Fréttatíminn


Fréttatíminn - 12.12.2014, Qupperneq 40

Fréttatíminn - 12.12.2014, Qupperneq 40
Train Smarter with the Kinetic inRide and inRide App. Learn more about power training at: kurtkinetic.com/inride KRÍA HJÓL - GRANDAGARÐUR 7 - 101 REYKJAVÍK s.5349164 INFO@KRIAHJOL.IS KINETIC ROAD MACHINE + inRIDE WATT METER Smart-phone* based costing hundreds more. Kinetic2015_inRide_100x100.indd 2 10/22/14 1:10 PM * Works with Apple™ iOS devices with Bluetooth Smart® F rú Ragnheiður er þakin snjó þegar sjálfboðaliðar Rauða krossins mæta á vaktina. Klukkan er sjö á þriðjudagskvöldi og margir eflaust að ljúka við kvöldmatinn, jafnvel að fara að horfa á sjónvarpsfréttirnar. Síðan eru aðrir sem vita að Frú Ragn- heiður er að leggja í sinn hefð- bundna rúnt, rétt eins og alla aðra virka daga þegar næst að manna vaktirnar með sjálfboðaliðum, og dreifa sprautum, sprautunálum og spritti til fíkniefnaneytenda. Matthías Matthíasson sálfræð- ingur er bílstjóri kvöldsins og með honum á vaktinni er Sunna María Helgadóttir, hjúkrunarfræði- og myndlistarnemi. Frú Ragnheiður er gamall sjúkrabíll sem hefur verið breytt til að þjóna þessi verk- efni sem allra best. Minnst tvo sjálfboðaliða þarf á hverja vakt – bílstjóra með meirapróf auk hjúkr- unarfræðings eða nema sem hefur lokið minnst tveimur árum í hjúkr- unarfræði. Þriðji sjálfboðaliðinn getur í raun haft hvaða bakgrunn sem er. Í kvöld eru sjálfboðalið- arnir aðeins tveir, og svo ég, blaða- maðurinn. Sprauta sig jafnvel 30 sinnum á dag Rauði krossinn er nýfluttur frá Hlemmi og Hlemmur er því fyrsta stopp Frú Ragnheiðar. „Það er mjög misjafnt hversu margir koma,“ segir Matthías en hann hefur ekki fyrr sleppt orðinu en Sjálfboðaliðar Rauða krossins hafa undanfarin ár ekið gamla sjúkrabílnum Frú Ragnheiði um götur bæjarins og útdeilt sprautum og sprautunálum til þeirra sem þurfa. Markmiðið er að minnka líkur á sýkingum og smiti af sprautunálum. Þeir sem leita til Frú Ragnheiðar mæta þar engri fordæmingu eða predikunum en sumir hreinlega skammast sín of mikið til að kaupa sprautur í apóteki. Kostnaðurinn við verkefnið er hverfandi í samanburði við þann heilbrigðiskostnað ef fólk fær sýkingar eða jafnvel smitast af HIV eða lifrarbólgu en þrátt fyrir það hefur gengið erfiðlega að tryggja verkefninu fjármagn en kostnaðurinn er um 7 milljónir á ársgrundvelli. ung kona kemur inn í bílinn, heils- ar kurteislega og biður um 100 nálar, 20 sprautur og sprittklúta. Á meðan Sunna María finnur þetta til spyr hún konuna hvort það sé eitthvað fleira sem þau geti gert fyrir hana en hún afþakkar og vill greinilega ekki spjalla. Það er líka allt í lagi. Þegar hún er farin viðurkenni ég að það komi mér á óvart að einhver þurfi 100 nálar þegar Frú Ragnheiður er hvort eð er reglulega á ferðinni. Það kom í ljós að það var síður raunsætt mat hjá mér að fólk sprautaði sig ekki nema tvisvar, þrisvar á dag. „Við spyrjum fólk ekki hvaða efni það er að gefa sér eða hversu oft. Á námskeiðum eru okkur kennt að láta fólk hafa sprauturnar á jafn eðlilegan hátt og við séum að láta það hafa tyggjó. Við erum ekki hér til að dæma,“ segir Sunna María. Þau segja mér hins vegar að sum efni séu þannig að fólk þurfi að sprauta sig mjög oft með þeim, tíu til tuttugu sinnum, jafn- vel þrjátíu sinnum á sólarhring, og þannig er fjöldi nála sem fólk notar fljótt orðinn mjög mikill. Það er ef fólk gætir fyllsta hreinlætis til að lágmarka sýkingarhættu og smithættu, en ástæða þess að Rauði krossinn dreifir sprautum og nálum með Frú Ragnheiði er að lágmarka skaðann. „Sumir hafa reynslu af því að fá óþægilegt viðmót þegar þeir fara í apótek og vilja ekki fara þangað. Margir skammast sín og vilja frekar koma hingað,“ segir hún. Næsta stopp er við Gistiskýlið á Lindargötu, nýtt gistiskýli fyrir heimilislausa karlmenn. Það eru þó ekki allir karlmenn þar sem þurfa á þjónustuni að halda og fólk sem kemur í bíllinn þar fyrir utan sem hefur engin tengsl við gistiskýlið. Fólk bara veit að bíll- inn er þarna á ákveðnum tíma og getur komið. Það vill þó þannig til að allir sem koma í þessu stoppi eru karlmenn, en afar ólíkir inn- byrðis – allt frá þrítugu og upp í sextugt, menn sem greinilega eru undir áhrifum og menn sem fáa myndi gruna af útlitnu einu að þeir sprautuðu sig með vímuefnum. Ekki að það sé nein sérstök týpa. Þetta eru allar týpur. Einn biður ekki um neinar sprautur heldur vill bara láta athuga blóðþrýsting- inn. Taka við notuðum nálum Til að halda utan um starfsemi Frú Ragnheiðar eru þeir sem þangað koma beðnir um nafn, en þeir mega gefa upp gælunafn, eða jafnvel ekkert ef þeir svo kjósa. Þá er skráð niður hversu mikið af sprautum, nálum og sprittklútum fólk fær. Við Gistiskýlið kemur einn ungur maður með box með notuðum sprautum og sprautunál- um sem Matthías setur í sérstakan förgunarpoka. „Við látum fólk hafa box undir þetta og tökum við þeim aftur því það er ekki mælt með að setja notaðar nálar í hefðbundið rusl. Fólk getur stungið sig á þeim þar,“ segir hann. Frú Ragnheiður dreifir einnig smokkum en ekki er mikil eftirspurn eftir þeim þar sem kynhvötin minnkar gjarnan með aukinni neyslu. Einn maðurinn er skrafhreifinn mjög og þakkar inni- lega fyrir sprauturnar. Hann segist leggja mikið upp úr hreinlæti til að minnka hættu á sýkingum, og þau Matthías og Sunna María taka undir með honum. Mælt er með því að nota hverja nál bara einu sinni. Eftir því sem sama nálin er notuð oftar aukast líkur á sýking- um og þannig minnkar dreifing nýju nálanna líkur á því að fólk þurfi að leita sér læknisaðstoðar eða jafnvel leggjast inn á sjúkra- hús. Þá skiptir líka miklu máli að fólk deili ekki nálum til að koma í veg fyrir að lifrarbólga C eða HIV smitist þannig. „Þessar sprautur og nálar sem við erum að dreifa kosta afskap- lega lítið og í samanburði við hvað það kostar heilbrigðiskerfið þegar fólk þarf að leggjast inn vegna sýk- inga eða þegar fólk smitast af HIV þá er þessi kostnaður algjörlega hverfandi,“ segir Sunna María. Tvo stopp eru eftir, í Hlíðunum þar sem eru bæði Konukot og heimili fyrir heimilislausa karl- menn, og svo aftur við Hlemm. Sunna María bankar á báðum stöð- um við láta vita að Frú Ragnheiður sé komin og nokkrir karlmenn koma til að sækja nálar og spraut- ur. Flestir sem koma eru fastagest- ir og spjalla sumir heilmikið. Þeir vita að þeir geta treyst sjálfboðalið- unum og að þeir eru ekki dæmdir. „Þeir sem koma hingað vita allt um öll meðferðarúrræði og við erum ekki að predika um það. Það er staðreynd að í öllum borgum er einhver hópur sem er ekki að fara að hætta. Fólk er mjög þakklátt og sumir kalla okkur englana sína,“ segir Sunna María. Þegar vaktinni lýkur er snúið aftur í húsakynni Rauða krossins og fyllt á birgðirnar fyrir næstu vakt. „Sumt heilbrigðisstarfsfólk er ekki hlynnt þessari skaðam- innkandi aðferðafræði. Sumum finnst að það eigi alltaf að laga fólk. En við erum líka að laga. Við erum að draga út sýkingum, smit- hættu og við erum að hjálpa fólki að líða betur.“ Erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is Hver vakt á Frú Ragnheiði er í tvo tíma. Á þriðjudaginn komu átta manns sem samtals fengu 470 nálar og um 250 sprautur, auk sprittklúta. Mynd/Hari Skaðaminnkun Frú Ragnheiðar Frú Ragnheiður er verkefni sem byggir á skaðaminnkun og hefur þann tilgang að ná til jaðarhópa samfélagsins, til dæmis útigangsfólks, heimilislausra og fíkla, og bjóða þeim skaðaminnkandi þjónustu og almenna heilsuvernd, án fordóma eða kvaða, í þeirra nærumhverfi. Markmið verkefnisins er að draga úr skaðsemi lifnaðarhátta jaðarhópa, til dæmis sýk- ingum í sárum og útbreiðslu lifrarbólgu C og HIV, með því að auðvelda þeim aðgengi að sárameðferð, hreinum nálum og sprautum og almennri fræðslu um skaðaminnkun. Þannig er hægt með einföldum úrræðum að draga verulega úr skaðsemi lifnaðarhátta og draga úr þörf á dýrari úrræðum seinna meir í heilbrigðiskerfinu. Rauði krossinn dregur sig í hlé „Við hjá Rauða krossinum lítum svo á að verkefni Frú Ragnheiður hafi sannað sig og þegar um slíkt er að ræða drögum við okkur alla jafna út úr verkefnum og aðrir taka við,“ segir Þór Gíslason, verkefnisstjóri Frú Ragnheiðar. Rauði krossinn í Reykjavík hóf verkefnið Frú Ragnheiður fyrir fimm árum og bar þá allan kostnað af því. Síðan hafa komið inn styrkir frá bæði borg og ríki, og í dag dekka slíkir styrkir allt að 70% kostnaðarins. Gert er ráð fyrir að á ársgrundvelli sé kostnaður við Frú Ragnheiði um 7 millj- ónir. Rauði krossinn er í viðræðum við velferðarráðuneytið um að taka aukinn þátt í kostnaði við verkefnið, Gísli segist bjartsýnn á að samningar náist og það fyrir jól. „Vegna samdráttar hjá Rauða krossinum þá er svo komið að jafnvel þó við vildum halda þessu úti áfram þá höfum við einfaldlega ekki fjármagn til þess.“ Dreifa hundruðum sprautunála á einni vakt Tveir til þrír sjálfboðaliðar eru á hverri vakt, þar af einn með meirapróf, einn hjúkrunarfræð- ingur eða hjúkrunarfræðinemi, og einn sjálfboðaliði til viðbótar ef mögulegt er. Ekki næst alltaf að manna vaktirnar. Mynd/Hari 40 úttekt Helgin 12.-14. desember 2014
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.