Læknablaðið - 15.06.2007, Qupperneq 3
RITSTJÓRNARGREINAR
467 Langvinn lungnateppa: Hinn duldi faraldur
Óskar Einarsson
469 Lyfjaskírteini
Sigurður Thorlacius
FRÆRIGREINAR
471 Hversu algeng er langvinn lungnateppa?
- íslensk faraldsfræðileg rannsókn
Bryndís Benediktsdóttir, Gunnar Guðmundsson,
Kristín Bára Jörundsdóttir, William Vollmer, Pórarinn Gíslason
Stofnuð hafa verið alþjóðleg samtök sem hafa það markmið að staðla aðferðir til
að meta og bera saman algengi langvinnrar lungnateppu og helstu áhættuþætti.
Jafnframt er stefnt að því beita bestu aðferðum til þess að meta áhrif sjúkdóms-
ins á lífsgæði, daglegt líf, öndunarfæraeinkenni og notkun heilbrigðisþjónustu.
Á þennan hátt er vonast til þess að unnt reynist að gefa heildstæða mynd af út-
breiðslu og áhrifum. í greininni er skýrt frá niðurstöðum rannsóknar sem gerð
var nýverið á algengi langvinnrar lungnateppu á Stór-Reykjavíkursvæðinu þar
sem ofangreindum stöðluðu aðferðum var beitt.
479 Geislagerlabólga vegna gleymdrar lykkju.
Sjúkratilfelli og yfirlit um sjúkdóminn
Ragnar Freyr Ingvarsson, Lárus Jónsson, Hafsteinn Sæmundsson,
Magnús Gottfreðsson
Geislagerlabólga hefur verið þekkt síðan um lok 19. aldar. Fyrir tilkomu sýkla-
lyfja var hún tíð, en síðan hefur dregið verulega úr algengi. Sýkillinn er oftast
Actinomyces israelii, getur lagst á alla vefi og virðir ekki vefjamörk. Birtingarmynd
sýkingar getur verið áþekk krabbameini og greining oft ekki ljós fyrr en eftir
aðgerð og vefjarannsókn. Hér er lýst sjúkratilfelli þar sem sjötug kona fékk
geislagerlabólgu í leg og eggjastokka vegna lykkju sem gleymst hafði innvortis
í rúmlega fjóra áratugi. Konan var læknaðist eftir töku legs og eggjastokka úr
henni, ásamt penicillíngjöf í hálft ár.
487 Sjálfsprottinn innankúpu lágþrýstingur
- sjúkratilfelli og umræða
Ólafur Á. Sveinsson, Albert Páll Sigurðsson, Ólafur Kjartansson
Sjálfsprottinn innankúpu lágþrýstingur er sjaldgæf og líklega vangreind orsök
höfuðverkja. Sjúkdómurinn hefur sérkennandi klínískt og myndrænt útlit og
svarar meðferð vel þegar rétt staðsetning lekans hefur verið greind. I þessu
sjúkratilfelli sást hefðbundin dreifð skuggaefnisupptaka í heilahimnum sem náði
niður á hálsmænu. Hins vegar var fjórða heilahólf ekki samhverft og skuggaefn-
isupptaka sást neðst og hægra megin í fjórða heilahólfi. Þetta vakti grun höfunda
um að æðuflækja hefði togast niður. Ekki er vitað til þess að slíkri breytingu hafi
verið lýst áður.
Læknablaðið
THE ÍCELANDIC MEDICALIOURNAL
www. laeknabladid. is
6. tbl. 93. árg. júní 2007
Aðsetur
Hlíðasmára 8, 201 Kópavogi
Útgefandi
Læknafélag íslands
Læknafélag Reykjavíkur
Símar
564 4104 -564 4106 (fax)
Ritstjórn
Jóhannes Björnsson,
ábm. og ritstjóri
Bryndís Benediktsdóttir
Engilbert Sigurðsson
Karl Andersen
Tómas Guðbjartsson
Þóra Steingrímsdóttir
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Blaðamaður
Hávar Sigurjónsson
havar@lis.is
Auglýsingastjóri og ritari
Dögg Árnadóttir
dogg@lis.is
Umbrot
Sævar Guðbjörnsson
saevar@lis.is
Upplag
1700
Áskrift
6.840,- m. vsk.
Lausasala
700,- m. vsk.
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt
til að birta og geyma efni
blaðsins á rafrænu formi,
svo sem á netinu.
Blað þetta má eigi afrita
með neinum hætti, hvorki
að hluta né í heild án leyfis.
Prentun, bókband og pökkun
íslandsprent ehf.
Steinhellu 10
221 Hafnarfirði
ISSN: 0023-7213
493 Tilfelli mánaðarins
Anna Gunnarsdóttir,Tómas Guðbjartsson
Læknabi.aðið 2007/93 463