Fréttatíminn - 31.10.2014, Qupperneq 28
M ig hefði aldrei grunað að þetta yrði sá staður sem ég er á í dag. Stundum er hreint ótrúlegt hvert lífið fer með mann,“ segir Birta Árdal Bergsteinsdóttir, 23 ára stúlka úr Mosfellsbænum, sem gerðist múslimi eftir að hafa kynnst trúnni á
ferðalögum erlendis og er nýflutt til Marokkó. „Það eru tvær vikur síðan ég kom hingað í
þetta skiptið og hreinlega veit ekki hvað ég ætla að búa hér lengi. Það bara kemur í ljós,
eða „Insha’Allah“ eins og við segjum,“ segir Birta og notar eitt algengasta orðatiltæk-
ið í hinum arabíska heimi sem merkir: Ef Guð lofar.
Birta segist hafa verið dæmigerð íslensk stelpa fram að tvítugu, hún er ljóshærð
og bláeygð, djammaði um helgar og klæddi sig eftir ríkjandi tísku. Hún var í
stuttu viðtali í Morgunblaðinu árið 2011 af því tilefni að hún var ein aðal stjarnan
í söngleiknum Hairspray,
sem Menntaskólinn
við Sund setti upp, og
ennfremur formaður
nemendafélagsins. Þar
segir hún frá því að
draumastarfið sé annað
hvort söngkona eða leikkona,
að hennar uppáhalds iðja á heim-
ilinu sé að knúsa mömmu og pabba og
að mest af öllu langi hana til að geta farið
í heimsreisu eftir útskrift. Þessi heimsreisa varð að
veruleika og endaði í Marokkó.
Stóru spurningar lífsins
„Eftir útskrift úr MS fór ég fyrst með vinkonu minni, síðan fór ég til
Mexíkó og loks til Vestur-Afríku þar sem ég var á þriðja mánuð,“ seg-
ir Birta. Hún kom aftur til Íslands en ævintýraþráin kallaði og í þetta
skiptið fór hún til Marokkó að heimsækja vini sem hún hafði eignast
þegar hún var í Senegal. Það var í mars 2012 sem hún kom fyrst til
Marokkó og bjó þá í sjávarbænum Essaouira um 200 kílómetrum
vestan við Marrakesh þar sem hún vann á hosteli fyrir mat og
húsnæði. „Ég fékk vinnu hjá þessum vinum mínum á hostelinu.
Ég var þá úti í þrjá mánuði og við ræddum aldrei trúmál. Þetta
var bara rétt eins og í íslensku samfélagi er iðkun kristni ekki
stór hluti af daglegu lífi,“ segir hún og bendir á að trúarviðhorf
séu mun frjálslegri í Marokkó en til að mynda í Sádi-Arabíu
þar sem samfélagið er mjög strangtrúað, og í Marokkó á hún
bæði strákavini og stelpuvini. „Ég kynntist þeim mjög vel og
við vorum öll að velta fyrir okkur hinum stóru spurningum
lífsins um af hverju við erum hér og hver sé tilgangur lífsins.
Við vorum gagnrýnin á þá neysluhyggju og ofgnótt sem víða
er við lýði. Í nútímasamfélagi búum við víða við að eiga allt
og erfiðum ekki fyrir lífsnauðsynjum heldur fyrir einhverju
sem við þurfum ekki á að halda.“ Þeir vinir sem Birta
eignaðist úti voru frá Marokkó en höfðu ferðast um
heiminn, kynnt sér aðra menningarkima og velt
upp gagnrýnum spurningum. „Einn þeirra bjó
á Spáni í áratug og kann 6 tungumál,“ segir hún
til skýringar.
Birta sneri aftur til Íslands eftir 3ja mánaða
dvöl en fannst hún sogast aftur inn í hringiðu
neysluhyggju, langaði að leggja meiri rækt við sinn
innri mann og fór aftur til Marokkó. „Þegar ég kom
aftur út fann ég að þessir vinir mínir höfðu breyst,
á jákvæðan hátt. Þá kom í ljós að þeir voru byrjaðir að
stunda trúna, lesa Kóraninn og leita meira inn á við. Þeir
sögðu mér að þeir væru búnir að finna svörin við öllum
spurningunum sem við hefðum verið að velta fyrir okk-
ur og þau stæði svart á hvítu í Kóraninum.“ Birta segist
nánast hafa hlegið að þeim í fyrstu og líkir þessu við þau
viðbrögð sem dæmigerður Íslendingur myndi fá ef hann
tilkynnti að hann hefði fundið öll svör lífsins í Biblíunni.
„Ég varð samt mjög forvitin og við tóku daglegar djúpar
samræður svo vikum skipti.“
Var áður trúlaus
Fyrir þetta var Birta trúlaus og fannst trúarbrögð frek-
ar hafa slæmar afleiðingar fyrir samfélög en hitt. Hún
segir erfitt að útskýra hvað það var sem heillaði hana
við íslam. „Eftir að hafa rætt sleitulaust um lífið og til-
veruna fór ég að fá sterka tilfinningu fyrir því að það
væri eitthvað æðra og við værum á jörðinni af ástæðu.
Ég fór að lesa mér til um trúarbrögð, ekki bara íslam. Að
vera múslimi skilgreinir þig á þann hátt að þú trúir að það sé
bara einn guð, einn Allah eða eitt almætti. Múslimar trúa því
líka að Múhameð hafi verið sendiboði Allah, eða Guðs, en
með því að trúa að hann hafi verið sendiboði Guðs trúir mús-
limi líka að allir hinir sendiboðarnir hafi verið til; Abraham,
Jesú og Móses. Það er ekkert í trú múslima sem girðir fyrir
að Búdda hafi verið sendiboði Guðs. Múslimar setja Jesú á
háan stall en það sem greinir á er að múslimar líta ekki á
hann sem son Guðs heldur einn af sendiboðunum. Þetta
eru ólíkir sendiboðar sem komu á ólíkum tímum en
Múhameð er sá sem kom með síðustu
skilaboðin
og því líta múslimar á að hann hafi fullkomnað skilaboðin.“
Samkvæmt trúnni fæddist Múhameð spámaður 20. apríl 570 í borginni
Mekka í Sádi-Arabíu. Hann varð snemma munaðarlaus en þegar hann var
þrítugur fékk hann vitrun frá erkienglinum Gabríel sem sagði honum að
hann væri spámaður Guðs og ætti að bera út boðskap hans. Þremur
árum seinna byrjaði hann að predika en til að byrja með virtu
hann fæstir viðlits. Birta segir sögu Múhameðs hafa haft
mikil áhrif á sig en tekur fram að hún trúi ekki á Múhameð
heldur Allah. „Múhameð var maður rétt eins og Jesú var
maður. Þeir höfðu þó tengingu sem við hin höfum ekki og
munum aldrei hafa.“
Slæðan samræmist femíniskum gildum
Birta lagðist í mikla sjálfsskoðun, sneri í raun við öllum
þeim gildum sem hún hafði viðhaft og lagð nýtt mat á lífið
og tilveruna. „Eftir að ég gerðist múslimi í hjartanu ákvað
ég að fara aftur til Íslands og sannreyna hvort trúin
væri sönn eða hvort ég væri mögulega að verða
fyrir áhrifum frá vinum mínum í Marokkó. Ég
fór að vinna við tamningar úti í sveit, tók með
mér fjöldann allan af bókum um íslam og vildi
sjálf upplifa að sjá ástæðuna fyrir þessu öllu.“
Almennt er talað um fimm stoðir íslam sem
allir múslimar fylgja og ein þeirra er að biðja
fimm sinnum á dag. „Mér fannst í fyrstu
alveg fáránlegt að biðja fimm sinnum á dag
bara því það á að gera það fimm sinnum.
Ég byrjaði á að biðja einu sinni, þegar
mig langaði til þess og þegar mér hent-
aði. Ég fann síðan hversu mikið það
gaf mér að biðja, að leggja ennið á
jörðina einu sinni á dag og jarðbind-
ast. Rétt eins og hugleiðslan hjá
búddistum þá náði ég með þess-
um hætti að tengja sjálfa mig
og minna mig á hversu mikil-
vægt er að gleyma mér ekki
í daglegu amstri yfir stressi
sem engu málið skiptir.
Ég ákvað síðan að fjölga
því hversu oft ég bað og
ákvað loks að prófa að
biðja fimm sinnum á
dag. Ég bið enn fimm sinnum á dag og
finn hvað það er mér nauðsynlegt.“
Annað sem Birtu fannst í fyrstu frek-
ar tilgangslaust var að bera slæðu yfir
hárinu á sér. „Við Íslendingar og margir
aðrir tengja slæðuna helst við kúgun, að
konur í múslimalöndum hafi ekki rétt-
indi og að þeim sé ætlað að hylja líkam-
ann fyrir karlmönnum. Þegar ég byrjaði
að kynnast íslam fannst mér erfitt að
skilja tilgang slæðunnar. Ég er mikill
femínisti og í dag samræmist notkun
hennar algjörlega mínum femínísku gild-
um. Það hefur enginn sagt mér að setja
slæðu á höfuðið og það stendur ekkert
um notkun slæðu í Kóraninum. Þar eru
hins vegar fyrirmæli um að ekki skuli
horfa á fólk af hinu kyninu á kynferðis-
legan hátt, en það eru fyrirmæli bæði
til karla og kvenna. Eitt af því sem hafði
úrslitaáhrif á það að ég tók upp slæðuna
eru þær staðalmyndir sem fylgja notkun
hennar. Ég vildi nota slæðuna til að sýna
að íslensk stelpa með blá augu getur kosið
að bera slæðu,“ segir Birta sem ákvað í
ágúst á þessu ári að byrja að nota hana en
þá var hún stödd á Íslandi.
„Slæðan er mjög persónuleg fyrir hverja
konu. Fyrir mig var þetta skref í minni
andlegu vegferð og líka til að minna mig
á að halda sjálfri mér fyrir mig og engan
annan. Ég kýs að klæðast fötum sem sýna ekki
brjóstaskoruna, leggina eða magann. Áður fór
ég á djammið eins og hver önnur íslensk stelpa
og klædd samkvæmt hefðbundnum íslenskum
stöðum. En þetta er núna mitt val. Ég tel það ekki
neins annars hvernig ég er vaxin eða hvernig
líkami minn lítur út. Klæðnaður sem hylur
líkamann er líka vörn fyrir staðalímyndum um
Ég heiti Birta og ég er múslimi
Birta Árdal Bergsteinsdóttir er 23 ára stúlka úr Mosfellsbænum sem gerðist múslimi eftir að hafa kynnst trúnni á ferðalögum erlendis og er
nýflutt til Marokkó. Birta segist hafa verið dæmigerð íslensk stelpa sem djammaði um helgar og klæddi sig eftir ríkjandi tísku en gengur nú
með slæðu á höfðinu. Birta var á Íslandi þegar hatrammar umræður áttu sér stað um mosku í Sogamýri og segir hún að sér hafi sárnað mjög.
Hún er heilluð af íslam og Múhameð spámanni og segir umræðuna á Vesturlöndum oft vera á villigötum.
Hver er
Fæðingardagur:
26. janúar 1991 og
uppalin í Mosfells-
sveit.
Foreldrar:
Bergsteinn Björg-
úlfsson kvikmynda-
tökumaður og
Sigríður Þóra Árdal
hönnuður.
SyStkini:
Bjarmi Árdal Berg-
steinsson, 26 ára og
Sindri Árdal Berg-
steinsson, 17 ára.
HjúSkapaStaða:
Einhleyp og
barnlaus.
FélagSStörF:
Ármaður Skóla-
félags Mennta-
skólans við Sund
2010-2011.
ÁhugaMÁl:
Mikil hestakona, á
eigin hesta og starf-
aði við tamningar.
náM og StörF:
Lauk framhalds-
prófi í klassískum
söng frá Söngskól-
anum í Reykjavík.
Hefur starfað við
kvikmyndagerð og
var meðal annars
annar aðstoðarleik-
stjóri Hross í Oss
Birta Árdal
Bergsteinsdóttir
?
Framhald á næstu opnu
Birta Árdal Bergsteinsdóttir kynntist íslam upphaflega í Marokkó
og er nú nýflutt þangað til að læra arabísku og finna sig betur í trúnni.
Ljósmynd/Lindsey Rose Inman
28 viðtal Helgin 31. október-2. nóvember 2012