Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.09.2007, Blaðsíða 61

Læknablaðið - 15.09.2007, Blaðsíða 61
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ÍÐORÐ 201 Hvás eða hvæs? Wheezing Þýðandi sendi fyrirspurn um hvernig þýða ætti orðið wheezing í læknisfræðilegum texta. Fyrirspyrjandi hafði rekist á íslenska nafnorðið önghljóð sem þýð- ingu á enska nafnorðinu wheeze, en átti erfitt með að samþykkja það. Orðrétt sagði viðkomandi svo: Fyrir mér sem málvísindamanni vísar orðið „önghljóð” til málvísindalegra eininga sem tákna málhljóð (eins og t. d. „f” og „v”) og ég á mjög erfitt með að sjá nokkurt samhengi þarna á milli. Einnig hef ég rekist á orðin „hvœsiöndun” og „más” sem þýðingar á fyrírbœrinu en mér datt íhug að athuga hvort þú hefðir eitthvað til málanna að leggja. Önghljóð Undirritaður svaraði að bragði með eftirfarandi útskýringu: „Öng” vísar í þrengslin sem koma fyrir í berkjugreinum við astma og berkjubólgu. Loftið, sem sogað er eða þrýst af krafti framhjá þessum miklu þrengslum, framkallar svonefnd önghljóð djúpt í berkjugreinum. Önghljóðum er gjarnan lýst sem há- tóna flautuhljóðum (higli-piched, musical) og þannig heyrast þau við lungnahlustun lœknis. Á latínu nefnast þessi hljóð rhonchi sibilantes eða blísturshljóð sam- kvœmt íðorðasafni lcekna. Viðstaddir heyra þó frekar másið sem tengist erfiðri öndun og á uppruna ofar í loftvegum. Þess vegna dettur mér í hag að wheezing sé nú stundum látið tákna niáshljóðið, frekar en flautu- hljóðið, þó læknisfræðiorðabœkur lýsi wheezing yfirleitt sem flautuhljóði. Önghljóð er viðurkennt heiti og er meðal annars notað í Handbók í lyflœknisfræði sem ég nefndi í síð- asta pistli. Más og hvœs finnast mér ekki betri heiti til að tákna rltonchi sibilantes. Tengslin við málvísindaleg önghljóð eru þannig að f- og v-hljóð eru auðvitað Uka mynduð með því að þrýsta lofti framhjá þrengslum, þó að framleiddu hljóðin verði þar öðruvísi (fricative). Uppruni Það var svo skemmtilegt að sjá að hin mikla alfræði- orðabók Websters rekur uppruna ensku sagnarinnar to wheeze í gegnum miðaldaensku (whese) og forn- ensku (hwœsan) til íslensku (huœsa). Ensk-íslensk orðabók Arnar og Örlygs birtir nokkrar íslenskar þýðingar á sögninni wheeze: 1. anda með erfiðismun- um og sog- eða blísturshljóði. 2. gefa frá sér slíkt hljóð; hvœsa; mása og blása. 3. segja (e-ð) með andköfum, stynja (e-u) upp. Loks er nafnorðið hvæs fletta í Islenskri orðabók Eddu: livás, blástur, más. Merkingarleg tilfærsla Undirritaður sannfærði sig um það með endurteknum uppflettingum í mismunandi læknisfræðiorðabókunt að enska nafnorðið wheeze væri þar útskýrt sem hátóna flautu- eða blísturshljóð og væri þá samheiti við rhonchi sibilantes. Óformlegar fyrirspurnir til nokkurra lungna- og hjartalækna leiddu hins vegar í ljós að aðgreining væri nú oft gerð. Þetta kemur vel fram í eftirfarandi svari frá lungnalækni á LSH: Wheezing hefur venjulega verið notað um það sem sjúklingurinn (eða nærstaddir) heyra, rhonchi (önghljóð), um það sem heyrist við hlustun (með stethoscopy) - þetta er samkvœmt mínum málskiln- ingi en getur veríð flöktandi. Niðurstaða Jóhann Heiðar Jóhannsson Undirritaður komst sem sagt að þeirri niðurstöðu johannhj@landspitali.is að wheezing mætti þýða á tvo vegu: 1. önghljóð þegar vísað er til hátóna flautu- eða blísturs- hljóða sem heyrast við lungnahlustun og 2. hvæs- andi eða másandi öndun þegar vísað er til önd- unarhljóða sem sjúklingur eða nærstaddir heyra. Viðbótarinnlegg frá lesendum um þetta verkefni eru einnig velkomin. Rannsóknaheiti Af vissum ástæðum var óskað eftir samheiti til að tákna „rannsóknastofurannsóknir” og vísað til þess að í þeim flokki væru blóð-, þvag-, saur- og mænu- vökvarannsóknir, þar með taldar sýklarannsóknir, veirurannsóknir og margt fleira. Undirritaður lagði til heitið sýnarannsóknir og gerði þá ráð fyrir að- greiningu frá læknisfræðilegum rannsóknum sem framkvæmdar eru á sjúklingum án þess að sýni sé tekið. Ekki er þó víst að samheitið fyrir þær síðarnefndu yrði sjúklingarannsóknir og raunar er ekki alveg ljóst að slíks samheitis sé þörf. Heitið klínískar rannsóknir hefur oft verið notað til að aðgreina rannsóknir á sjúklingum frá „rannsókna- stofurannsóknum”. Nú er hins vegar svo komið að ýmsar rannsóknir á sjúklingum fara fram á sér- stökum rannsóknastofum og að ýmsar rannsóknir á sýnum (point of care-testing) geta farið fram við sjúkrabeðinn, þannig að aðgreiningarmörk eru stöðugt að breytast. Liðlöskun Björn Guðbjörnsson, gigtarlæknir, bað um heiti á arthritis mutilans til að nota í tengslum við psorias- is. í erlendum Iæknisfræðiorðabókum kemur fram að þetta heiti er notað um liðskemmdir sem einkennast af afmyndun liða með umtalsverðri brjósk- og beinskemmd. Eftir nokkra athugun stakk undirritaður upp á heitinu sóraliðlöskun og var því vel tekið. Lýst er eftir öðrum hugmyndum. Læknablaðið 2007/93 Jóhann Heiðar er læknir á Landspítala Hringbraut. 645
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.