Fréttatíminn - 22.08.2014, Side 59
Eldborg
24. ágúst kl. 19:30
Hinn ástsæli fiðlukonsert
Tchaikovskys í D-dúr verður
fluttur undir stjórn Peter
Oundjian af einleikaranum
James Ehnes.
Að sögn The Guardian
er Ehnes einstaklega
ljóðrænt undrabarn
sem lætur hárin rísa.
www.harpa.is/tso
Tryggðu þér miða í síma 528 5050, á midi.is og harpa.is
Rússnesk rómantík í Hörpu
Toronto
Symphony
Orchestra
Þjóðarhljómsveit Kanada
B
ra
n
d
en
b
u
rg
DON
CARLO
eftir
Giuseppe Verdi
www.opera.is
Frumsýning
18. október
kl. 20
Miðasala í Hörpu og á harpa.is
Miðasölusími 528 5050
TónlisT MeðliMir hljóMsveiTarinnar Majór Pink
Fá góða hjálp frá Barða í Bang Gang
Hljómsveitin Major Pink er afsprengi
þeirra Gunnars Inga Valgeirssonar og
Daníels Guðnasonar sem árið 2012 byrj-
uðu að leika sér að semja músík. „Við
höfum verið að leika okkur að þessu
og í mars á þessu ári settum við saman
band til þess að taka þátt í Músíktil-
raunum. Við komumst ekki í úrslit en
ákváðum að gefast ekki upp og í sumar
sendum við frá okkur okkar fyrsta lag,“
segir Gunnar sem verður fyrir svörum.
Lagið heitir Hope og hefur fengið fína
spilun á Rás 2 og Xinu og komst inn á
vinsældalistann fyrr í sumar.
„Þegar við erum að semja tónlist-
ina þá er þetta í átt við einhverskonar
elektróník, en þegar bandið er með okk-
ur breytist þetta í mikið rokk og ról.“
Þessa dagana er Major Pink í stúd-
íói og þeir ákváðu að fá hjálp frá reynd-
ari mönnum. „Barði Jóhannsson er
að vinna með okkur tvö lög, sem við
erum að taka upp í stúdíóinu hans.
Annað lagið er smellur sem við ætl-
um að setja beint í útvarp. Það er mjög
gaman að vinna þetta með Barða og
við erum þakklátir fyrir það að hann
vilji vinna með okkur. Hann nennir
ekkert að vinna með öllum. Stefnan
er að gera plötu sem snýst öll um ævi
Major Pink sem er karakter sem við
bjuggum til.“
Major Pink mun koma fram á tón-
leikum á skemmtistaðnum Bar11 á
Menningarnótt um helgina.
Sveitin ætlar einnig að vera dugleg
að koma fram í vetur og fyrirhugaðir
eru tónleikar á Dillon og skemmti-
staðnum Húrra í september. - hf
Ólöf og Skúli
í Mengi
Á Menningarnótt munu listamenn-
irnir Skúli Sverrisson og Ólöf Arn-
alds leiða saman krafta sína og
bjóða upp á sambland af nýju og
eldra efni úr lagasöfnum sínum.
Tónleikarnir fara fram í húsnæði
Mengis að Óðinsgötu 2 klukkan 21.
Ólöf Arnalds og Skúli Sverrisson
hafa starfað saman í rúman áratug.
Samstarf þeirra hefur m.a. leitt af
sér plöturnar Seria I, Seria II, Við
og við, Innundir Skinni og Sudden
Elevation. Þau hafa nýlokið við tök-
ur á næstu sólóplötu Ólafar, sem
ber nafnið Palme, og kemur út 29.
september næstkomandi.
Fjöllistahátíðin
Mucho Grandi
Mucho Grandi er f jöllistahátíð
sem haldin verður í húsalengju
við Hólmaslóð á Grandasvæði
Reykjavíkur á Menningarnótt. Há-
tíðin er samstarfsverkefni Festis-
valls, Reglu hins öfuga pýramída,
Skiltamálunar Reykjavíkur og Járn-
brautar. Rýmin í húsalengjunni eru
vinnustofur listamanna megnið af
árinu en þeir ætla að opna dyr sín-
ar, færa fróðleik og skemmta öllu
áhugafólki um menningarlegt líf-
ríki Grandans þennan dag.
Lifandi tónlist, einstakar upp-
ákomur, stór myndlistarsýning í
öllum rýmum og veitingasala verð-
ur opin frá klukkan 14 og fram eftir
kvöldi. Fjöldi listamanna af yngri
kynslóðinni sýnir verk sín og kem-
ur fram, en þátttakendur hátíðar-
innar eiga það sameiginlegt að hafa
starfrækt iðju sína á svæðinu und-
anfarin ár. Hugmyndin er að sýna
þá miklu grósku sem á sér stað við
hafið og deila þeim mikla arfi sem
vex á svæðinu með öllum sem eiga
leið hjá Grandanum á Menningar-
nótt 2014. Meðal tónlistarmanna
sem koma fram á Mucho Grandi
eru Grísalappalísa, Útidúr og Just
Another Snake Cult.
menning 59 Helgin 22.-24. ágúst 2014