Fréttatíminn - 12.12.2014, Blaðsíða 97
98 matur & vín Helgin 12.-14. desember 2014
É g átti lengi vel í dálitlum vandræðum með að steikja önd svo ég væri
ánægð með árangurinn, kannski
vegna þess að ég var alltaf að
reyna að fá bringuna frekar lítið
steikta en lærin gegnsteikt og
það gengur eiginlega ekki upp
nema með einhverjum töfra-
brögðum. Á endanum gafst
ég eiginlega upp og komst að
þeirri niðurstöðu að það væri nú
ekki mikið að því að öndin væri
öll gegnsteikt, svo framarlega
sem hún væri safarík og góð í
gegn – og þessi þrautreynda
danskættaða uppskrift ætti að
tryggja það,“ segir Nanna Rögn-
valdardóttir matgæðingur. Hún
leggur okkur hér til uppskrift að
danskri jólaönd sem var að finna
í frábærri bók hennar, Jólamatur
Nönnu, sem kom út árið 2011.
Matur Fyllt önd að dönskuM hætti
Jólaönd Nönnu Rögnvaldar
Fyllt önd að dönskum hætti
fyrir 4–5
1 aliönd, um 2,5 kg
pipar
salt
2 epli
250 g blandaðir þurrk-
aðir ávextir.
1 l vatn
Hitaðu ofninn í
220°C. Þerraðu
öndina vel með
eldhúspappír og
kryddaðu hana að
utan með pipar
og salti. Höggðu
vængendana af
henni og notaðu þá í
sósuna.
Flysjaðu eplin og
skerðu þau í bita.
Blandaðu þeim
saman við ávextina,
kryddaðu með pipar
og salti og fylltu
öndina með blönd-
unni. Lokaðu opinu
með kjötprjónum
eða tannstönglum.
Leggðu öndina á
grind sem höfð er
yfir ofnskúffu og
láttu bringuna snúa
niður. Best er að
nota U- eða V-laga
grind sem heldur
öndinni kyrri en
það má líka styðja
við hana, t.d. með
samanvöðluðum
álpappír.
Steiktu öndina í
um 20 mínútur en
lækkaðu þá hitann í
160°C, helltu um 750
ml af sjóðandi vatni
í ofnskúffuna, snúðu
öndinni þannig að
bringan snúi upp og
steiktu hana í um 1½
klst. í viðbót. Taktu
hana þá út og láttu
hana standa í 10–15
mínútur. Ljúktu við
að búa til sósuna á
meðan.
Andarsósa
vængendar, háls og inn-
matur úr öndinni
1 msk olía
1 laukur, saxaður smátt
2 gulrætur, saxaðar smátt
nokkrir steinseljustöngl-
ar eða 1 sellerístöngull,
saxaður
1 rósmaríngrein eða
fáeinir timjankvistir
pipar
salt
1 l vatn
soðið úr ofnskúffunni
2 msk sérrí eða púrtvín
(má sleppa)
e.t.v sósujafnari
Skerðu hálsinn og
innmatinn í bita.
Hitaðu olíuna í
potti og brúnaðu
vængendana, háls-
inn og innmatinn vel
á öllum hliðum við
góðan hita. Bættu
lauk og gulrótum
í pottinn og láttu
krauma smástund.
Settu svo krydd-
jurtir, pipar og salt
út í, helltu vatni yfir
og hitaðu að suðu.
Láttu malla í opnum
potti í um 1 klst.
Síaðu soðið og
kreistu eins mikinn
kraft úr því sem
eftir verður í sigtinu
og þú getur. Settu
það í pott. Helltu
soðinu úr ofnskúff-
unni í pottinn þegar
þú tekur öndina út.
Fleyttu e.t.v. fitu
ofan af ef soðið er
mjög feitt. Hitaðu að
suðu og láttu sjóða
smástund.
Bragðbættu soðið
e.t.v. með sérríi eða
púrtvíni, kryddaðu
það með pipar
og salti og bættu
jafnvel við svolitlum
andakrafti ef það er
bragðlítið. Þykktu
það með dálitlum
sósujafnara.
Nanna Rögnvaldardóttir matgæðingur færir okkur hér uppskrift að jólaönd að dönskum
hætti. Ljósmynd/Hari
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
4
46
50
jonogoskar.is Sími 5524910 Laugavegi 61 Kringlan Smáralind
Norðurljós
NORÐURLJÓS er það nýjasta í IceCold silfurlínunni okkar
Fallegar jólagjafir
Guðlaugur A Magnússon
Skólavörðustíg 10 • Reykjavík • www.gam.is • sími 5625222
Við hönnun skeiðarinnar sóttum
við innblástur í okkar gömlu
hefðir enda ber hún emeleringu
eins og fyrstu skeiðarnar okkar.
Skeiðin fæst eingöngu í verslun
Guðlaugs á Skólavörðustíg.
Hönnun: Hanna S. Magnúsdóttir
Smíðuð úr 925 sterling silfri
Jólaskeiðin 2014
Hin eina sanna jólaskeið
okkar íslendinga í 68 ár
í 90 ár
Hamraborg – Nóatún 17 – Hr ingbraut – Austurver – Grafarho l t
til útlanda
Matarsendingar
Láttu okkur sjá
um alla fyrirhöfnina
– útvega vottorð, pakka og senda.
Síðasti pöntunardagur fyrir jól
er 19. desember!
DRøMMEKAGE
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
13
34
02
Hitið ofninn í 180°C. Hrærið Ljóma
og sykur vel saman. Bætið eggjunum,
einu í einu, saman við og hrærið í
deiginu á meðan.
Blandið hveiti, lyftidufti og fræjum
úr vanillustöngum saman og hrærið
í deigið. Hrærið að lokum mjólk og
kókosmjöli í deigið.
Setjið deigið í bökunarpappírsklætt
bökunarform sem er um 25 x 35 cm
að stærð. Bakið kökuna í 35–40
mínútur.
Ofanbráð: Hitið vatnið í potti og
leysið Nescafé upp í því. Bætið
Ljóma saman við og látið bráðna
í blöndunni.
Setjið restina af hráefnunum saman
við og hrærið vel saman yfir lágum
hita.
Smyrjið blöndunni yfir kökuna og
bakið hana í 8 mínútur til viðbótar.
375 g Ljóma
375 g sykur
8 egg
475 g hveiti
2 tsk. lyftiduft
fræ úr tveimur
vanillustöngum
1,5 dl mjólk
100 g kókosmjöl
Ofanbráð
3/4 dl vatn
1 ½ tsk. Nescafé
150 g Ljóma
150 g kókosmjöl
300 g púðursykur
75 g síróp
......
..
......
M e s t s e l d a
u n g l i n g a b ó k i n !
1.12.–7.12.2014
1 UNGMENNA-
BÆKUR