Fréttatíminn - 22.08.2014, Blaðsíða 44
44 heilsa Helgin 22.-24. ágúst 2014
Heilsa Góða matsveppi má finna í náGrenni HöfuðborGarinnar
Stuðningur fyrir hlaupin
Mikið úrval af stuðningshlífum frá Sporlastic.
Vandaðar vörur á góðu verði.
Komdu og skoðaðu úrvalið
- við tökum vel á móti þér og finnum réttu lausnina fyrir þig.
F
A
S
TU
S
_H
_3
3.
08
.1
4
Komið í verslun okkar að Síðumúla 16. Opið mán - fös 8.30 - 17.00
Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • Sími 580 3900 • www.fastus.is
Hnéhlíf Ökklahlíf Hásinahlíf Bakbelti
Þriðjudaga og fimmtudaga kl. 17:00
í sal Fossvogsskóla
Tímabil 2. sept. til 11. des.
leikfimi - dans - jóga
Verð: 16000
Kennarar: Ásdís Halldórsdóttir
og Gerða Jónsdóttir íþróttafræðingar
ásamt gestakennurum
Upplýsingar og skráning á netfangið
asdishall@gmail.com og 777-2383
Kvennaleikmin
" Fimleikaólur"
hefst þridjudaginn 2. september
H ugmyndin er að kynna fyrir fólki helstu matsveppi sem er að finna í nágrenni Reykjavík-
ur,“ segir Gísli Már Gíslason, prófessor
við líf- og umhverfisvísindasvið Há-
skóla Íslands, sem ásamt Silke Werth
nýdoktor leiðir sveppatínsluferð um
Heiðmörk á laugardag. Ferðin er sam-
starfsverkefni Ferðafélags barnanna,
Ferðafélags Íslands og Háskóla Íslands,
og á annað hundrað manns mættu í
slíka ferð síðasta haust.
Þó að margir sveppir séu afar bragð-
góðir geta aðrir verið varasamir og því
þarf að læra hvaða sveppi má borða
og hverja ekki. Þeir sveppir sem væn-
legastir eru til átu og má reikna með
að finna í Heiðmörk eru lerkisveppur,
kúalubbi, furusveppur, gulbroddur og
merarostur. „Almennt má segja að þeir
sveppir sem eru ætir séu pípusveppir. Ef
þeir eru með fellingar eru þeir gjarnan
beiskir, fyrir utan gulbroddinn og auð-
vitað kantarelluna en hún vex ekki í ná-
grenni höfuðborgarinnar,“ segir Gísli.
Sjálfur fer Gísli yfirleitt á haustin og
tínir sveppi fyrir veturinn. „Ég sker
Sveppatínsla í Heiðmörk
Sveppatínsla nýtur
fádæma vinsælda
en mikilvægt er
að kynna sér vel
hvaða sveppir
eru góðir til
átu. Ferðafélag
barnanna, Ferða-
félag Íslands og
Háskóli Íslands
standa á laugar-
dag fyrir fræðslu-
ferð í Heiðmörk
þar sem fólki
er leiðbeint við
tínsluna. Tilvalið
er að tína eigin
sveppi og frysta
eða þurrka til að
eiga í sósur og
súpur í vetur.
þá smátt, steiki í smjöri og frysti
í plastpokum. Ég á þá sveppi til
að nota í súpur og sósur. Sumar
sveppategundir er vel hægt að
þurrka en ég hef ekki farið út í það.
Það er fljótlegast bara að steikja
þá í smjöri og svo sjóða þeir í eigin
vökva þegar þeir linast,“ segir
hann.
Þátttakendur mæta við Öskju,
náttúrufræðihús HÍ, klukkan 11 á
laugardag og þaðan er farið á einka-
bílum upp í Heiðmörk. Gert er ráð
fyrir að ferðin taki um 3 klukku-
stundir en þátttaka er ókeypis.
„Þetta er fín heilsubótarganga með
fræðslu,“ segir Gísli. Hann mælir
með því að fólk taki með sér körfur
eða bréfpoka, og þeir sem eiga
sveppabækur eru eindregið hvattir
til að taka þær með.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Líf og fjör var í sveppatínsluferðinni í Heiðmörk á síðasta ári þegar á annað hundrað manns tóku þátt. Ljósmynd/Björk Sigurðardóttir
Gísli Már Gíslason er hér að veita fræðslu um sveppi. Ljósmynd/Björk Sigurðardóttir
Lerkisveppur dregur nafn sitt af því að hann vex eingöngu í námunda við lerkitré.