarnir sjálfir og ekki hvað síst aðfangadagskvöldið
sjálft. Gleði og tilhlökkun geta auðveldlega umbreyst í vonbrigði og sárindi þegar spenna
og þreyta setja ungviðið á yfirsnúning. Það er nefnilega svo ógn erfitt að vera lítið barn
með stórar væntingar. Gott skipulag foreldra getur þá ráðið úrslitum um farsæld jólanna.
Skiptum verkum og setjum einn fullorðinn á barnavaktina til að fara út og hreyfa mann-
skapinn ærlega til að losa um spennu. Takið endilega öll upp einn vel valinn pakka fyrir
matinn til að taka ögn hrollinn úr þeim áhugasömustu og það er gott að geyma eftir-
réttinn þar til seinna um kvöldið. Ef pakkaflóðið er mikið, er sjálfsagt að geyma nokkra
til að taka upp á jóladag því í ofgnóttinni minnkar gleðin yfir hverjum og einum. Svo er
heillandi tilhugsun að fjölskyldan geri eitthvað fleira saman heldur en að borða og opna
pakka á þessu hátíðarkvöldi. Því ekki að syngja, ganga saman kringum jólatréð, leika
leiki og spila gott fjölskylduspil eða bara lönguvitleysu? Það er samveran og tilbreytingin
sem gefur hátíðinni merkingu.
Svo skulum við muna að í desember fjölgar uppalendum á hverju barnaheimili um
þrettán þegar vaskir jólasveinar arka til byggða, einn og einn í senn og blanda sér af afli
inn í heimilislífið. Ef einhver þeirra rekst á þennan pistil, ráðlegg ég þeim eindregið að
hafa hemil á gjafmildi sinni og sýna aðgát. Litlar og látlausar gjafir í skóinn eru stórfínar,
mandarínur, smákökur, tannbursti eða sokkapar gleður og ekki síður bréf frá sveinka.
Munið líka, kæru bræður, að standa við orð ykkar og kröfu um góða hegðun og prúð-
mennsku á heimilinu. Börn eru stórgáfuð og vita hvenær þau eiga skilið að fá hráa kart-
öflu – og hvenær ekki.
Hver sagði forðum að betri séu óhreinindi í hornum en
hreint helvíti?
Börnin fara að hlakka til...
Margrét
Pála
Ólafsdóttir
ritstjórn@
frettatiminn.is
heiMur barna
Ef pakkaflóðið er
mikið, er sjálf-
sagt að geyma
nokkra til að taka
upp á jóladag
því í ofgnóttinni
minnkar gleðin
yfir hverjum og
einum.
Jólasveinarnir heimsækja Þjóðminja-
safnið alla daga fram að jólum klukkan 11.
Heimsókn jólasveinanna í Þjóðminja-
safnið er löngu orðin fastur liður á
aðventunni en þeir mæta alla daga
klukkan 11. Auk þess munu Grýla og
Leppalúði láta sjá sig um helgina. Á
fyrstu hæð safnsins hefur verið sett
upp jólasýning út frá bókinni Jólin
hans Hallgríms eftir Steinunni Jó-
hannesdóttur. Bókin segir frá að-
ventunni í Gröf og hafa safnkenn-
arar unnið ratleik um safnið út frá
sýningunni. Meðal annars eru þar
gömul leikföng eins og leggir, skeljar
og völur ásamt nútíma útgáfu af jóla-
húsinu í Betlehem sem börnin geta
sjálf raðað upp. Á þriðju hæð safns-
ins er svo hægt að upplifa jólin eins
og þau birtust í stofum landsmanna á
sjötta áratug síðustu aldar. Alla daga
aðventunnar geta börn lagt leið sína
á jólaverkstæði ráðhússins og fengið
efni til að föndra sitt eigið jólaskraut,
tekið það með sér heim eða hengt það
upp á vegg í salnum. Aðstoðarmaður
jólaverkstæðisins mun verða börnum
til aðstoðar. Verkstæðið verður opið
frá 12 til 18 um helgina. -hh
Jólaskapið uM helgina
Jól í Þjóðminjasafninu og ráðhúsinu
FLOTTAR LÉTTAR BÆKUR SEM
SMELLPASSA Í JÓLAPAKKANN
Áttu vini í
útlöndum?
Metsölulisti
Eymundsson
Landkynningarbækur. Vika 49
2.
www.forlagid.is – alvöru bókabúð á netinu
Metsölulisti
Eymundsson
Landkynningarbækur. Vika 49
1.
M e s t s e l d a
u n g l i n g a b ó k i n !
1.12.–7.12.2014
1 UNGMENNA-
BÆKUR