Læknablaðið - 15.06.2007, Blaðsíða 35
UMRÆÐA & FRÉTTIR / AF SJÓNARHÓLI STJÓRNAR LÍ
Lækníngaminjasafn íslands
Á aðalfundi Læknafélags Reykjavíkur 29. mars
sl. var samþykkt ályktun er heimilaði stjórn félags-
ins að leggja allt að 25 milljónir króna til uppbygg-
ingar lækningaminjasafns að uppfylltum ákveðn-
um skilyrðum. Ályktunin var svohljóðandi:
Aðalfundur Lœknafélags Reykjavíkur, haldinn 29. mars
2007, heimilar stjórn félagsins að leggja allt að 25 millj-
ónir króna til byggingar lœkningaminjasafns í Nesi við
Seltjörn. Upphœðin verði aldrei hœrri en sú upphœð, sem
Lœknafélag íslands kann að teggja fram í sama skyni.
Framlagið er háð því skilyrði, að Seltjarnarnesbœr gang-
ist fyrir uppbyggingu og rekstri lœkningaminjasafnsins
með þátttöku ríkissjóðs lögum samkvœmt.
Forsaga málsins er sú að Jón heitinn Steffensen,
prófessor emeritus, arfleiddi Læknafélag íslands
að umtalsverðum hluta eigna sinna til uppbygg-
ingar lækningaminjasafns í Nesi við Seltjörn árið
1990. í erfðaskrá sinni fól Jón Læknafélagi íslands
umsjón þessara eigna og ábyrgð á því að þær kæmu
að þeim notum sem til var ætlast. Málið hefur
síðan verið til umræðu og athugunar og árið 1997
var gengist fyrir opinni hönnunarsamkeppni um
nýja safnbyggingu. Árið 2000 keypti Læknafélag
Islands húsnæði á Seltjarnarnesi að Bygggörðum 7
og afhenti ríkinu að gjöf í þeim tilgangi að bjarga
safnmunum frá skemmdum í ónýtum útihúsum í
Nesi. Þá þegar var ljóst að um bráðabirgðagjörn-
ing væri að ræða og undanfara lækningaminjasafns
eins og þáverandi menntamálaráðherra ítrekaði
við afhendingu gjafarinnar. Verulegur skriður
komst loks á málið árið 2006 þegar Alþingi heim-
ilaði vegna breytinga á skipulagi Seltjarnarness,
að fyrrnefnd fasteign að Bygggörðum 7 yrði seld
og söluandvirðinu ráðstafað til að reisa safnbygg-
ingu fyrir Lækningaminjasafn Islands í námunda
við Nesstofu á Seltjarnarnesi. Söluandvirði þeirrar
eignar er nú áætlað um 120 milljónir króna. Á
undanförnum vikum hefur tekist samkomulag um
stofnkostnað, byggingu og rekstur húsnæðis fyrir
Lækningaminjasafn íslands og menningartengda
starfsemi á milli Læknafélags íslands, Læknafélags
Reykjavíkur, menntamálaráðuneytis, Seltjarnar-
nesbæjar og Þjóðminjasafns Islands. Heildarkostn-
aður við hina nýju safnbyggingu er áætlaður um
345 milljónir króna.
Gert er ráð fyrir 25 milljón króna framlagi frá
LR með fyrirvörum eins og fyrr er getið og 25
milljón króna framlagi frá Læknafélagi Islands
með fyrirvara um samþykki aðalfundar sem hald-
inn verður að hausti. Seltjarnarnesbær leggur til
lóð undir safnið við Nesstofu og bærinn og rík-
issjóður munu fjármagna þær 295 milljónir sem á
vantar. Framlag læknafélaganna er endanlegt og
munu frávik í byggingarkostnaði ekki breyta þeim.
Seltjarnarnesbær mun bera ábyrgð á byggingu
safnsins og annast stjórn og rekstur þess eftir að
starfsemin hefst í nýju húsnæði. Safninu er ætlað að
vera miðstöð safnastarfsemi á sviði lækna- og heil-
brigðisvísinda og bera ábyrgð á söfnun, varðveislu,
rannsóknum og miðlun á þeim munum og minjum
sem snerta sögu lækninga á Islandi. I safnstjórn
munu sitja tveir menn tilnefndir af Læknafélagi
íslands, einn af Þjóðminjasafni og tveir án tilnefn-
ingar samkvæmt ákvörðun Seltjarnarnesbæjar.
Hvað varðar fjárframlög læknafélaganna er
ljóst að hér er um verulegar fjárhæðir að ræða.
Ég tel að þessu fé sé vel varið. Það er til í sjóðum
félaganna og þessi ráðstöfun mun ekki hafa áhrif
á starfsemi þeirra. Öllum má ljóst vera mikilvægi
þess að hlúa að sögu og menningu læknisfræðinnar
á íslandi. Þá er ekki síður mikilvægt að efla vöxt
og viðgang læknastéttarinnar á Islandi í nútíð og
framtíð. Lækningaminjasafn íslands yrði mikilvæg-
ur vettvangur þessa verkefnis.
Útsýni yfir Gróttu. Arkitektastofan YRKI hannaði safnið.
Sigurður
Böðvarsson
sigurdbo@landspitali.is
Höfundur er
sérfræðingur í lyf- og
krabbameinslækningum
Landspítala og Læknasetri.
í pistlunum Af sjónarhóli
stjórnar birta stjórnarmenn
LÍ sínar eigin skoðanir en
ekki félagsins.
Læknablaðið 2007/93 495