Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.06.2007, Blaðsíða 35

Læknablaðið - 15.06.2007, Blaðsíða 35
UMRÆÐA & FRÉTTIR / AF SJÓNARHÓLI STJÓRNAR LÍ Lækníngaminjasafn íslands Á aðalfundi Læknafélags Reykjavíkur 29. mars sl. var samþykkt ályktun er heimilaði stjórn félags- ins að leggja allt að 25 milljónir króna til uppbygg- ingar lækningaminjasafns að uppfylltum ákveðn- um skilyrðum. Ályktunin var svohljóðandi: Aðalfundur Lœknafélags Reykjavíkur, haldinn 29. mars 2007, heimilar stjórn félagsins að leggja allt að 25 millj- ónir króna til byggingar lœkningaminjasafns í Nesi við Seltjörn. Upphœðin verði aldrei hœrri en sú upphœð, sem Lœknafélag íslands kann að teggja fram í sama skyni. Framlagið er háð því skilyrði, að Seltjarnarnesbœr gang- ist fyrir uppbyggingu og rekstri lœkningaminjasafnsins með þátttöku ríkissjóðs lögum samkvœmt. Forsaga málsins er sú að Jón heitinn Steffensen, prófessor emeritus, arfleiddi Læknafélag íslands að umtalsverðum hluta eigna sinna til uppbygg- ingar lækningaminjasafns í Nesi við Seltjörn árið 1990. í erfðaskrá sinni fól Jón Læknafélagi íslands umsjón þessara eigna og ábyrgð á því að þær kæmu að þeim notum sem til var ætlast. Málið hefur síðan verið til umræðu og athugunar og árið 1997 var gengist fyrir opinni hönnunarsamkeppni um nýja safnbyggingu. Árið 2000 keypti Læknafélag Islands húsnæði á Seltjarnarnesi að Bygggörðum 7 og afhenti ríkinu að gjöf í þeim tilgangi að bjarga safnmunum frá skemmdum í ónýtum útihúsum í Nesi. Þá þegar var ljóst að um bráðabirgðagjörn- ing væri að ræða og undanfara lækningaminjasafns eins og þáverandi menntamálaráðherra ítrekaði við afhendingu gjafarinnar. Verulegur skriður komst loks á málið árið 2006 þegar Alþingi heim- ilaði vegna breytinga á skipulagi Seltjarnarness, að fyrrnefnd fasteign að Bygggörðum 7 yrði seld og söluandvirðinu ráðstafað til að reisa safnbygg- ingu fyrir Lækningaminjasafn Islands í námunda við Nesstofu á Seltjarnarnesi. Söluandvirði þeirrar eignar er nú áætlað um 120 milljónir króna. Á undanförnum vikum hefur tekist samkomulag um stofnkostnað, byggingu og rekstur húsnæðis fyrir Lækningaminjasafn íslands og menningartengda starfsemi á milli Læknafélags íslands, Læknafélags Reykjavíkur, menntamálaráðuneytis, Seltjarnar- nesbæjar og Þjóðminjasafns Islands. Heildarkostn- aður við hina nýju safnbyggingu er áætlaður um 345 milljónir króna. Gert er ráð fyrir 25 milljón króna framlagi frá LR með fyrirvörum eins og fyrr er getið og 25 milljón króna framlagi frá Læknafélagi Islands með fyrirvara um samþykki aðalfundar sem hald- inn verður að hausti. Seltjarnarnesbær leggur til lóð undir safnið við Nesstofu og bærinn og rík- issjóður munu fjármagna þær 295 milljónir sem á vantar. Framlag læknafélaganna er endanlegt og munu frávik í byggingarkostnaði ekki breyta þeim. Seltjarnarnesbær mun bera ábyrgð á byggingu safnsins og annast stjórn og rekstur þess eftir að starfsemin hefst í nýju húsnæði. Safninu er ætlað að vera miðstöð safnastarfsemi á sviði lækna- og heil- brigðisvísinda og bera ábyrgð á söfnun, varðveislu, rannsóknum og miðlun á þeim munum og minjum sem snerta sögu lækninga á Islandi. I safnstjórn munu sitja tveir menn tilnefndir af Læknafélagi íslands, einn af Þjóðminjasafni og tveir án tilnefn- ingar samkvæmt ákvörðun Seltjarnarnesbæjar. Hvað varðar fjárframlög læknafélaganna er ljóst að hér er um verulegar fjárhæðir að ræða. Ég tel að þessu fé sé vel varið. Það er til í sjóðum félaganna og þessi ráðstöfun mun ekki hafa áhrif á starfsemi þeirra. Öllum má ljóst vera mikilvægi þess að hlúa að sögu og menningu læknisfræðinnar á íslandi. Þá er ekki síður mikilvægt að efla vöxt og viðgang læknastéttarinnar á Islandi í nútíð og framtíð. Lækningaminjasafn íslands yrði mikilvæg- ur vettvangur þessa verkefnis. Útsýni yfir Gróttu. Arkitektastofan YRKI hannaði safnið. Sigurður Böðvarsson sigurdbo@landspitali.is Höfundur er sérfræðingur í lyf- og krabbameinslækningum Landspítala og Læknasetri. í pistlunum Af sjónarhóli stjórnar birta stjórnarmenn LÍ sínar eigin skoðanir en ekki félagsins. Læknablaðið 2007/93 495
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.