Fréttatíminn - 22.08.2014, Side 39
námskeið námskeið í japönsku hafa notið vinsælda hjá mími símenntun síðasta áratug
Götutískan vekur áhuga á japönsku
námskeið 39Helgin 22.-24. ágúst 2014
Námið miðar að
því að nemendur:
n Þekki helstu hugtök og kenningar
í fjármálafræðum og kunni að beita
þeim í daglegum rekstri.
n Tileinki sér ábyrga stjórnun fjár-
muna við stýringu verkefna.
n Þekki aðferðir við gerð fjárhags-
áætlana, kostnaðargreininga og
nýti þær við ákvarðanatöku.
n Þekki uppbyggingu ársreiknings
og kunni að lesa úr mikilvægum
upplýsingum.
n Öðlist færni í áætlanagerð og
þekki muninn á aðfangamiðaðri og
árangursmiðaðri rekstraráætlun.
n Hafi þekkingu á helstu aðferðum
verkefnastjórnunar ásamt ferlum
og ferlastjórnun.
n Þekki árangursríkar leiðir til
markmiðasetningar, áætlun um
framvindu og eftirlit með árangri
verkefna.
Kennarar námskeiðsins
Bjarni Frímann Karlsson, viðskiptafræð-
ingur og lektor við viðskiptafræðideild HÍ.
Einar Birkir Einarsson, verkfræðingur og
framkvæmdastjóri rekstrar- og öryggis-
lausna hjá Reiknistofu bankanna.
Jón Hreinsson, fjármálastjóri hjá Nýsköp-
unarmiðstöð Íslands.
Japanska götutískan og Manga
teiknimyndir hafa vakið áhuga margra
Íslendinga á Japan og námi í japönsku.
Ljósmynd/NordicPhotos/GettyImages
Boðið hefur verið upp á námskeið
í japönsku hjá Mími símenntun
undanfarin tíu ár og eru þau sér-
staklega vinsæl hjá ungu fólki.
„Það er töluvert af ungu fólki sem
hefur áhuga á Japan og tengist það
oft Manga teiknimyndum og jap-
anskri götutísku,“ segir Sólborg
Jónsdóttir, deildarstjóri tungumála-
og fjölmenningardeildar hjá Mími
símenntun.
Margir nemendanna stefna að
háskólanámi í Japan eða í japönsk-
unám við Háskóla Íslands. Í haust
verður boðið upp á japönsku I og
II en stundum hefur þriðja nám-
skeiðinu verið bætt við. „Einu sinni
vorum við líka með japönsku fyrir
unglinga og var það mjög vinsælt.“
Japönskukennarinn hjá Mími notar
ýmsa samskiptaleiki svo nemendur
læra ekki aðeins japönsku stafrófin,
heldur byrja strax að nota þau með
ýmsum spilum og leikjum.