Fréttatíminn - 22.08.2014, Side 62
Í takt við tÍmann Ísak Einar rúnarsso
Best að kaupa föt hjá Bóbó
Ísak Einar Rúnarsson er 22 ára gamall Garðbæingur sem stundar hagfræðinám við Háskóla Íslands. Síðast-
liðið vor var hann kjörinn formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands. Hann og aðrir stúdentaráðsliðar standa
í ströngu við að undirbúa Októberfest sem haldið verður 11.-13. september. Ísak er einn af bestu kúnnum
Dominos á Íslandi.
Staðalbúnaður
Maður hefur nú ekki efni á að lifa neinu
lúxuslíferni sem námsmaður og ég get
varla talist stórkaupandi þegar föt
eru annars vegar, en það er sér-
staklega gott að versla hjá honum
Bóbó í Karlmönnum á Laugaveg-
inum. Það getur verið skemmti-
leg upplifun að fara þangað inn
því það er eins og Bóbó finni á
sér að maður sé á leiðinni. Hann
er alltaf með réttu flíkina og
í réttri stærð tilbúna þegar
maður mætir í hús.
Hugbúnaður
Það getur verið rosa-
lega gott að kíkja í
Stúdentakjallarann
á kvöldin og það er
alltaf góð stemning
þar. Kjallarinn er
besti staðurinn til
þess að fá sér að
borða og jafnvel
einn kaldan með,
í góðra vina hópi.
Ég reyni að mæta í
ræktina reglulega
en ég mætti vera
duglegri, núna er
það aðallega hann
bróðir minn, Þorri
Geir, sem sér um íþróttaiðkun í fjölskyld-
unni. Hann spilar fótbolta með Stjörnunni
en eins og víðfrægt er orðið keppir liðið við
Inter Milan í Evrópukeppninni um þessar
mundir.
Vélbúnaður
Ég er mikill Apple maður og á bæði iPhone
og MacBook en það eru hlutirnir sem ég
nota mest. Satt best að segja fer ég eiginlega
ekki út úr húsi án þess að hafa hvort tveggja
með mér, tölvuna og símann. Síðustu mán-
uði hef ég verið forfallinn yfir tölvuleiknum
2048, en ég er sennilega einn af fáum sem
enn spilar þann leik. Við Björn Már, fram-
kvæmdastjóri Stúdentaráðs, höfum háð mik-
ið einvígi, sem helst mætti líkja við einvígi
Bobby Fischers og Boris Spassky, um það
hvor kemst lengra í leiknum og því miður
hefur Björn Már vinninginn sem stendur.
Það mun þó breytast á næstu vikum ef ég fæ
einhverju um ráðið.
Aukabúnaður
Mér þykir lambakjöt hrikalega gott en ég
væri að ljúga ef ég segðist ekki vera mikill
skyndibitamaður og ég er sennilega einn
af bestu viðskiptavinum Dominos á Íslandi.
Í næstu viku er ég á leið til heimalands
pítsunnar, Ítalíu, til að horfa á leik Stjörn-
unnar og Inter á San Siro leikvanginum. Það
er spurning hvort Dominos sé með útibú í
Mílanó?
Ljósmynd/Hari
appafEngur
MoMA
Hefur þig
alltaf langað
að heimsækja
Nútímalista-
safnið í New
York, MoMA,
en hefur
ekki efni
á flugmiða
til Banda-
ríkjanna?
Nú geturðu
heimsótt
Museum of
Modern Art
í símanum
þínum!
Appið
MoMA gefur
þér tækifæri
til að skoða
safnið í sím-
anum þínum,
hlusta á við-
töl við lista-
menn og sýn-
ingarstjóra,
og halda
utan um þín
uppáhalds
verk. Tilvalið
er að vera
með appið
þegar safnið
er heimsótt og nota það sem
leiðsögn en það er líka stórfínt
að skoða safnið yfir hafið í sím-
anum eða spjaldtölvunni.
Menningarvitar hvaðanæva
að geta nú kynnt sér Vatnaliljur
Monet, Ungfrúrnar frá Avignon
eftir Picasso og Stöðugleika
minnisins eftir Dali á glænýjan
hátt.
Til að nota appið þarf að vera
nettengdur. - eh
62 dægurmál Helgin 22.-24. ágúst 2014