Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.06.2007, Page 58

Læknablaðið - 15.06.2007, Page 58
SÉRLYFJATEXTAR CIALIS. Lilly ICOS Limitod. CIALIS (tadalafil) filmuhúðaðar töflur: 10 mg, 20 mg. G04BE08 Ábondingar: Til meðferðar við ristruflunum.Til þess að CIALIS verki þarf kynferðisleg örvun að koma til. CIALIS erekki ætlað konum. Skammtarog lyfjagjöf: Til inntöku. Fullorðnir karlar: Ráðlagðurskammturer 10 mg sem tekinn erfyrirvæntanlegar samfarir og án tillits til máltlða. Þeir sjúklingar sem ekki fá viðunandi verkun af tadalafil 10 mg, geta reynt að taka 20 mg. Taka skal lyfið minnst 30 minútum fyrir samfarir. Hámarksskammtatíðni er einu sinni á sólarhring. Samfelld dagleg notkun lyfsins er alls ekki ráðlögð, þar sem langtíma rannsóknir á öryggi daglegra skammta hafa ekki verið framkvæmdar og einnig vegna þess að verkun tadalafils varir venjulega lengur en i einn sólarhring. Aldraðir karlar: Ekki er þörf á skammtabreytingum fyrir aldraða sjúklinga. Karlar með skerta nýrnastarfsemi: Ekki er þörf á skammtabreytingu fyrir sjúklinga með væga til miðlungs skerta nýrnastarfsemi. Hjá sjúklingum með mikið skerta nýmastarfsemi eru 10 mg hæsti ráðlagður skammtur. Karlar með skerta lifrarstarfsemi: Ráðlagður skammtur af CIALIS er 10 mg sem tekinn er fyrir væntanlegar samfarir og án tillits til máltíða. Takmarkaðar klíniskar upplýsingar liggja fyrir um öryggi CIALIS fyrir sjúklinga með mikið skerta lifrarstarfsemi (Child-Pluch Class C); ef lyfinu er ávlsað skal læknirinn meta einstaklingsbundinn ávinning/áhættu áður en lyfinu er ávlsað. Ekki eru fyrirliggjandi upplýsingar um notkun stærri skammta af tadalafil en 10 mg hjá sjúklingum með skerta lifrarstarfsemi. Karlar með sykursýki: Ekki er þörf á skammtabreytingum fyrir sjúklinga með sykursýki. Börn og unglingar: CIALIS skal ekki gefið einstaklingum yngri en 18 ára. Frábendingar: Tadalafil jók blóðþrýstingslækkandi áhrif nítrata i klinískum rannsóknum. Talið er að það stafi af samanlögðum áhrifum nitrata og tadalafils á nitur oxið/cGMPferilinn. Þess vegna má ekki nota CIALIS samhliða neinni tegund lífrænna nitrata. Lyf til meðferðar á óviðunandi stinningu getnaðarlims, þar með talið CIALIS, á ekki að gefa körlum með hjartasjúkdóm sem ráðið er frá þvi að stunda kynlif. Læknar skulu ihuga þá áhættu sem er af kynlifi fyrir sjúklinga með undirliggjandi hjartasjúkdóm. Eftirtaldir sjúklingahópar með hjarta- og æðasjúkdóma tóku ekki þátt I klíniskum rannsóknum og eru þessir sjúkdómar þvi frábending fyrir notkun tadalafils: sjúklingar sem höfðu fengið hjartadrep á slðustu 90 dögum, sjúklingar með hvikula hjartaöng eða hjartaöng við iðkun kynlifs, sjúklingar með hjartabilun af gráðu 2 eða hærri samkvæmt flokkun NYHA (New York Heart Association) á slðustu 6 mánuðum, sjúklingar með takttruflanir sem hafa ekki svarað meðferð, lágþrýsting (< 90/50 mm Hg), eða lágþrýsting sem hefur ekki svarað meðferð, sjúklingar sem fengið hafa heilablóðfall á slðustu 6 mánuðum. CIALIS skal ekki gefið sjúklingum með ofnæmi fyrir tadalafil eða einhverju hjálparefnanna. Varúð: Kanna skal sjúkdómssögu og rannsókn gerð til greiningar á hvort um ristruflanir sé að ræða og ganga úr skugga um hugsanlega undirliggjandi orsök áður en ákvörðun er tekin um notkun lyfsins. Áður en einhver meðferð við ristruflunum hefst skal læknirinn rannsaka ástand hjarta- og æðakerfis sjúklingsins þar sem nokkur áhætta er fyrir hendi hvað varðar hjartað í tengslum vió samfarir. Tadalafil hefur æðavíkkandi eiginleika, sem valda vægri og tímabundinni lækkun blóðþrýstings og auka þvi blóðþrýstingslækkandi áhrif nitrata. Alvarlegir hjarta- og æðasjúkdómar, þar með talið hjartadrep, skyndilegur hjartadauði, hvikul hjartaöng, sleglatakttruflanir, heilablóðföll, skammvinn blóðþurrðarköst, brjóstverkir, hjartsláttarónot og hraðataktur hafa komið fram eftir markaðssetningu og/eða i klíniskum rannsóknum. Flestir sjúklingar sem fengu slik einkenni höfðu sögu um áhættuþætti fyrir hjarta- og æðasjúkdóma. Hins vegar er ekki unnt að ákveða með vissu hvort þessi tilvik tengjast beint þessum áhættuþáttum, CIALIS, stundun kynlífs eða blöndu þessara eða annarra þátta. Ekki er mælt með notkun hemla fosfódíesterasa af gerð 5 (PDE5 hemla) hjá sjúklingum með sögu um framlægan blóðþurrðar augntaugakvilla án slagæðabólgu (NAION). Takmarkaðar kliniskar upplýsingar eru fyrirliggjandi um öryggi CIALIS hjá sjúklingum með mikið skerta lifrarstarfsemi (Child-Pugh Class C); ef lyfinu er ávisað skal læknirinn meta einstaklingsbundinn ávinning/áhættu áður en lyfinu er ávísaó. Sjúklingar sem fá stinningu sem varir í 4 tima eða meira skal ráðlagt að leita samstundis eftir aðstoð læknis. Só langvinn stinning ekki meðhöndluð strax, geta vefir I getnaðarlim skemmst, sem getur valdið varanlegu getuleysi. Lyf til meðhöndlunar við ristruflunum, þar með talið CIALIS, skulu notuð með varúð hjá sjúklingum með vanskapaöan getnaóarlim (svo sem beygöan lim, bandvefshersli f lim (cavemosal fibrosis) eða Peyronies sjúkdóm) eða sjúklingum með sjúkdóma sem geta valdiö sistöðu getnaðarlims (svo sem sigðfrumublóöleysi, mergæxlisger (multiple myeloma) eða hvitblæði). Við mat á ristruflunum skal einnig kannað hvort undirliggjandi sjúkdómar gætu verið orsakavaldur og veita siðan viðeigandi meðferó eftir sjúkdómsgreiningu. Ekki er vitað hvort CIALIS er virkt hjá sjúklingum með mænuskaða og hjá sjúklingum sem hafa gengist undir grindarholsskuröaðgerð eða algert brottnám blöðruhálskirtils án þess að reynt væri að hllfa taugum. CIALIS skal ekki gefið sjúklingum með arfgengt galaktósaóþol, skort á Lapp laktasa eða skert frásog á glúkósa-galaktósa. Samhliða gjöf CIALIS hjá sjúklingum sem taka alfa(1) blokka, svo sem doxazósln getur valdið lágþrýstingi meö einkennum hjá sumum sjúklingum. Þvl er ekki mælt með að gefa tadalafil samhliða alfa blokkum. CIALIS skal gefið með varúð sjúklingum sem nota öfluga CYP3A4 hemla (ritonavir, saquinavir, ketókonazól, ítracónazól og erýtrómýcin) þvi dæmi eru um aukið tadalafil álag (AUC) þegar þessi lyf eru gefin samhliða. Ekki hafa verið rannsökuð áhrif og öryggi þess að nota CIALIS samhliða öðrum meóferó-um við ristruflunum. Þvi er ekki mælt með slikri samhliða meðferð. Hjá hundum sem fengu 25 mg/kg/dag eða meira, af tadalafil daglega i 6 til 12 mánuði (samsvarandi að minnsta kosta þrefaldri mestu blóðþéttni (spannar 3,7 - 18,6) sem sést hjá mönnum eftireinn 20 mg skammt) fundust breytingar á þekjuvef i sáðpíplum sem leiddi til minni sæðisframleiðslu hjá fáeinum hundum. Niðurstöóur úr tveim 6 mánaða rannsóknum hjá sjálfboðaliðum benda til þess að þessi áhrif séu ólíkleg hjá mönnum. Áhrif af daglegri notkun I lengri tima hafa ekki verið rannsökuð. Því er dagleg notkun alls ekki ráðlögð. Áhrif á hæfni til akstum og notkunar vóla: Taliö er að CIALIS hafi hverfandi áhrif á hæfni til aksturs og notkunar véla. Engar rannsóknir hafa verið gerðar til að meta hugsanleg áhrif. Þrátt fyrir að tlðni tilkynninga um svima í lyfleysu og tadalafil örmum klínlskra rannsókna hafi verið svipuð, skulu sjúklingar vera meðvitandi um hvernig CIALIS verkar á þá, áður en þeir aka eða stjórna vélum. Milliverkanir: Rannsóknir á milliverkunum voru framkvæmdar með 10 og/eða 20 mg af tadalafil eins og fram kemur hór fyrir neðan. í þeim rannsóknum á milliverkunum sem fóru eingöngu fram með 10 mg af tadalafil, er ekki unnt að útiloka milliverkanir með hærri skömmtum. Áhrif annarra lylja á tadalafil. Umbrot tadalafils fara aðallega fram fyrir áhrif CYP3A4. Kotókónazól (200 mg daglega) er sórtækur CYP3A4 hemill sem tvöfaldaöi álag (AUC) tadalafils (10 mg) og jók Cmax um 15% samanborið við AUC og Cmax þegar tadalafil var gefið eitt sér. Ketókónazól (400 mg daglega) fjórfaldaði álag (AUC) tadalafils (20 mg) og jók Cmax um 22%. Ritonavir (200 mg skammtur gefinn tvisvar á dag), sem er próteasa hemill sem hemur CYP3A4, CYP2C9, CYP2C19 og CYP2D6, tvöfaldaði álag (AUC) tadalafils en hafði engin áhrif á Cmax. Þrátt fyrir að sérstakar rannsóknir á milliverkunum hafi ekki farið fram, er mælt með að aörir próteasa hemlar, svo sem saquinavir og aðrir CYP3A4 hemlar, eins og erýtrómýcin, klaritrómýcin og Itrakónazól, greipaldinsafi sóu gefnir samhliða með varúð því líklegt er að þeir auki þóttni tadalafils I plasma. Þar af leiðandi gæti tlðni aukaverkana aukist. Hlutverk flutningspróteina (til dæmis p-glýkóprótein) við útskilnað tadalafils er óþekkt. Milliverkanir við lyf sem hafa áhrif á flutningsprótein er þvi möguleg. Rifampicln sem örvar CYP3A4 lækkar AUC tadalafils um 88%, samanborið við AUC þegar tadalafil er gefið eitt sór (10 mg skammtur). Búast má við að samhliöa gjöf annarra lyfja sem örva CYP3A4 eins og fenóbarbital, fenýtóin eða karbamazepín muni einnig draga úr aðgengi tadalafils. Áhrif tadalafils á önnurlyf:Tadalafil (10 og 20 mg) jók blóðþrýstings-lækkandi áhrif nltrata I kliniskum rannsóknum. Því máekki gefa CIALIS samhliða neinum lifrænum nítrötum. Niðurstöður kliniskrar rannsóknar þar sem 150 einstaklingar fengu tadalafil 20 mg daglega I 7 daga og 0,4 mg nitróglýcerín undir tungu á ýmsum tímum, staðfesta að milliverkunin varði í meira en 24 tíma og ekki varð vart við þessa milliverkun 48 timum eftir töku síðasta tadalafil skammts. Þegar gjöf nitrata er talin nauðsynleg við aðstæður sem eru lifshættulegar fyrir sjúkling sem hefur fengió CIALIS ávisað, skulu minnst 48 tímar vera liðnir frá síðasta CIALIS skammti áður en gjöf nitrata er ihuguð. Við þessar kringumstæöur, ætti eingöngu að gefa nltröt undir eftirliti læknis með vióeigandi vöktun á blóðþrýstingi. Ekki er talið að tadalafil hafi klínisk áhrif til hömlunar eða aukningar á útskilnaði lyfja sem eru umbrotin af CYP450 samsætuformum. Rannsóknir hafa. staðfest að tadalafil hvorki hemur nó ön/ar CYP450 samsætuform, þar með talin CYP3A4, CYP1A2, CYP2D6, CYP2E1, CYP2C9 og CYP2C19. Tadalafil (10 og 20 mg) hafði engin klínlsk marktæk áhrif á AUC S-warfaríns, eða R-warfarins (CYP2C9 hvarfefni) og tadalafil hafði engin áhrif á lengingu prótrombíntima sem warfarín veldur. Tadalafil (10 og 20 mg) hafði engin áhrif á lengingu blæðingarlíma sem acetýlsalicýlsýra veldur. í lyfjafræðirannsóknum á lyfhrifum var kannað hvort tadalafil yki blóðþrýstingslækkandi áhrif blóðþrýstingslækkandi lyfja. Helstu flokkar blóðþrýstingslækkandi lyfja voru rannsakaðir þar með taldir kalsiumgangalokar (amlódipín), ACE (angiotensin converting enzyme) hemlar (enalapríl), beta-adrenvirkir viðtakablokkar (metóprólól), tiaziö þvagræsilyf (bendroflúazið), og angiotensin II viðtakablokkar (ýmsar tegundir og skammtar, einir sór eða samhliða með tíazlðum kalsíumgangalokum, betablokkum og/eða alfablokkum). Tadalafil (10 mg ef frá eru taldar rannsóknir með angiotensin II viðtakablokkum og amlódipin, en þá var 20 mg skammtur notaöur) hafði engar klínlskar marktækar milliverkanir við neinn þessara lyfjaflokka. í annarri kliniskri rannsókn á lyfhrifum tadalafils (20 mg) var samhliða meðferð rannsökuð með allt að 4 flokkum blóðþrýstingslækkandi lyfja. Hjá einstaklingum sem tóku mörg blóöþrýstingslækkandi lyf, virtust breytingar á blóóþrýstingi við komu á göngudeild tengjast þvi hversu góð blóðþrýstingsstjórn var. Hjá einstaklingum I rannsókninni þar sem náðst hafði góð blóöþrýstingsstjórn, var blóðþrýstingslækkunin I lágmarki og svipuð þvi sem sóst hjá heilbrigðum einstaklingum. Hjá einstaklingum i rannsókninni sem höfðu ekki svarað blóðþrýstingslækkandi meðferð, var lækkunin meiri en tengdist ekki blóóþrýstingslækkandi einkennum hjá meirihluta sjúklinganna. Tadalafil 20 mg samhliða meðferð með blóöþrýstingslækkandi lyfjum getur valdið blóðþrýstingslækkun, sem (undantekning alfa blokkar - sjá hér að neðan) er venjulega væg og hefur liklega engin kliniskt áhrif. Greining á gögnum úr 3 stigs rannsóknum sýndi engan mun á aukaverkunum hjá sjúklingum sem tóku tadalafil með eða án blóðþrýstingslækkandi lyfja. Hins vegar skal veita þessum sjúklingum viðeigandi upplýsingar um mögulega blóðþrýstingslækkun ef þeir eru meðhöndlaðir með blóðþrýstingslækkandi lyfjum. Tadalafil (20 mg) samhlióa doxazósíni (8 mg daglega), sem eralfa (1A)-adrenvirkur viðtakablokki, jók blóðþrýstingslækkandi verkun doxazósins. Þessi áhrif voru viövarandi 12 tlmum eftirgjöf og voru i flestum tilvikum horfin eftir 24 tíma. Fleiri einstaklingar höfðu hugsanlega klinlskt marktæka blóðþrýstingslækkun i standandi stöðu I hópnum sem fókk bæði lyfin. Sumir einstaklingar fengu svima en yfirliði var ekki lýst. Ekki hafa verið gerða rannsóknir með lægri skammta af doxazósini. Þvi er ekki mælt með samhliöa gjöf tadalafils og alfa blokka. í einni rannsókn á 18 heilbrigðum sjálfboðaliöum, hafði tadalafil (10 og 20 mg) engin marktæk klínisk áhrif á blóðþrýstingsbreytingar vegna tamsulósins, sem er sértækur alfa (1A)- adrenvirkur viðtaka blokki. Ekki er vitað hvort unnt er að yfirfæra þessar niðurstöður á aðra alfa (1 A)-adrenvirka viðtakablokka. Tadalafil (10 eða 20 mg) hafði engin áhrif á þóttni áfengis i blóði (meðalþéttni f blóði 0,08%). Auk þess fundust engar breytingar á þóttni tadalafils 3 timum eftir samhliða notkun áfengis. Áfenðisgjöf var hagað til að hámarka frásogshraða áfengis (fastandi að morgni og engin fæðuinntaka heimiluð fyrr en 2 timum eftir gjöf áfengis). Tadalafil (20 mg) jók ekki meðaltals blóðþrýstingslækkandi áhrif áfengis (0,7 g/kg eða um 180 ml af 40% áfengi [vodka] i 80 kg karlmann) en sumir einstaklingar urðu varirvið stöðubundinn svima og róttstöðu blóðþrýstingslækkun. Þegar tadalafil vargefið samhliða lægri skömmtum áfengis (0,6 g/kg), varð ekki vart við blóðþrýstingslækkun og tíðni svima var sambærileg við áfengi eitt sór. Tadalafil (10 mg) jók ekki áhrif áfengis á skilvitlega starfsemi.Sýnt hefur verið fram á að tadalafil auki aðgengi etinýlestradióls til inntöku ; gera má ráð fyrir svipaðri aukningu á aógengi terbútalíns til inntöku, þó klinísk áhrif séu óþekkt. Þegar tadalafil (10 mg) var gefið samhliða teófýllini (ósértækur fosfódiesterasa hemill) í rannsókn á lyfhrifum, fannst engin milliverkun við lyfjahvörf. Einungis varð varl við væga aukningu á hjartslætti (3,5 slög/min). Þrátt fyrir að þetta sóu væg áhrif og hafi ekki haft klíniska þýóingu i þessari rannsókn skulu þau höfð i huga ef þessi lyf eru gefin samhliða. Rannsóknir á milliverkunum við sykursýkislyf hafa ekki verið framkvæmdar. Aukaverkanir: Algengustu tilkynningar um aukaverkanir eru höfuðverkur, meltingartruflun. Mjög algengar (>10%) Höfuðverkur, meltingartruflun. Algengar (1-10%): Svimi, andlitsroði, nefstífla, bakverkur, vöövaverkur. Sjaldgæfar aukaverkanir (0,1-1%): Þroti I augnlokum, tilfinning sem lýst er sem augnóþægindi og blóðhlaupin augu. Aukaverkanir sem tilkynnt var um vegna tadalafils voru timabundnar og yfirleitt vægar eða miðlungs alvarlegar. Takmarkaðar upplýsingar eru um aukaverkanir hjá sjúklingum eldri en 75 ára. Aukaverkanir sem örsjaldan koma fyrir og tilkynnt hefur verið um eftir markaðssetningu hjá sjúklingum sem taka tadalafil eru: Augu: Framlægur blóðþurrðar augntaugakvilli án slagæðabólgu (NAION),þokusýn, sjónsviðsskerðing, æðastiflun I sjónu. Lfkaminn f heild: ofnæmisviðbrögð með útbrotum, ofsakláða, andlitsbjúg, Stevens-Johnson heilkenni og skinnflagningsbólgu. Hjarta- og æðakerfi: Alvarlegir hjarta- og æðasjúkdómar, þar með talið hjartadrep, skyndilegur hjartadauði, hvikul hjartaöng, sleglatakttruflanir, heilablóðföll, skammvinn blóðþurrðarköst, brjóstverkir, hjartsláttarónot og hraðataktur hafa komið fram eftir markaössetningu og/eða i klínískum rannsóknum. Flestir sjúklingar sem fengu slik einkenni höfðu sögu um áhættuþætti fyrir hjarta- og æðasjúkdóma. Lágþrýstingur (algengara að komi fyrir þegar tadalafil er gefið sjúklingum sem þegar taka blóðþrýstingslyf), háþrýstingur og yfirliö. Húð og undirhúð: mikil svitamyndun. Meltingarfæri: kviðverkirog maga- vólindisbakflæði. Þvag- og kynfæri: reðursístaða og langvarandi stinning. Pakkningar og verð (apríl 2006): CIALIS 10 mg x 4 stk: 5.196 kr. CIALIS 20 mg x 4 stk: 4.599 kr. CIALIS 20 mg x 8 stk: 8.397 kr. Lyfiö er lyfseðilsskylt (R) og sjúklingur greiðir það að fullu (0). Samantekt á eiginleikum lyfs er stytt í samræmi við reglugerð um lyfjaauglýsingar. Hægt er að nálgast samantekt um eiginleika lyfs í fullri lengd hjá Eli Lilly Danmark A/S Útibú á íslandi, Brautarholti 28,105 Reykjavik. Eli Lilly' Útibú á fslandi - Brautarholti 28 - pósthólf 5285 125 Reykjavík ■ Sími 520 3400. fax 520 3401 • www.lilly.is Cialis (tadalafil) Læknabi.aðið 2007/93

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.