Fréttatíminn - 22.08.2014, Qupperneq 38
38 námskeið Helgin 22.-24. ágúst 2014
námskeið aldrei of seint að byrja að læra ný tungumál
Tungumálanám gott fyrir heilann
Stýring verkefna og
ábyrg fjármálastjórn
e ndurmenntun HÍ býður í haust upp á nýja námslínu fyrir fólk sem vill öðlast hag-
nýta þekkingu á sviði fjármála og
stýringu verkefna og þarf að halda
utan um kostnað og nýtingu fjár-
magns. Mikilvægur hluti af hverju
verkefni er að stýra fjármálum þess,
svo sem tekjum, kostnaði, áætl-
anagerð, greiningu, mati og vali á
kostum. Hægt er að sækja námið
í staðnámi eða fjarnámi. Kenn-
arar námskeiðsins búa yfir mikilli
reynslu. Einn þeirra er Einar Birkir
Einarsson, verkfræðingur og fram-
kvæmdastjóri rekstrar- og öryggis-
lausna hjá Reiknistofu bankanna.
„Útgangspunkturinn á námskeið-
inu er hagnýt verkefnastjórnun
með áherslu á fjármál. Námskeiðið
er ætlað einstaklingum sem þurfa,
starfa sinna vegna, að hafa innsýn í
þessa tvo nátengdu hluti. Áætlanir
eru afleiðing verkefna sem ákveðið
er að hrinda af stað og getur fram-
ganga verkefna haft mjög mikil
áhrif á fjármál fyrirtækja og stofn-
ana,“ segir hann.
Námið fer fram í formi fyrirlestra
og er lögð áhersla á opnar umræður
í tímum. „Námið er mjög hagnýtt
og munu nemendur gera mikið af
verklegum æfingum saman í tímum
til að leggja áherslu á mikilvægustu
atriðin við stýringu verkefna. Fólk
skiptist á skoðunum og fær góða
endurgjöf og getur tekið dæmi úr
sinni vinnu sem við ræðum.“
Námslínan hentar þeim sem hafa
fengið aukna ábyrgð á sviði fjár-
mála í störfum sínum eða stefna
á slík störf. Námið er eitt misseri
og hefst kennsla föstudaginn 26.
september og lýkur laugardaginn
29. nóvember. Kennt verður á föstu-
dögum frá klukkan 16.15 til 19.15
og á laugardögum frá 9.30 til 12.30.
Umsóknarfrestur er til 8. septem-
ber. Nánari upplýsingar má nálgast
á www.endurmenntun.is – vef End-
urmenntunar.
Unnið í samstarfi við
Endurmenntun HÍ
Vegna mikillar eftirspurnar býður Endurmenntun Háskóla Ís-
lands nú upp á nýja námsleið um stýringu verkefna og ábyrga
fjármálastjórn. Námið er hagnýtt og hentar öllum sem bera
ábyrgð á sviði fjármála í störfum sínum eða stefna á slík störf.
Einar Birkir Einarsson, verkfræðingur og
framkvæmdastjóri rekstrar- og öryggis-
lausna hjá Reiknistofu bankanna, er einn
kennara nýrrar námslínu hjá Endur-
menntun um stýringu verkefna og ábyrga
fjármálastjórn.
Heilanum hefur oft verið líkt við
vöðva og þá þarf vitaskuld að þjálfa.
Með því að leggja málfræðireglur
og orðaforða á minnið þjálfast heil-
inn svo tungumálanám er hin besta
heilaleikfimi. Útkoman er sú að
minnið almennt verður betra. Rann-
sóknir hafa sýnt fram á að heili fólks
sem talar tvö eða fleiri tungumál
virkar á annan og skjótari hátt en
þeirra sem tala aðeins eitt.
Ekki er of seint að læra nýtt
tungumál á fullorðinsaldri og er til
mikils að vinna bæði fyrir líkamlega
og andlega heilsu. Rannsóknir hafa
sýnt fram á að meðalaldur fólks sem
byrjar að finna fyrir Alzheimers-
sjúkdómnum er 71,4 ár hjá fólki
sem talar aðeins eitt tungumál en
75,5 ár hjá fólki sem talar fleiri en
eitt tungumál.
Glerbræðsla
leirmótun
keramikmálun
tiany´s
glerskurður
skartgripagerð o..
Námskeiðin okkar eru
að heast
Höfum allt efni til glervinnslu, leirvinnslu
og skartgripagerðar.
Laugavegi 32 - S:553-2002
Mán-lau 10:00-18:00
Sun 13:00-17:00
Hefur þú komið í
Hrím Eldhús?
ÁSKRIFTARKORT 14.500 kr.
Fjórar nýjar sýningar
Bestu sætin, á okkar besta verði. Þín föstu sæti
á sýningar á Stóra sviðinu, leikskrá og kaffibolli
á hverri sýningu.
UNGMENNAKORT 9.500 kr.
Þrjár sýningar að eigin vali, fyrir 25 ára og yngri
LEIKHÚSKORTIÐ 11.500 kr.
Þrjár sýningar að eigin vali
FRUMSÝNINGARKORT 23.000 kr.
Fjórar frumsýningar á Stóra sviðinu
KÚLUKORT 5.500 kr.
Þrjár sýningar í Kúlunni og á Brúðuloftinu
ÁRSKORT
NÝR
VALKOSTUR
Tryggðu þér þitt sæti
á sýningar vetrarins.
WWW.LEIKHUSID.IS WWW.LEIKHUSID.IS