Læknablaðið - 15.06.2007, Side 7
RITSTJÓRNARGREiniAR
Langvinn lungnateppa:
Hinn duldi faraldur
Langvinn lungnateppa, ásamt æðasjúkdómum og
lungnakrabbameini, er einn meginfylgikvilli reykinga-
manna en jafnframt sá sem minnst hefur verið í sviðs-
ljósinu. Það var ekki fyrr en um miðja síðustu öld að
sjúkdómnum var fyrst lýst í þeirri mynd sem nú hefur
haldist: langvinnrar berkjubólgu og lungnaþembu (1).
Undir lok síðustu aldar hófst gullvinna GOLD: Global
Initiative of Obstructive Lung Disease. Þannig voru
skilgreiningar og alþjóðaleiðbeiningar um greiningu
og meðferð langvinnrar lungnateppu samhæfðar (2).
Margt benti til að hér væri á ferðinni eitt af helstu heil-
brigðisvandamálum nútímans, en upplýsingar skorti
varðandi umfang sjúkdómsins. Því var hrundið af stað
alþjóðlegri vinnu við að kortleggja algengi sjúkdómsins
undir því djarfa nafni BOLD: Burden of Obstructive
Lung Disease. Niðurstöður íslenska hluta BOLD-rann-
sóknarinnar líta nú dagsins ljós í Lœknablaðinu (3).
Sú niðurstaða íslenska BOLD-hópsins að algengi
langvinnrar lungnateppu reynist 18% meðal þeirra
sem eru eldri en 40 ára á höfuðborgarsvæðinu vekur
mesta athygli. Þetta er umtalsvert hærra algengi en
áður var álitið. Skýring þessa liggur í því að BOLD-
vinnan styðst við notkun blástursmælinga til grein-
ingar en fyrri rannsóknir litu einungis á einkenni
langvinnrar lungnateppu. Höfundar gefa jafnframt
til kynna að langvinn lungnateppa sé vangreind af
læknum á höfuðborgarsvæðinu en einungis um 7,4%
karla og 9,3% kvenna höfðu greinst með langvinna
lungnateppu. Þegar litið er á hóp stórreykingamanna
(>20 pakkaár) eru tölurnar sláandi: þriðjungur þeirra
uppfyllir GOLD-skilmerki lungnateppu en einungis
11,3% karla og 18,7% kvenna höfðu fyrri greiningu
sjúkdómsins. Höfundar gera þessum niðurstöðum ekki
skil í umræðu sinni. Skýringa gæti verið að leita í næmi
blástursmælinga til greiningar einkenna frá öndunar-
færum og að þær séu almennt vannýttar. Niðurstöður
rannsóknarinnar geta hins vegar verið villandi þar
sem ekki kemur fram hvort sjúklingar höfðu leitað
til læknis vegna einkenna sinna og á þann hátt verið
vangreindir. Vel getur hugsast að reykingamenn með
þrálát einkenni líti á þau sem sjálfsögð og því ekki til-
efni til kvartana. Fróðlegt væri að kanna hvort að þessu
sé öðruvísi háttað utan höfuðborgarsvæðisins.
Erfitt er að draga víðtækar ályktanir af niðurstöð-
um rannsóknarinnar varðandi aldurs- og kynjaskipt-
ingu sjúkdómsins eða tengsl við reykingar. Það vekur
athygli að ekki verður vart aukins algengi sjúkdómsins
fyrr en hjá þeim sem reykt hafa meir en 20 pakkaár
en höfundar útskýra þessa niðurstöðu ekki nánar.
Þeir benda hins vegar á að GOLD viðmiðunargildi
blástursrannsókna hjá eldri einstaklingum eru til
endurskoðunar en þau eru hugsanlega talin ofmeta
skerðingu lungnastarfsemi. I rannsóknarhópnum 70
ára og eldri eru 129 einstaklingar, eða 17% hópsins, og
algengi langvinnrar lungnateppu er þar hæst, eða 40-
45%. Þetta háa hlutfall kemur á óvart en gæti jafnframt
skekkt meginniðurstöður rannsóknarinnar ef um falsk
jákvæða greiningu er að ræða vegna þess að notuð eru
of næm viðmiðunargildi.
Ég sakna umræðu varðandi þann hóp sem greinist
með langvinna lungnateppu þrátt fyrir að hafa aldrei
reykt. Þannig uppfylla 12,6% karla og 15,2% kvenna
GOLD-skilmerkjum. Hluti þessa hóps gæti verið ein-
staklingar með atvinnutengda lungnateppu en einnig
sjúklingar með astma sem ekki hafa fengið tilhlýðilega
greiningu ellegar meðferð. Svörun við berkjuvíkkandi
lyfjagjöf getur þannig í upphafi verið ófullnægjandi til
að greina á milli astma og langvinnrar lungnateppu.
Viðeigandi bólguhamlandi astmameðferð getur síðar
endurvakið berkjuvíkkandi áhrif beta-örvunarefna.
A hinn bóginn skarast meingerð og meðferð þessara
sjúkdóma og þrálátur astmi getur vissulega leitt til
viðvarandi skerðingar blástursgilda. Að lokum er vax-
andi þekking á skaðlegum áhrifum óbeinna reykinga,
allt frá fósturstigi til fullorðinna, á lungnaþroska og
lungnastarfsemi. Hugsanlegt er að næmir einstaklingar
þrói þannig langvinna lungnateppu án þess að reykja
sjálfir (4).
Samkvæmt upplýsingum á vef Landlæknis-
embættisins eru árlega um 5000 legudagar á sjúkrahús-
um hér á landi vegna langvinnrar lungnateppu sem jafn-
framt er fimmta algengasta dánarorsökin bæði meðal
karla og kvenna. Þó lungnateppa geti þróast samfara
loftmengun, í kjölfar sýkinga ellegar vegna loftborinna
áreita þá hafa reykingar reynst stærsti orsakavaldurinn.
Álag á heilbrigðisþjónustuna eykst sífellt samfara því
að stærri árgangar reykingamanna eldast. Lengi vel
var talið að einungis um 15% reykingamanna fengi
langvinna lungnateppu. Nú er ljóst að jafnvel 35-50%
reykingamanna þróa með sér skerta lungnastarfsemi
á lffsleiðinni ef stuðst er við blástursmælingar (5).
Nýlegar tölur frá könnun Capacent Gallup á vegum
Lýðheilsustöðvar sýna að 22,1 % íslensku þjóðarinnar
reykir, 32,1% eru fyrrum reykingamenn en 45,8%
hafa aldrei reykt. Helmingur íslensku þjóðarinnar er
því í aukinni áhættu á reykingatengdum fylgikvillum.
Niðurstöður BOLD-hópsins eru þörf áminning um
þessa áhættu og hvatning til frekari tóbaksvarna. Það
er vel við hæfi á þeim tímamótum þegar reykingabann
er innleitt á veitingastöðum hér á landi.
Heilmildir
1. Oswald NC, Harold JT, Martin WJ. Clinical pattern of chronic
bronchitis. Lancet 1953; 265:639-43.
2. Pauwels RA, Buist AS, Calverley PM, Jenkins CR, Hurd SS. Global
strategy for the diagnosis, management, and prevention of chronic
obstructive pulmonary disease. NHLBIAVHO Global Initiative for
Chronic Obstructive Lung Disease (GOLD) workshop summary.
Am J Resp Crit Care Med 2001; 163:1256-76.
3. Benediktsdóttir B, Guðmundsson G, Jörundsdóttir KB, Vollmer
W, Gíslason Þ. Hversu algeng er langvinn lungnateppa? Islensk
faraldsfræðirannsókn. Læknablaðið 2007; 93:471-7.
4. Gerbase MW, Schindler C, Zellweger JP, Kunzli N, Downs SH,
Brándli O, et al. Respiratory effects of environmental tobacco
exposure are enhanced by bronchial hyperreactivity. Am J Resp
Crit Care Med 2006; 174:1125-31.
5. Lpkke A, Lange P, Scharling H, Fabricius P, Vestbo J. Developing
COPD: a 25 years follow-up study of the general population.
Thorax 2006; 61:935-9.
Óskar Einarsson
oskare@landspitali. is
Chronic obstructivc lung
discasc: thc hiddcn cpidcmic
Consulting physician,
Division of Pulmonary
Medicine, Landspitali
University Hospital, Fossvogi
101 Reykjavík.
Óskar Einarsson er læknir
með sérmenntun í lyf- og
lungnalækningum við
Landspítala.
Læknablaðið 2007/93 467