Læknablaðið - 15.06.2007, Side 63
HUGLEIÐING HÖFUNDAR / ERU EKKI
ALLIR HRESSIR?
Eru ekki allir hressir?
í tíu ár vann ég hjá sama fyrirtækinu, tímaritaút-
gáfu sem farin er á hausinn. í hádeginu safnaðist
fólk saman og snæddi hádegisverð í frið og spekt.
Ég kaus samt alltaf heldur að borða inni á skrif-
stofunni minni, annaðhvort ein eða með mér yngra
fólki sem deildi með mér dálæti á pizzum. Ástæðan
fyrir því að ég forðaðist að borða með öðru sam-
starfsfólki mínu var umræðuefnið sem leitaði helst
á það yfir samlokunum og sódavatninu. Hvers
kyns veikindi voru þeim nefnilega tömust á tungu.
I mestu uppáhaldi voru krabbamein og tilheyrandi
geislameðferðir, þá alls kyns uppskurðir en einnig
gat óskiljanlegur barnadauði fyllt upp í þagnirn-
ar. Þegar allt þetta þrennt kom saman gat mikið
gengið á.
Ég tengdi þennan áhuga alltaf við starfsem-
ina sem fór fram hjá fyrirtækinu. Okkur var jú
ætlað að fylla blöðin af lífsreynslusögum. Hvort
sem okkur líkar betur eða verr seldu svona sögur
tímarit. Aldrei hefur verið hringt jafnmikið í mig
út af nokkru öðru viðtali og þegar maður nokkur
sagði frá því hvernig hann hefði ferðast til ísrael til
að fá lækningu við tinnitus.
Þegar ég fór að ræða við vini og kunningja um
allt þetta sjúkdómatal kom í ljós að það tíðkaðist
auðvitað mun víðar. Það var alveg sama hvort
fólk vann í tölvufyrirtækjum, bókabúðum eða
bakaríum. Alls staðar virtist vera talað um konur
sem höfðu „barasta þurft að láta hreinsa allt út”
og karla sem voru „svo illa haldnir af krabba að
læknarnir höfðu ekki fyrr opnað hann en þeir lok-
uðu honum bara aftur. Það var bara ekkert hægt
að gera fyrir hann. En endilega smakkið kjötboll-
urnar. Ég eldaði svoleiðis allt of mikið af þeim í
gærkvöldi.”
Svona sögur heyrði ég aldrei heima hjá mér
þegar ég var að alast upp. Talað var um eitthvað
allt annað og sjúkdómurinn sem ættin hafði fengið
að kenna á lá í algjöru þagnargildi; þunglyndið. Við
létum eins og það væri ekki til þótt það sæti stöð-
ugt til borðs með okkur, legðist til hvílu með okkur
á kvöldin og færi alltaf fyrst á fætur.
Oft hef ég hugsað til þess hvað gaman hefði
verið ef kennarar mínir í barnaskóla hefðu sleppt
fallbeygingunum í smá stund og rætt þess í stað
andlega líðan okkar. Nógu miklu púðri var eytt í
að fræða okkur um skaðsemi reykinga á þessum
tíma - alls ekki of miklu þó. Sýndar voru afar
áhrifamiklar heimildamyndir um fólk sem dró á
eftir sér súrefniskúta eða hafði jafnvel misst útlimi
vegna nikótínfíknar. Þessar myndir settu mark sitt
á líf mitt. Aldrei hefur hvarflað að mér að reykja.
Krakkar eru móttækilegir fyrir hvers kyns áróðri
og um að gera að reyna því að ná til þeirra sem
fyrst. Það þarf heldur ekki að vera flókið að hlúa
að andlegri líðan sinni. Á meðal þeirra ráða sem
við hefðum getað fengið strax í barnaskóla var að
temja okkur bjartsýni, hreyfa okkur daglega, læra
af mistökum okkar og rækta hæfileika okkar. Allt
hljómar þetta eflaust nokkuð kunnuglega í eyrum
fullorðinna en það er af því að þessi einfaldi boð-
skapur er á listanum yfir Geðorðin tíu sem send
voru í hvert hús fyrir fáeinum árum og er því
kominn á nær annan hvern ísskáp. Það væri samt
ástæða til að koma þessari þekkingu almennilega
inn í skólakerfið því þessi þjóð á ekki aðeins mörg
orð yfir „snjókomu”, hún á líka grunsamlega mörg
orð yfir sögnina „að farga sér”.
Fyrir stuttu las ég minningargreinar í Morg-
unblaðinu um ungan mann og í einni þeirra kom
einmitt fram að hann hafði flýtt fyrir sér. í annarri
var þó sagt að hann hefði hlakkað til framtíð-
arinnar. Það var eins og sá sem skrifaði fyrrnefndu
greinina hefði ekki fengið sms-skilaboðin um að
ekki mætti segja frá eða var það kannski höfundur
þeirrar síðari sem hafði haft slökkt á símanum
sínum og vissi ekki að ákveðið hefði verið að fela
ekki neitt? Að minnsta kosti ríkir enn þögn hér á
landi um þunglyndi og það verður erfitt að hrista
hana af sér. Kannski væri reynandi að fara að tala
jafnopinskátt um þennan sjúkdóm og krabba-
meinið. Við ættum að ryðja upp úr okkur sögum
af fólki með sængina dregna upp fyrir haus alla
daga af ótta við að himnarnir hrynji ofan á það.
Við eigum það eflaust öll sameiginlegt að þekkja
þannig fólk og fleiri en okkur grunar geta talað af
eigin reynslu. Skiptumst ekki bara á uppskriftum í
matartímanum, skiptumst líka á geðorðum.
Gerður Kristný
Gerður Kristný er fædd 1970.
Hún Iauk B.A.-prófi í frönsku
og almennri bókmenntafræði
frá Háskóla íslands. Hún
stundaði nám í hagnýtri
fjölmiðlun 1992-1993 og
var lengi ritstjóri tímaritsins
Mannlífs.
Gerður Kristný hefur hlotið
verðlaun og viðurkenningar
fyrir margvísleg ritstörf sín:
(2004) Bókmenntaverðlaun
Halldórs Laxness fyrir
skáldsöguna Bátur með segli
og allt og Bókaverðlaun
barnanna árið 2003 fyrir
Mörtu smörtu. Fyrir bók
sína Myndin afpabba - Saga
Thelmu hlaut Gerður Kristný
Blaðamannaverðlaun íslands
2005.
Barnabókin Land hinna týndu
sokka (2006) er nýjasta bók
höfundar.
Læknablaðið 2007/93 523
Ljósmynd: Jónatan Grétarsson