Fréttatíminn - 12.12.2014, Blaðsíða 38
ævina sem hjálpuðu mér af stað til að takast á við
depurðina. Ég nýtti mér hreyfinguna og lausnar-
miðað hugarfar þótt neikvæðu hugsanirnar væru
ansi sannfærandi stundum og vildu toga mig
aftur átt að sófanum og í uppgjöfina þá vissi ég
innst inni að það væri mér ekki alltaf í hag þótt
stundum gæfi ég eftir.
Lífið er eins og rússíbani, það fer upp og niður,
það er ekki alltaf himnasæla en það eru ekki
heldur allir dagar ómögulegir. Í raun eru svörin
að vellíðan innra með okkur en við þurfum að
vera duglegri að taka betur eftir þeim þegar
okkur líður vel. Gott er líka að minna sig á að
neikvæðar og erfiðar tilfinningar líða hjá, við
þurfum bara að hlúa að okkur eftir bestu getu á
meðan. Stundum er rétta svarið að gefa sér ró,
og hvíld þar til þær líða hjá en stundum er betra
að standa upp og gera eða framkvæma eitthvað,
það er auðvitað persónu- og aðstæðubundið hvað
hentar hverjum. Mikilvægt er líka að maður hiki
ekki við að leita sér hjálpar. Sálfræðingar geta
aðstoðað og hafa þekkingu á áhrifum neikvæðra
tilfinninga og hugsana á líf fólks og það er því
um að gera að nýta hjálp þeirra. Þakklátust er
ég fyrir allt fólkið í kringum okkur sem umvafði
okkur með hlýju, umhyggju og stuðning sem var
okkur ómetanleg hjálp á þessum tímum og er
enn,“ segir hún.
Nýtt ár – ný vinna
Anna hefur nú störf á ný í janúar eftir fæðing-
arorlof, sem sálfræðingur í Heilsuborg. „Þetta
starf er mjög gefandi og það sem er mest spenn-
andi við það er að það er enginn einstaklingur
eins eða með sama bakgrunn og lífsreynslu, sem
gerir þetta krefjandi en líka svo skemmtilegt og
fjölbreytt starf. Ég verð þar með einstaklingsvið-
töl, námskeið og fyrirlestra. Ég veit ekkert betra
en að upplifa að ég geti gert smá gagn og e.t.v
hjálpað öðrum að líða betur. Það er besta tilfinn-
ing sem ég veit. Það sama á við um móðurhlut-
verkið – ég elska það. “
Fésbókar-
færslur
Önnu
17. maí 2013
Kæru vinir, á þriðjudags-
morgun sl. þann 14. maí
kl. 7:10 fæddist yndis-
leg dóttir okkar, nefnd
Marta Marín Elíasdóttir,
andvana. Fallega stúlkan
okkar vó 2.995 grömm
og var 50 cm á lengd og
var fullkomin í alla staði.
Við þökkum allan þann
hlýhug og þær fallegu
kveðjur sem við höfum
fengið frá ykkur. Við
munum halda áfram að
heiðra minningu hennar
um ókomna tíð. Hún
er og verður ávallt litla
Maístjarnan okkar. Kær-
leikskveðjur Anna og
Elías.
14. ágúst 2013
Í dag hefði fallega
prinsessan okkar Marta
Marín orðið 3 mánaða....
lífið er skrýtið....en
heldur áfram og ég reyni
að fylgja með. Ég sendi
fallega englinum mínum
ástar- og saknaðar-
knús, risastórt faðmlag
og trilljón billjón kossa
á mjúku kinnarnar og
nebbann....það er gott að
finna að ég hef hana þó
ávallt hjá mér í hjarta-
stað.
12. febrúar 2014
Við erum svo óendan-
lega þakklát fyrir hversu
lánsöm við erum. Í 20
vikna sónar sást skýrt
og greinilega heilbrigður
og fallegur prins sem
mun koma í faðminn
okkar í júní. Við gætum
ekki verið ánægðari
með þennan yndislega
einstakling og hlökkum
mikið til að fá að kynnast
honum og knúsa og kela
í klessu.
14. maí 2014
Í dag er liðið heilt ár
liðið frá því við fengum
hana Mörtu Marín
okkar í fangið. Hún var
svo falleg, og fullkomin
í alla staði þrátt fyrir
að hjartað hennar hafi
hætt að slá. Þessum degi
fylgdi mikil sorg en jafn-
framt svo mikil gleði og
þakklæti fyrir að hafa
fengið að eignast yndis-
lega dóttur. Í dag skil ég
orðatiltækið „betra er að
hafa elskað og misst en
að hafa aldrei elskað“, ég
hefði ekki fyrir nokkurn
mun viljað missa af því
að eignast hana. Í dag er
dagurinn hennar, fallega
engilsins okkar.
14. júní 2014
Yndislegi og fallegi
prinsinn okkar og
fimmta gersemin fædd-
ist rétt yfir miðnætti
laugardaginn 14.06.́ 14
Öllum heilsast vel og
ég hlakka til að eyða
næstu árum í að knúsa
litla krúttíbúntið okkar
Elíasar.
Marta Marín fæddist andvana. Hún hafði verið alveg heilbrigð og talið var að hún hefði verið
lifandi 12-24 klukkustundum fyrir fæðinguna. Mynd úr einkasafni
Ég gerði það sem ég þurfti fyrir jarðarförina en mér leið eins og ég væri dofin. Ég var
ennþá svo hugfangin af ást eftir að hafa fengið dóttur mína í fangið að ég var að springa
úr þakklæti og gleði en var líka að berjast við ólýsanlega mikla sorg. Það var erfitt að láta
þessar ólíku tilfinningar passa saman á sama tíma, segir Anna Sigurðardóttir. Hér eru þau
hjónin, Anna og Elías, með syni sína fjóra. „Súperengillinn“ þeirra, Marta Marín, fylgir þeim
gegnum lífið. Ljósmynd/Hari
Lífið heldur áfram
Sorgin bankar ennþá upp á við og við
og mun gera um ókomin ár en þegar
ég sakna Mörtu Marínar þá tek ég
mér stund út af fyrir mig heima og
leyfi ég mér að gráta og hugsa hlýtt til
hennar. Mér þykir vænt um sorgina
þótt hún sé sár og stundum óbærilega
þung, því þá er ég samt svo nálæg
henni. Ég upplifi líka að þegar ég er
búin að tæma tárabrunninn þá finn
ég svo sterkt fyrir mikilli gleði og
þakklæti yfir því að hafa eignast hana.
Þegar vindurinn blæs á mig eða sólin
skín þá lít ég á það sem kveðju frá
henni. Hún ferðast alltaf með okkur
um lífið. Strákarnir tala mikið um
hana og við biðjum hana alltaf um að
fljúga með okkur á áfangastað hvert
sem við förum svo hún sé örugglega
með okkur – hún er líka svo mikill
súperengill,“ segir þessi hugrakka og
jákvæða kona.
Eva Magnúsdóttir
ritstjorn@frettatiminn.is
38 viðtal Helgin 12.-14. desember 2014