Fréttatíminn - 12.12.2014, Síða 44
Okkar mikil-
vægasta
auðlegð eru
víðernin og
það þarf svo
lítið til að
spilla þeim.
Það þarf
ekki nema
einn raf-
magnsstaur
til að þessar
óbyggðir
hætti
að vera
óbyggðir.
N áttúrupælingar eru safn greina eftir Pál Skúlason, heimspeking og fyrrverandi háskólarektor, en Páll hefur á áralöngum heimspekiferli sínum hugsað og skrifað
mikið um samband manns og náttúru. Í greinunum
pælir Páll í mikilvægi þess að tengjast landinu og
í ábyrgð okkar gagnvart náttúrunni. Greinarnar í
fyrri hluta bókarinnar tengjast allar hugleiðingum
hans um eldstöðina Öskju og þeirri andlega reynslu
sem hann upplifði við komuna þangað. Í síðari hluta
bókarinnar eru greinar sem tengjast því sem Páll
kallar siðfræði náttúrunnar. Sjálfur segist Páll lengi
vel hafa forðast það að fara í Öskju vegna marg-
mennis.
París og Askja
„Þegar ég kom til Öskju í fyrsta sinn voru þar engir
og þetta var miklu magnaðari staður en ég hafði
nokkurn tíma ímyndað mér. Ég var reyndar upptek-
inn við allt aðra hugsun því ég var á leið til Parísar
og var því með hugann þar. En á leiðinni til baka
þá vaknaði spurningin hvað sé líkt með Öskju og
París. Þegar ég kom fyrst til Parísar fyrir mörgum
árum varð ég fyrir þeirri reynslu að finnast ég vera
kominn að miðju heimsins. Eins og ég þyrfti ekki
að fara lengra, eins og ég væri kominn á endastöð.
Það var sama tilfinningin sem ég upplifði við Öskju,
að ég þyrfti ekki að fara neitt lengra, kominn að
þungamiðju jarðarinnar sem tengdi okkur beint við
öfl hennar.“
Við eigum ekki landið, landið á okkur
Askja og París eru mjög ólíkir staðir.
„Já, en það er samt eitthvað skylt með þeim.
Þetta eru heildir sem eru heillandi. Annars vegar
manngerð heild, borgin París, og hins vegar nátt-
úruleg heild, eldstöðin Askja. Mér finnst ég aldrei
hafa skynjað gífurlega krafta náttúrunnar jafn
sterkt og í Öskju. Ég varð hugfanginn“
Hvað segir þessi reynsla okkur?
„Það er oft talað um að við eigum landið en mér
finnst miklu frekar að Ísland eigi okkur. Það sem
gerir okkur að Íslendingum er landið. Við erum
Íslendingar fyrst og fremst af því að við búum á Ís-
landi. Og þannig geta útlendingar komið til lands-
ins og orðið Íslendingar. Það sem ég hef verið að
reyna að opna augu fólks fyrir er það að samband
okkar við landið er af andlegum toga. Ég held þér
að segja að þessi andlega reynsla sé miklu algeng-
ari en við gerum okkur grein fyrir. Fólk er sífellt að
verða fyrir áhrifum frá náttúrunni. Hún er alltaf að
snerta okkur og virkja tilfinningar okkar. Líkt og
veðrið gerir. Það hefur allt áhrif á það hvernig við
hugsum.“
Best að hugsa undir berum himni
Þú byrjaðir mjög snemma á þínum ferli, löngu áður
en þú kemur í Öskju og verður fyrir þessari andlegu
upplifun, að velta fyrir þér sambandi mannsins við
náttúruna.
„Já, mér hefur alltaf fundist að maður hugsi best
undir berum himni. Þá verða hlutföllin í veru-
leikanum réttari en þegar maður er lokaður inni í
húsum. Það er eitthvað mjög spennandi við náttúr-
una. Náttúran er það sem við erum að hugsa um
strax og við vöknum til lífs og tilveru og öll heim-
speki og hugsun kemst ekki hjá því að glíma við
hana. En það má ekki gleyma því að náttúran getur
líka verið óhugnanleg og við Íslendingar höfum alla
tíð óttast hana, sem er fullkomlega eðlilegt. Það væri
óskynsamlegt að óttast ekki náttúruöflin því þau eru
óútreiknanleg þrátt fyrir alla okkar þekkingu.“
Hálendið breytir hugsuninni
Í greininni „Náttúran í andlegum skilningi“ segir
þú að eitt helsta hlutverk siðmenningar okkar sé að
standa vörð um þau verðmæti sem náttúran felur í
sér. Hvernig stöndum við Íslendingar okkur í því?
„Ég held að við höfum því miður ekki staðið okk-
ur nógu vel í því. Við höfum stundum farið offari í
því að umskapa og breyta náttúrunni og við ættum
að fara mun varlegar í umgengni við náttúruna, t.d.
virkjanaframkvæmdir. Okkar mikilvægasta auð-
legð eru víðernin og það þarf svo lítið til að spilla
þeim. Það þarf ekki nema einn rafmagnsstaur til að
þessar óbyggðir hætti að vera óbyggðir.“
Stundum hefur maður á tilfinningunni að það verði
að vera eitthvað fagurfræðilega viðurkennt fyrir-
bæri á svæðinu til að það sé metið að verðleikum. Að
hálendið gjaldi fyrir það að þar sé „ekkert”?
„Já, og ég held að þetta sé mikill misskilningur.
Náttúran er stórkostleg hvar og hvernig sem á hana
er litið. Menn hugsa öðruvísi á hálendinu, allavega
þeir sem leyfa sér að skynja hálendið. Það breytir
hugsuninni og þegar þú kemur aftur til byggða þá
ertu kannski dálítið önnur manneskja, með óbyggð-
irnar í þér.“
„Það er mjög auðvelt að halda því fram að við
höfum siðferðilegar skyldur gagnvart dýrum en
ég held því fram að við höfum líka siðferðilegar
skyldur gagnvart landi. Landið leggur grunninn
að lífinu og það væri ekkert líf ef ekki væri fyrir
moldina, grjótið, eldfjöllin og öskuna. Þess vegna
á maður aldrei að skemma land. Það er umgjörð og
forsenda lífsins. Hér má nefna efnistöku sem hefur
víða stórspillt landinu“
Að nýta eða njóta
Í greininni „Að nýta og að njóta“ hugleiðir þú af-
stöðu okkar til náttúrunnar og segir meðal annars
að skilningur okkar á náttúrunni og öflum hennar
eigi að ráða því hvernig við nýtum okkur gæði
hennar.
„Við byrjum á því að skynja náttúruna og nema
hana og leggjum þannig grunn að því hvernig við
nýtum hana. Áður en við nýtum náttúruna verðum
við að rannsaka hana og leggja mat á gildi hennar.
Þetta er grundvallaratriði. Við megum ekki festast
í harðri nýtingarafstöðu sem iðulega ræðst af
skammtímahagsmunum. En eftir að við fórum að
nýta okkur auðlindir náttúrunnar í ríkari mæli þá
hefur þessi afstaða því miður fengið of mikið vægi.
Sem betur fer eru margir Íslendingar að vakna til
vitundar um það hvað þessi afstaða er skaðleg.“
Er það? Það virðast ansi margir telja það vera hag-
kvæmara að nýta landið frekar en að njóta þess?
„Verkefni okkar er að samræma þessi sjónarmið.
Sem dæmi eigum við að nýta víðerni hálendisins
fyrir ferðalanga sem sækjast umfram allt eftir að
kynnast óbyggðunum og töfrum þeirra. En við
höfum að mínum dómi skyldur gagnvart landinu
sjálfu og við eigum alls ekki að breyta því nema við
höfum mjög ríka ástæðu til þess. Við höfum ekki
leyfi til að nýta allar þær auðlindir sem landið býður
upp á vegna komandi kynslóða. Verndun hálendis-
ins er vafalaust eitt almikilvægasta verkefni sem við
Íslendingar stöndum frammi fyrir.“
Verðum að leggja rækt við samúðargáfuna
Í greininni um anda og óbyggðir veltir þú upp mögu-
legri gagnrýni á þessar vangaveltur þínar um nátt-
úruna, um þinn andlega skilning á henni sem tengist
dulvitund, töfrum og trúarbrögðum miklu frekar en
vísindum. Einhverjum kann af finnst þessar pælingar
um andlega upplifun af náttúrunni vera „róman-
tískar röksemdarfærslur gegn hinum mengaða sið-
menntaða heimi”?
„Við höfum í reynd tvenns konar skilning á nátt-
úrunni. Annars vegar þennan vísindalega og tækni-
lega skilning. En sá skilningur veitir okkur ekki
innsýn í raunverulegt samband okkar við náttúr-
una. Hins vegar er hinn andlegi skilningur þar sem
við tengjumst náttúrunni tilfinningalega. Okkar
verkefni er að rækta þennan andlegan skilning.“
Hver ætli sé besta leiðin til þess?
„Aristóteles kallaði andann sem tekur á móti
veruleikanum „nous pathetikos“, sem á við hug
okkar að svo miklu leyti sem hann er móttækilegur
fyrir því að skynja. Á íslensku hefur þetta verið þýtt
sem samúðargáfa. Samúðargáfan ásamt sköpunar-
gáfunni, nous poetikos, eru okkar grundvallargáf-
ur. Maður nemur veruleikann, fær hann inn í sig, og
svo þarf að vinna úr þeirri skynjun til að skapa.
Sköpunargáfunni hefur verið gert mjög hátt und-
ir höfði undanfarið og það er allt gott og blessað,
en ég tel að nú þurfum við að leggja meiri rækt við
samúðargáfuna. Það gerum við með því að leggja
miklu meiri rækt við það að kynna náttúruna og
undur hennar fyrir börnum okkar.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Að nýta eða njóta auðlinda landsins
Í nýútgefnu
greinasafni sínu,
Náttúrupælingar,
hugleiðir Páll
Skúlason heim-
spekiprófessor
og fyrrverandi
háskólarektor
samband okkar
við náttúruna. Páll
segir tengsl okkar
við landið vera af
andlegum toga,
að óbyggðir geti
virkjað tilfinningar
okkar og breytt
hugsuninni. Þetta
séu auðlindir sem
mikilvægt sé að
vernda og kenna
komandi kyn-
slóðum að njóta.
Páll Skúlason gaf nýverið út greinasafnið Náttúrupælingar. Páll segir samband okkar við náttúruna vera fyrst og fremst af andlegum toga. Náttúran sé alltaf að snerta okkur og virkja
tilfinningar okkar, sem hafi áhrif á það hvernig við hugsum.
44 viðtal Helgin 12.-14. desember 2014