Fréttatíminn


Fréttatíminn - 22.08.2014, Page 48

Fréttatíminn - 22.08.2014, Page 48
48 matur & vín Helgin 22.-24. ágúst 2014  Grillmatur BarBíkjú-rif Það er fátt betra með svíni gott heimalagað hrásalat. Það verður eiginlega allt betra með góðu heimalög- uðu hrásalati og svoleiðis er hægt að útbúa með klukkutíma fyrirvara, þó best sé að edikið fái smá tíma til að pönkast á hvítkálinu svo fjórir tímar eru betri en einn og kvöldið áður best. Það er heldur ekki flókin aðgerð að búa til salat. Hálfur hvítlaukshaus á móti smá rauð- lauk, ediki, sykri og mæjónesi, heimalöguðu að sjálfsögðu. Saxa niður rauðlauk og setja í lög af þremur matskeiðum af ediki og jafn mörgum af hlynsýrópi eða sykri. Púðursykri jafnvel ef ævintýraþráin tekur alveg yfir. Láta þetta standa meðan hvítkál er rifið niður. Hálfur haus dugar vel fyrir heila vísitölufjölskyldu og jafnvel þótt þær væru tvær. Blanda svo leginum saman við kálið. Þeir sem enn eru í stuði skvetta nokkrum dropum af „hot sauce“ saman við. Hræra svo út í nokkrum matskeiðum af mæjónesi. Það þarf ekki að drekkja þessu í mæjó en tvær, þrjár hæfilega kúfaðar matskeiðar ættu að vera nóg til að halda salatinu fersku og góðu. Pínu salt og geyma í að minnsta kosti klukku- tíma áður en það er borið fram. 3x20 H V ÍT A H Ú SI Ð / S ÍA WWW.LEIKHUSID.IS Barnabök á grillinu Maginn vill það sem maginn vill og stundum er það sem maginn vill hægelduð svínarif. Nú fer líka að síga á seinni hluta hefðbundna grilltímabilsins og þá er bara að láta þetta eftir vömbinni og hefjast handa. m argir kjósa að sjóða rifin í potti áður en þeim er skellt stutta stund á grillið og svo löðruð í barbíkjú- sósu. Það er þó ekki þannig sem við ætlum að rúlla í dag heldur ætlum við að grilla þau í átta klukkustund- ir. Já, átta klukkustundir á hundrað gráðu heitu grilli og það verður engin sósa með heldur hrásalat. Svona förum við að. Finna fersk rif. Þau koma í nokkrum skurðum en algeng- ust á Íslandi eru Spare-rif sem eru rifbeinin að framan og barnabök sem eru rifin þar sem þau koma út frá hryggnum. Spare-rifin er svo hægt að fá skorin í fleiri útgáfur en við brúkum barnabökin að þessu sinni. Undir rifjunum er himna sem er ekkert sér- staklega góð á bragðið. Þýtt úr engilsaxnesku kallast hún silfurskinn. Sumir vilja taka það af í upphafi og þá hefjast þeir handa við það. Ég nenni því ekki og tek það bara af um leið og ég borða. Þá er það grillið. Það þarf að geta haldið um hundrað gráðu hita í átta klukkustundir og það þarf líka að vera þannig að enginn eldur sé undir rifjunum. Við eldum þau við óbeinan hita. Áður en rifin fara út á grillið þarf að bera á þau kryddblöndu. Hún fer eftir smekk hvers og eins en paprikkuduft, lauk- og hvít- lauksduft, kóríander og jafn vel smá cummin eru klassísk líka. Sinnepsduft, engifer og jafnvel kaffikorgur eru brúkuð líka. Helst ekki kryddjurtir þó því þær geta brunnið og orðið bitrar. Já og ekki kanil það er bara rugl að nota kanil á rif, ekki gera það. Rifin fara svo út á grillið og þar „bubbla“ þau við þessar blessuðu hundrað gráður í fjóra, fimm tíma af þessum átta. Það þarf ekkert að snúa þeim. Kjöthliðin snýr upp allan tímann en þeir sem eru með snertu af áráttuþráhyggjuröskun geta snúið þeim í hringi þannig að rifin fái örugglega jafnan hita. Reykur er líka ómissandi í góð rif. Setja kurl í bleyti og svo í þar til gert box eða álpappír með götum og beint ofan á brennar- ann. Grillið á alltaf að vera lokað meðan á eldun stendur svo hitinn og reykurinn nái að gera kjötið að beinasleikjandi himnasælu. Þegar sirka þrír, fjórir tímar eru eftir þarf að blanda saman mat- skeið af eplaediki við desilítra af eplasafa og pensla tvisvar, þrisvar með klukkutíma millibili. Þegar rifin eiga svo klukkutíma eftir í hitanum er blöndu af hálfum desilítra af tómatsósu, hálfum desilítra af eplasafa og hálfum af púðursykri smurt á rifin og hitinn hækkaður lítillega, eða upp í plús mínus hundrað og sextíu. Eftir um klukkutíma, eða tæplega svo, eru rifin klístruð og guðdómleg og það eina í stöðunni að sækja smekk og nóg af munnþurrkum. Haraldur Jónasson hari@frettatiminn.is Hrásalat Átta klukku- tímar er ekki neitt fyrir svona herlegheit.

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.