Fréttatíminn - 22.08.2014, Blaðsíða 58
Það er ekki
auðvelt að
vera dans-
ari á Íslandi
þó það
sé oftast
gaman ...
En það
er mikill
kraftur í
dönsurum
hér og mikil
samstaða
innan dans-
samfélags-
ins því
okkur er
öllum svo
annt um
dansinn.
É g fór nú ekki alveg hefðbundna leið að dansinum. Ég var í fimleikum þegar ég var yngri og dansaði alltaf
mikið, en ég fór ekki í hefðbundin dans-
skóla fyrr en eftir tvítugt. Dansmenningin
hér hefur breyst svo mikið. Það eina sem
kom til greina voru klassísku ballettskól-
arnir, samkvæmisdans eða djass-ballett,
en ég hafði bara engan áhuga á því. Eftir
stúdentspróf tók ég tvö ár í að vinna og
ferðast um heiminn, því ég vissi ekkert
hvað ég vildi gera í lífinu,“ segir Stein-
unn og hlær. „Í dag eru svo miklu fleiri
möguleikar í dansinum. Í flestum skólum
er boðið upp á nútíma-dans til viðbótar
við klassískan listdans og nú er meira að
segja hægt að mennta sig á háskólastigi í
dansinum. Það var bara ekkert í boði hér á
landi þegar ég var að útskrifast úr mennta-
skóla.“
Úr viðskiptafræði í dansinn
Á þessum leitandi árum skráði Steinunn
sig í Kramhúsið og segist hafa kynnst
dansinum almennilega í gegnum það. „Ég
var alltaf eitthvað að dansa í fimleikunum
en í Kramhúsinu opnaðist alveg nýr heim-
ur fyrir mér. Ég prófaði allskonar tíma þar
en var mjög hrifin af afró-dansinum og
modern-dansi og bara öllu sem var nýtt.“
Steinunn ákvað samt að hún þyrfti að ná
sér í hagnýta menntun og skráði sig í við-
skiptafræði, sem hún lauk þremur árum
síðar. „Ég fann svo þegar ég útskrifaðist
að mig langaði nákvæmlega ekkert að
starfa við viðskipti og tilkynnti öllum það
í útskriftarveislunni minni að ég ætlaði til
New-York í dansnám.“
Á réttri hillu í New York
Steinunn útskrifaðist sem dansari frá
Hunter Collage í New York árið 2005 og
hefur starfað sem dansari, danshöfundur
og kennari síðan. Hún segir New York
hafa breytt lífi sínu. „Ég var auðvitað eng-
inn byrjandi þegar ég kom til New York en
ég hafði ekki þennan klassíska bakgrunn.
Þegar leið á námið og við fengum tækifæri
til að skapa sjálf þá fann að ég væri kom-
inn á alveg réttan stað. Námið var mjög
einstaklingsmiðað og ég fékk mikið frelsi
til að skapa en svo var ég líka í svo góðum
hóp. Svo er New York auðvitað frábær
staður til að vera á og upplifa, það er allt
að gerast þar. Ég var dugleg við að fara á
sýningar og kynnast fólki í þessum heimi
svo námið náði langt út fyrir skólann.“
Steinunn fékk fasta stöðu við Listahá-
skólann síðastliðinn vetur en hún ferðast
töluvert með sín eigin verk og segir dans-
inn hér heima vera í stöðugt meiri sam-
skiptum við umheiminn. „Dansarar vinna
mikið í samstarfi við aðra og eru mikið á
flakki erlendis. Það kemur lítið af dansi
hingað heim svo það er mjög mikilvægt
að vera í góða sambandi við það sem er
að gerast úti,“ segir Steinunn en bætir því
við að það sé mikil gróska í dansinum hér-
lendis. „Áhugi á dansinum virðist stöðugt
aukast og það hefur verið uppselt á flesta
viðburði Reykjavík Dance Festival síðast-
liðin ár. Það er svo mikið af áhugaverðum
samstarfsverkefnum í gangi og dans-
höfundar eru að láta vel til sín taka á svo
mörgum sviðum samfélagsins.“
Dansinn vantar fast heimili á Íslandi
Steinunn segir það gott að vera dansari
á Íslandi í dag þó auðvitað séu alltaf ein-
hver mál sem þurfi að berjast fyrir. „Það
er ekki auðvelt að vera dansari á Íslandi
þó það sé oftast gaman. Hér er styrkjaum-
hverfið öðruvísi en í nágrannalöndunum
og við erum auðvitað mjög einangruð hér.
En það er mikill kraftur í dönsurum hér
og mikil samstaða innan danssamfélags-
ins því okkur er öllum svo annt um dans-
inn. Dansinn á sér til að mynda ekkert
fast heimili, við erum oftast gestir í öðrum
rýmum svo nú er næsta mál á dagskrá að
finna okkur danshús.“
Steinunn Ketilsdóttir frumsýnir tvö
verk á Reykjavík Dance Festival. Einstak-
lingsverk hennar „This is it“ verður sýnt
í dag, föstudaginn 22. ágúst í Kassanum,
Þjóðleikhúsinu. Samstarfsverkefni Stein-
unnar og Sveinbjargar Þórhallsdóttur,
„Reið“, verður sýnt í Borgarleikhúsinu
laugardaginn 30. ágúst. Reykjavík Dance
Festival stendur yfir frá miðvikudeginum
27. ágúst til laugardagsins 30. ágúst. Allar
upplýsingar er hægt að nálgast á vef há-
tíðarinnar; reykjavikdancefestival.com.
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Dans Reykjavík Dance Festival, 27.-30. ágúst.
Viðskiptafræðingur-
inn sem varð dansari
Þegar Steinunn Ketilsdóttir útskrifaðist sem viðskiptafræðingur tilkynnti hún sínum nánustu að
hún ætlaði að verða dansari. Eftir að hafa lært og starfað í New York kom hún aftur til Íslands og
í dag starfar hún sem dansari og danshöfundur, auk þess að kenna við Listaháskólann. Hún frum-
sýnir tvö ný verk á Reykjavík Dance Festival í næstu viku.
Steinunn Ketilsdóttir dansari segir mikinn kraft í búa í íslenskum dönsurum og að mikla samstöðu sé að finna innan hópsins. Nú
sé helsta baráttumál íslenskra dansara að fá danshús.
Græjaðu
skólann!
Borgartúni 37 / Kaupangi Akureyri / nyherji.is/skolatolvur
Lenovo Yoga 2 13,3”
Verð: 154.900 kr.
Spjald- eða fartölvu?
Sameinaðu kosti beggja
með einni græju.
360
Lenovo G50 15,6”
Verð: 54.900 kr.
Stílhrein námstölva
á frábæru verði.
Lenovo Yoga 10” HD+
Verð: 51.990 kr.
Skærasta stjarnan á svæðinu.
Með innbyggðum standi. 18 klst.
Allt sem námsmaðurinn þarf
58 menning Helgin 22.-24. ágúst 2014