Fréttatíminn


Fréttatíminn - 22.08.2014, Blaðsíða 2

Fréttatíminn - 22.08.2014, Blaðsíða 2
Nóatún 17 · 105 Reykjavik · S. 571 9905 www.spekoppar.is Opið Mán.-Föst. 11 - 17 Laug. 11-14 Lokað á laugardögum í ágúst Nýjar vörur frá Frugi komnar Fötin eru unnar úr 100% lífrænni bómull Væntanlegar vörur frá Katvig, Småfolk og Melton Vefverslun okkar er opin allan sólarhringinn Sendum frítt um allt land S takur tími hjá sálfræðingi kostar um 11-13 þúsund krónur en hið opinbera hefur enn ekki tekið það skref að niðurgreiða sálfræðiþjónustu, líkt og flesta aðra þjónustu innan heilbrigðiskerfisins. Sálfræði- meðferð er fyrsta val við kvíða og þunglyndi samkvæmt klínískum leiðbeiningum landlæknis. Í leið- beiningum vegna almennrar kvíð- aröskunar segir: „Árangursríkasta meðferðin er sálfræðimeðferð – hugræn atferlismeðferð (HAM).“ Lyfjameðferð kemur þar á eftir en notkun geðlyfja er mest hér á landi meðal OECD-ríkjanna. Hrund Þrándardóttir, formaður Sálfræðingafélags Íslands, segir baráttu fyrir því að sálfræðiþjón- usta sé niðurgreidd sé komin það langt að ekki þurfi lengur að færa rök fyrir nauðsyn þess. „Það er okkur mikið hjartans mál að að- gengi almennings að sálfræðiþjón- ustu batni, að sálfræðingum verði fjölgað á grunnþjónustustöðvum á borð við heilsugæslu og að til komi niðurgreiðsla frá ríkinu til sálfræð- inga á stofum,“ segir hún. Þingmenn úr fjórum flokkum lögðu fram þingsályktunartillögu þann 4. apríl um aðgerðaáætl- un um geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn, unglinga og fjölskyldur þeirra, þar sem meðal annars var fjallað um bætt aðgengi að sál- fræðiþjónustu. Ekki var fjallað um tillöguna áður en þingið fór í sumarfrí. Í þingsályktunartillögunni segir að í kjölfar efnahagskreppunnar hafi komið fram sterkar vísbend- ingar um að tilfinningavandi barna hérlendis hafi aukist. „Samkvæmt  HeilbrigðiSmál gegn kvíða er Sálfræðimeðferð árangurSríkuSt Takmarkað aðgengi að sálfræðiþjónustu Bæta þarf aðgengi almennings að sálfræðiþjónustu með því að fjölga sálfræðingum á heilsugæslustöðvum og niðurgreiða sálfræðitíma á einkastofum. Stakur tími á einkastofu kostar yfir 10 þúsund krónur. Samkvæmt klínískum leiðbeiningum landlæknis er sálfræðimeðferð fyrsta val þegar kemur að þunglyndi og kvíða. Hrund Þrándardóttir, formaður Sálfræð- ingafélags Íslands. bestu mögulegu þekkingu á að bjóða upp á gagnreynda sálfræðimeðferð, nánar tiltekið hugræna atferlis- meðferð, áður en gripið er til annarra úrræða eins og lyfjagjafar,“ segir þar ennfremur og bent er á að erlendis hafi verið reiknað út að það sé þjóðhagslega hagkvæmt að ráðast í átak til þess að sporna við alvar- legum afleiðingum tilfinn- ingavanda og bjóða upp á bestu mögulegu meðferð í samræmi við klínískar leið- beiningar. Hrund segir fulltrúa Sál- fræðingafélagsins hafa átt fundi með ráðherrum félags- og heilbrigðismála. „Við höfum mætt þar ákveðnum skilningi og boðið fram krafta okkar til að útfæra til- lögur. Það er óþarfi að ætla að finna upp hjólið. Ef við lít- um til hinna Norðurlandanna þá er þar alls staðar betra aðgengi að sálfræðiþjónustu en hér, ýmist vegna niður- greiðslna eða auknum fjölda sálfræðinga á heilsugæslu- stöðvum,“ segir hún. Erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is Sálfræði- þjónusta er ein af fáum tegundum þjónustu innan heilbrigðis- kerfisins sem er ekki niður- greidd. Ljósmynd/ NordicPhotos/ Getty Samkvæmt bestu mögulegu þekkingu á að bjóða upp á gagnreynda sál- fræðimeðferð.  Söfnun kittý Safnaði Sjálf fyrir grunnrannSóknum á krabbameini Skipulagði minningargöngu um dóttur sína „Kitty lést 44 ára úr brjóstakrabba- meini árið 2009. Hún hefði orðið fimmtug í ár og mig langaði að minn- ast hennar á eftirminnilegan hátt,“ segir Sigurlaug Haraldsdóttir, móðir Kristbjargar Marteinsdóttur – Kit- týjar, sem lést eftir 6 ára baráttu við krabbamein. Kittý barðist mikið fyr- ir grunnrannsóknum á krabbameini og því ákvað móðir hennar að efna til söfnunar- og minningargöngu um dóttur sína sem var félagi í styrktar- félaginu Göngum saman og skipu- lagði marga fjáröflunarviðburði á vegum félagsins. Í meðferðarferlinu lagði Kittý áherslu á að láta ekki sjúkdóminn stjórna lífi sínu heldur lifa til fulls. Hún stundaði göngu og setti sér það markmið að ganga daglega undir kjörorðunum „eitthvað á hverjum degi“. Hún var fædd og uppalin á Siglufirði en minningargangan verður farin í gegnum Héðinsfjarð- argöng laugardaginn 30. ágúst. Eftir gönguna verður seld súpa og brauð við íþróttamiðstöðina að Hóli og kvöldskemmtun í Allanum þar sem aðgangseyrir er 2.500 kr. Þá hefur verið stofnaður styrktarreikn- ingur í Sparisjóði Siglufjarðar 1102- 26-121264, kt. 250645-3179. Allur ágóði rennur óskiptur til grunn- rannsókna á brjóstakrabbameini. -eh Þessi mynd af Kitty var tekin eftir að hún lauk 63 kílómetra göngu á vegum Avon í New York til að safna fyrir grunn- rannsóknum á brjóstakrabbameini. Kitty var þá í miðri lyfjagjöf og lést ári síðar. Mynd úr einkasafni Ársskýrsla Landsvirkjunar tilnefnd til verðlauna Rafræn ársskýrsla Landsvirkjunar hefur verið tilnefnd til verðlauna í hinni al- þjóðlegu og virtu Digital Communication Awards keppni, í flokki rafrænna ársskýrslna. Þetta er í fyrsta sinn sem íslenskt fyrirtæki er tilnefnt til verðlaunanna. „Tilnefningin er mikil viðurkenning fyrir Lands- virkjun og viðleitni okkar til að auka skilning og sýnileika á stefnu og starfsemi fyrirtækisins með auknu gegnsæi í rekstrinum, opnum sam- skiptum og virkri upplýs- ingamiðlun til hagsmuna- aðila og almennings,“ segir Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar. Síðasta ársskýrsla Landsvirkjunar var einungis gefin út á rafrænu formi en það er í fyrsta sinn sem sá háttur er hafður á. - eh Opið hús í utanríkis -ráðuneytinu „Við erum dipló“ er yfirskrift opins húss í utanríkisráðuneytinu í tengslum við dag- skrá Menningarnætur, á morgun 23. ágúst. Ráðuneytið opnar húsið upp á gátt milli klukkan 14 og 17 og kynnir starfið í máli og myndum, að því er fram kemur á síðu þess. „Diplómatían,“ segir þar, „hefur áhrif á alla Íslendinga, hvern einasta dag, allan ársins hring. Árið um kring gætir utanríkisráðuneytið, sendiskrifstofur þess og þéttriðið net ræðis- manna hagsmuna Íslendinga. Ráðherra og starfsfólk utanríkisráðuneytisins taka vel á móti gestum, kynna hið fjölbreytta starf og svara spurningum. Dagskráin samanstend- ur af fræðslusýningum, örfyrirlestrum og á vefsíðu ráðuneytisins verður bein útsending frá Berlín og Kíev. Í garðinum óma Bartónar, DJ Yamaho, Nordic Playlist og djass. Þá verður efnt til matarkynningar í samstarfi við MATÍS .“ -jh Sjö nýir framkvæmda- stjórar á Landspítalanum Sjö nýir framkvæmdastjórar klínískra sviða hafa verið ráðnir á Landspítalann. Alls bár- ust 25 umsóknir frá 19 einstaklingum en ráðningarferlið hefur staðið yfir í sumar. Nýir framkvæmdastjórar eru Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri flæðissviðs (bráða, öldrun, endurhæfing), Hlíf Steingrímsdóttir, framkvæmdastjóri lyflækningasviðs, Lilja Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri skurðlækningasviðs, Jón Hilmar Friðriksson, framkvæmdastjóri kvenna- og barnasviðs, María Einisdóttir, framkvæmdastjóri geðsviðs, Alma D. Möller, framkvæmdastjóri aðgerðasviðs og Óskar Reykdalsson, framkvæmdastjóri rannsóknarsviðs. - eh Þrír nýir frisbígolfvellir Þrír nýir frisbígolfvellir hafa bæst við í Reykjavík í sumar og eru þeir því alls orðnir fimm talsins. Nýju vellirnir eru í Laugardal við Holtaveg, í Fossvogsdal, við göngu-og hjólastíginn vestast í dalnum við skógræktarsvæði borgarinnar, og svo í Elliðaárdal, sunnan við Fella- og Hólakirkju. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri vígði völlinn í Laugardal í gær en hann segir borgarbúa hafa tekið frisbígolfvöllum fagnandi. Frítt er inn á alla vellina, ekki þarf að bóka tíma og reglurnar eru einfaldar og ekki þarf meiri búnað enn einn frisbídisk. Frisbígolfið hentar öllum aldurshópum og þegar einstaklingar með mismunandi hæfni eða reynslu spila byrja þeir á mismunandi teigum. Fyrir voru frisbígolfvellir á Gufunesi, við Gufunesbæ- inn, en þar voru körfur og brautir endur- bættar í sumar, og svo á Klambratúni, austan við Kjarvalsstaði. - eh 2 fréttir Helgin 22.-24. ágúst 2014
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.