Fréttatíminn - 12.12.2014, Page 70
70 heimili Helgin 12.-14. desember 2014
É
g segi oft að ég sé með ástríðu fyrir of
mörgum hlutum en mér finnst til dæm-
is gaman að elda, baka, stunda jóga og
aðra hreyfingu, hugsa um heilsuna, búa
til mínar eigin snyrtivörur og prófa nýja
hluti.“ Gyða er mjög mikið jólabarn og
er aðventan hennar uppáhalds tími.
Heimagerðar
jólagjafir
Útbýr heimagerðar jólagjafir
fyrir vini og ættingja
Gyða ákvað að útbúa sínar eigin
jólagjafir þegar hún varð uppi-
skroppa með hugmyndir að jóla-
gjöf fyrir afa og ömmu sem eiga
allt. „Mig langaði að gefa þeim
eitthvað persónulegt frá mér. Með
því að útbúa eitthvað sjálf fæ ég
útrás fyrir þessa miklu sköpunar-
þörf sem ég er með og finnst fátt
skemmtilegra en að dunda mér
heima og föndra fallegar gjafir
í desember. Svo er það líka gott
sparnaðarráð, því maður getur oft
gefið miklu fallegri og veglegri
gjafir þegar maður býr þær til
sjálfur, heldur en ef maður myndi
eyða sama pening í að kaupa
gjöf tilbúna úr búð,“ segir Gyða.
„Heimatilbúnar gjafir eru auk
þess einlægar og gefa þau skila-
boð að þér þyki vænt um þann sem
þú ert að gefa gjöfina, þar sem þú
lagðir vinnu þína í að búa hana
til. Mörgum finnst líka alls ekki
gaman að fara í búðir fyrir jólin, og
þá er hin fullkomna lausn að búa til
gjafirnar sjálfur,“ bætir hún við.
Listrænir hæfileikar ekki
nauðsynlegir
Gyða segir að heimatilbúnar gjafir
þurfi alls ekkert að vera flóknar
eða erfiðar í framkvæmd, heldur
sé það hugurinn sem gildi. „Mér
finnst persónulega alltaf mjög
gaman að fá eitthvað sem einhver
hefur gert sjálfur og vita að við-
komandi hafi lagt vinnu og ást í
að búa til eitthvað handa mér. Þú
þarft heldur ekkert að vera neinn
listamaður til að geta búið til fal-
legar gjafir, heldur snýst þetta
bara um að búa til eitthvað sem
þér finnst fallegt og gaman að
gefa. Að auki er þetta líka tilvalið
tækifæri fyrir foreldra til að setjast
niður með börnunum sínum á að-
ventunni og búa til gjafir handa
ömmu og afa, eða hverjum sem er,
og eiga notalega stund.“
„Það er um að gera að leyfa hug-
myndafluginu að leika lausum hala
á þessum árstíma, og nýta hug-
myndirnar í að búa til fallegar gjaf-
ir,“ segir Gyða og hér deilir hún
með lesendum fjórum mismunandi
hugmyndum af heimagerðum jóla-
gjöfum sem auðvelt er að útbúa.
Jólaskrúbbur
Heimatilbúinn líkamsskrúbbur
er fullkomin fyrir mömmu,
ömmu, bestu vinkonu eða frænk-
ur. Gyða býr til líkamsskrúbba
yfir allt árið fyrir sjálfa sig og er
því alltaf að prófa sig áfram með
skemmtilegar uppskriftir. „Fyrir
jólin bjó ég til sérstakan jóla-
skrúbb, sem bæði tekur dauðar
húðfrumur og mýkir húðina, og
er með yndislegri jólalykt.“ Gott
er að geyma skrúbbinn í fallegri,
þéttri krukku sem er svo hægt
að skreyta með fallegri slaufu.
„Mér hefur líka fundist skemmti-
leg hefð að láta uppskriftina af
skrúbbnum fylgja með á litlum
miða, svo sá sem fær hann geti
sjálfur búið til meira ef honum
líkar hann.“
Heimagerður jólaskrúbbur:
1 dl kókosolía
180 gr púðursykur
1 msk brúnkökukrydd eða jólakrydd að
eigin vali
1 tsk kanill
Aðferð: Hitið kókosolíuna að-
eins áður en púðursykurinn er
hrærður saman við. Öllu er svo
hrært saman og látið kólna áður
en krukkunni er lokað. Hægt er
að kaupa sérstakt brúnkökuk-
rydd út í búð en í því er blanda af
kanil, negul og engifer. Til að fá
extra jólalykt er gott að bæta við
örlítið meira af kanil.
Heimaföndrað kerti
Hægt er að útfæra heimaföndrað
kerti á marga vegu. „Það er mikið
úrval af pappír og myndum í fönd-
urbúðum sem hægt er að líma á
kerti og gera þau eftir höfði hvers
og eins, en á mitt kerti nota ég jóla-
servíettu og klippi út þær myndir
sem mig langar að nota,“ segir
Gyða. Servíetturnar eru svo límdar
á kertið með sérstöku kertalími
sem er með brunavörn, og fæst í
föndurbúðum.
Heitt súkkulaði – gjafasett
Gjafasett sem inniheldur allt sem
þarf til að gera hið fullkomna
heita súkkulaði. Í settinu er fal-
legur bolli, lítil sleif með súkkul-
aði til að hræra í bollanum, krukka
með sykurpúðum og falleg rör.
Það eina sem sá sem fær gjöfina
þarf að gera er að bæta við heitri
mjólk. „Gjöfin er því ekki bara
efnisleg heldur líka svolítið eins og
gjafabréf á góða slökun fyrir við-
komandi yfir heitum kakóbolla.“
Skeiðina með súkkulaðinu útbjó
Gyða sjálf, en hún keypti litla sleif
og bræddi súkkulaði í móti með
skeiðinni ofan í. Úr verður súkkul-
aðipinni, sem bráðnar svo í heitri
mjólk og verður að heitu súkkul-
aði.“ Hægt er að útfæra gjafasettið
á ýmsa vegu. Til dæmis er hægt að
bæta við boxi með uppáhalds smá-
kökum viðkomandi eða einhverju
öðru sem manni dettur í hug.
Heimagert konfekt
„Fjórða og síðasta hugmyndin mín
var að búa til konfekt. Í fyrra bjó
ég til nokkra slíka kassa, en hver
þeirra var með níu molum með
mismunandi fyllingum í. Kassarn-
ir þurfa alls ekkert að vera flóknir.
Það er til dæmis hægt að hafa bara
fáeinar tegundir sem þú veist að
sá sem þú ætlar að gefa kassann
finnst góðar. Það er mjög falleg
leið til að láta einhvern vita að þú
hugsir um hann og sýnir honum að
þú vitir hvernig súkkulaði honum
finnst best,“ segir Gyða.
Erla María Markúsdóttir
erlamaria@frettatiminn.is
Gyða: Gyða Dröfn er mikið jólabarn og finnst fátt skemmtilegra en að dunda sér við að útbúa jólagjafir á aðventunni. Mynd/Hari
Jólaskrúbbur: Líkamsskrúbbur með
góðri jólalykt. Mynd/Gyða Dröfn
Jólakonfektkassi (án texta): Gullfallegir
heimagerðir konfektmolar. Mynd/Gyða
Dröfn
Heitt súkkulaði sett: Gyða bræðir
súkkulaðið og setur í mót með tréskeið.
Mynd/Gyða Dröfn
Jólakerti: Hægt er nota alls konar serví-
ettur við kertagerðina. Mynd/Gyða Dröfn
Nánar um sölustaði á facebook
Höfuðhandklæðin frá Sif eru
saumuð úr gæðabómull. Létt og
þægileg í notkun og henta jafnt
síðu sem stuttu hári og dömum
á öllum aldri.
Fáanleg í 12 litum
fonix.is • Hátúni 6a • 105 Reykjavík • S. 552 4420
Heimilistæki
HEIMILISTÆKJADAGAR 20% AFSLÁTTUR