Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.06.2007, Blaðsíða 51

Læknablaðið - 15.06.2007, Blaðsíða 51
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ÍÐORÐ 199 Hjákenni Paraneoplastic syndrome Sigríður Ólína Haraldsdóttir, lungnalæknir, sendi tölvupóst og sagðist vera að skrifa texta um lungnakrabbamein, þar sem meðal annars yrði fjallað um paraneoplastic syndrome. Islenskt heiti fannst ekki í íðorðasafni lækna. Undirritaður fletti þegar upp í tiltækum læknisfræðiorðabókum til að finna skilgreiningu eða lýsingu á fyrirbærinu. Eftir þá athugun varð til þessi almenna lýsing: Heild einkenna og teikna sem byggist á óbeinum og fjar- lœgum áhrifum œxlisvaxtar en ekki af staðbund- inni íferð eða útþenslu œxlisins eða meinvarpa frá því. Þær breytingar á eðlilegri líkamsstarfsemi, sem fram koma, geta stafað af því að æxlin fram- leiði lífrænt virk peptíð eða prótín eða komi af stað ónæmisviðbragði gegn boð- eða bygg- ingarefnum líffæra. Paraneoplastic Þetta lýsingarorð er búið til úr gríska forskeytinu para-, sem hefur ýmsar merkingar í hinum mis- munandi samsetningum þess: við hliðina á;hliðar-; nálœgt; hjá-; grenndar-; líkt; sýndar-; auka-; aðskil- inn; utan-; afbrigðilegur, og gríska lýsingarorðinu neopiastic: sem tilheyrir eða á við um œxli. Þetta má túlka þannig að fyrirbæri, sem lýst er sem paraneoplastic, sé, beint eða óbeint, til hliðar við, utan við eða aðskilið frá æxlisvextinum, sem það tengist. Einkenni frá fjarlægum stöðum ættu að geta fallið undir slíkt. Hjákenni Undirritaður setti fljótt fram þá hugmynd að tala um æxlisvaxtarheilkenni, sem yrði þá heiti á þessu fyrirbæri, hvað sem liði beinni orðhlutaþýðingu, svo sem hjá-, hliðar- eða utanæxlisheilkenni. Sigríði Ólínu líkaði þetta ekki nógu vel og kom á móti með tillögu að nýyrði: æxlishjákenni. Þetta er allrar athygli vert og er hér með lagt fram til umræðu og athugasemda, stuðnings eða gagnrýni. Benda má á að íslenska heitið heilkenni er búið til úr orðununt heild og einkenni (sjá Lœknablaðið 1995; 81:498). Remission Margrét Árnadóttir, nýrnalæknir, óskaði eftir umræðu um íslenskt heiti í stað latneska heitisins rcmissio. Nafnorð þetta er myndað úr forskeytinu re- (aftur-, endur-, til baka) og sagnorðinu mittere (senda, sleppa), þannig að remittere merkir: senda til baka, senda aftur, láta ganga til baka, draga úr, slaka á, hœtta við, láta af hendi. Heitið remissio er í læknisfræði notað 1. um það þegar dregur úr sjúkdómseinkennum, þegar sjúkdómsbati verður eða 2. um þann tíma sem slíkt gerist. Ensk-íslensk orðabók Arnar og Örlygs gefur nokkrar þýðingar á enska nafnorðinu remission: 1. eftirgjöf upp- gjöf. 2. sóttarhlé, þrautahlé, rénun. 3. fyrirgefning. íðorðasafn lækna gefur þýðingarnar: 1. léttir, linun. 2. sóttarhlé, sjúkdómshlé. Bati, afturbati Samkvæmt íslenskri orðabók Eddu merkir nafnorðið bati: afturbati, bötnun, betrun og nafnorðið afturbati merkir á sama hátt: bati (eftir veikindi). Hvorugt gefur til kynna fullkomna lækn- ingu, sbr. orðatiltækið fyrr bati en albati. Það gerir enska heitið remission ekki heldur. Undirritaður leggur því til að þessi orð, bati og afturbati, verði notuð um það þegar dregur úr sjúkdóms- einkennum eða þegar sjúkdómsbati verður. Því miður hefur orðið afturbati stundum fengið á sig neikvæðan blæ, en vonandi verður hægt að líta framhjá slíku. Á sama hátt verði talað um bata- eða afturbataskcið þegar vísað er til tímans þegar slíkt gerist. Partial remission Margrét var einnig að fást við heiti sem notuð eru til að aðgreina mismunandi mikinn bata, complete remission og partial remission. I þessum samsetn- ingum má tala um algjöran eða fullkominn bata eða afturbata og bata að hluta eða hlutabata. Hið lipra heiti albati kemur einnig til greina. Afturbati að hluta er þyngra í vöfum og einnig samsetningin hlutaafturbati. Föst fylgja Hildur Harðardóttir, kvensjúkdómalæknir, bað um endurskoðun á heitum sem lýsa meinvefja- fræðilegum tegundum fastrar fylgju. Hildur var ekki fyllilega sátt við eitt af þeim heitum sem birt eru í íðorðasafni lækna, að placenta percreta nefndist niðurgróin fylgja. Hún lagði til að tekið yrði upp íslenska heitið gegnumgróin fylgja, sem undirritaður tók vel en vildi einnig gefa kost á styttingunni gegngróin fylgja. Með þessari breyt- ingu verða heitin á fastri fylgju þannig: placenta accreta (fylgja föst við legvegg en totur ganga ekki inn í vöðvahjúp) viðgróin fylgja, placenta increta (fylgja föst við legvegg og fylgjutotur ganga inn í vöðvahjúpinn) inngróin fylgja og loks placenta percreta (fylgja föst við legvegg og totur ganga í gegnum vöðvahjúpinn) gegngróin eða gegnum- gróin fylgja. Jóhann Heiðar Jóhannsson joharmhj@landspitali. is Jóhann Heiðar er læknir á Landspítala Hringbraut. Læknablaðið 2007/93 511
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.