Fréttatíminn - 22.08.2014, Page 66
Danni Bít og
Bibbi Barti
í jökkunum
goðsagna-
kenndu. Þeir
passa ennþá
í jakkana þó
nær tuttugu ár
séu liðin síðan
sveitin lagðist
í dvala. Ljós-
mynd/Hari
Dansleikur Brim á sörfBalli í iðnó á menningarnótt
Passa ennþá í jakkana
Goðsagnakennda hljómsveitin Brim er komin saman aftur og mun halda brjálað stuðball í Iðnó
á Menningarnótt. Brimbrettahljómsveit allra landsmanna starfrækja þeir Bibbi Barti, Kafteinn
Skeggi, Óli Raki, Hrafninn og Danni Bít en hún var áberandi á árunum 1995-1997
H ljómsveitin var stofnuð í kennaraverkfallinu langa árið 1995,“ segir trommu-
leikari hljómsveitarinnar Brims,
Danni Bít. „Foreldrar mínir voru
erlendis og skildu mig eftir einan
heima með 100 hamborgara,
svo það eina sem við gerðum í
verkfallinu var að æfa og borða
hamborgara,“ bætir gítarleikarinn
Bibbi Barti við.
„Hljómsveitin lagðist í dvala
árið 1997 vegna annarra verkefna
meðlimanna. Margir okkar fluttu
utan og þá fórum við í pásu, en
svo spiluðum við á 10 ára afmæli
hljómsveitarinnar á Innipúkanum
árið 2005, en síðan höfum við
verið í annarri pásu. Þangað til
núna,“ segir Bibbi.
Sömu jakkarnir
Brim var þekkt fyrir óviðjafnan-
lega stemningu á böllum og tón-
leikum og skærbláir hljómsveitar-
búningar þeirra renna fólki seint
úr minni. „Við erum enn í sömu
jökkunum sem passa allir ennþá.
Ég þurfti að vísu aðeins að stækka
minn því hann var svo stuttur
um axlirnar að ég náði ekki að
spila á allt trommusettið,“ segir
Danni. „Svo það var spurning um
að stækka jakkann eða minnka
trommuleikinn og við ákváðum að
stækka jakkann,“ segir Bibbi.
Brim leikur ósungna og hressa
sörftónlist af hreinustu gerð og
gaf út plötuna Hafmeyjar og hana-
stél hjá Smekkleysu árið 1996.
„Þessi tónlist er svo skemmti-
leg blanda af rokki, pönki og
almennri gleði. Það finnst öllum
gaman að hlusta á þetta og stemn-
ingin verður oft mjög víruð og
skemmtileg. Við komum allir úr
jaðarsenunni svo það verður alltaf
ákveðin gredda í gangi og fallegur
hráleiki,“ segir Bibbi.
„Platan er að vísu ófáanleg. Hún
var bara gefin út í takmörkuðu
upplagi, en það sem var eftir af
henni var urðað á vegum Smekk-
leysu. Örugglega til þess að búa
til geymslupláss. Pabbi minn, sem
er mikill aðdáandi, hefur þó verið
að gera „bootleg“ útgáfur fyrir þá
sem vilja,“ segir Danni.
Beikon og sörftónlist passa
vel saman
„Við komum fram á Beikonhá-
tíðinni sem var um síðustu helgi
og fannst það mjög viðeigandi
vettvangur fyrir Brim og það
var frábært. Um kvöldið vorum
við með leyniball á skemmti-
staðnum Paloma og það var eins
og við hefðum aldrei hætt. Sama
ruglaða sviðsframkoman og
sama frábæra stemningin var í
gangi. Það var ótrúlega gaman
að sjá hvað allir voru glaðir og
brosandi,“ segir Bibbi. „Þeir
tónleikar voru nokkurskonar
æfing fyrir það sem koma skal
í Iðnó á Menningarnótt,“ bætir
Danni við.
Dansleikurinn hefst um leið
og flugeldasýningin er búin og
stendur fram á rauða nótt.
Sérstakur gestur í hléi er hin
bráðskemmtilega DJ. Flugvél
og geimskip en hún hefur vakið
mikla athygli upp á síðkastið fyrir
sérstaka og skemmtilega sviðs-
framkomu. Forsala aðgöngumiða
er á Midi.is en takmarkaður
fjöldi miða er til sölu. Miðaverð
er 2500 krónur í forsölu en 3000
krónur við inngang. Allar nánari
upplýsingar má finna á glænýrri
Facebook-síðu hljómsveitarinnar.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Ivan Kouma-
ev hefur
samið dans
fyrir Justin
Timberlake.
Hann verður
með frítt
námskeið í
DanceCenter
Reykjavík.
Dans ivan koumaev með námskeið í Dancecenter reykjavík
Danshöfundur Justin Timberlake kennir sporin frítt
DanceCenter Reykjavík stendur fyrir
dansnámskeiði með danshöfundinum
Ivan Koumaev á morgun, laugardag.
Koumaev er danshöfundur og dansari
poppgoðsins Justin Timberlake og er
staddur hér á landi vegna tónleika hans í
Kórnum á sunnudag.
Á námskeiðinu verða spor popp-
goðsins kennd og mun sýningarhópur
DanceCenter halda sýningu í anda
Timberlake. Koumaev komst á topp tíu
lista sjónvarpsþáttarins „So You Think
You Can Dance?“ árið 2006 og segir
Júlí Heiðar Halldórsson, kennari við
DanceCenter, heimsóknina vera mikinn
feng fyrir alla þá sem hafa áhuga á dansi
á Íslandi.
„Ég líki þessu oft við fótboltann,
því þetta væri svipað og að fá David
Beckham til þess að vera með knatt-
spyrnunámskeið á Íslandi. Allt svona
eflir áhugann á íþróttagreininni og er
nauðsynlegt til þess að viðhalda áhuga
þeirra sem æfa,“ segir Júlí.
Viðburðurinn verður opinn öllum og
engin aðgangseyrir að námskeiðinu.
„Við gerum út á æskulýðsstarf og
viljum sá fræjum í dansmenningu lands-
ins og gera öllum, ekki bara börnum og
unglingum, kleift að stunda dans, óháð
efnislegum aðstæðum. Allir eiga að fá
tækifæri til þess að upplifa dansgleð-
ina,“ segir Júlí.
Námskeiðið byrjar klukkan 16.45 og
stendur til klukkan 19. Þeir sem hafa
skráð sig á haustönn skólans fá forgang
því búist er við gríðarlegum fjölda.
„Þetta verður ótrúlega skemmtilegt og
allir sem taka þátt verða tilbúnir með
sporin, hvort sem þeir eru að fara á tón-
leikana eða bara að hlusta á plöturnar.
Koumaev er ótrúlega flottur og spenn-
andi að fá að hitta hann, og dansa með
honum,“ segir Júlí.
Fyrir þá sem vilja skrá sig á námskeið-
ið er bent á heimasíðu DanceCenter
Reykjavík www.dancecenter.is til þess
að skrá sig. -hf
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Lokaútsala
enn meiri verðlækkun
70% afsláttur af öllum útsöluvörum
(reiknast af upphaflegu verði)
Verslunin Belladonna
Stærðir 38-58
Grínistinn Halldór Halldórsson, betur
þekktur sem Dóri DNA, gengur í heilagt
hjónaband með Magneu Guðmunds-
dóttur um helgina. Tæp tvö ár eru
síðan þau trúlofuðu sig í Moskvu
og brúðkaupsveislan verður í
Tjarnarbíói á laugardagskvöld.
Veislustjórar eru þau
Jóhann Alfreð Kristjánsson,
félagi Dóra í uppistands-
hópnum Mið-Íslandi, og Rún
Ingvarsdóttir fréttakona. Rún er
tvíburasystir Ránar, konu Bergs
Ebba, þriðja félagans í Mið-Íslandi, en
Dóri og Magnea kynntust einmitt í brúðkaupi
Ránar og Bergs.
Boston-mæðgin með nýjan stað
Nýr skemmtistaður verður opnaður á næstunni efst á Klapparstíg þar sem Pasta Basta
var á árum áður. Það eru Boston-mæðginin Sigga og Jóel sem reka staðinn og verður
Hawaii-þema á honum.
Sænska
hljómsveitin
The Knife
treður upp á
Iceland Airwa-
ves-hátíðinni
í nóvember.
Þetta er í
fyrsta skipti
sem The Knife
kemur fram
á Íslandi og
verða tónleik-
arnir auk þess
þeir síðustu á
Shaking The
Habitual-tón-
leikaferðalag-
inu sem hófst
á síðasta ári.
Nútíminn í loftið
Atli Fannar Bjarkason,
fjölmiðlamaður og fyrrum
framkvæmdastjóri Bjartrar
framtíðar, setur í loftið nýjan
vefmiðil eftir helgi. Miðillinn
kallast Nútíminn.
Brúðkaupsveisla
í Tjarnarbíói
The Knife á Airwaves
66 dægurmál Helgin 22.-24. ágúst 2014