Fréttatíminn - 31.10.2014, Síða 32
Lífsnauðsynlegt að rugla
Halldóra Geirharðsdóttir vonast til að farsinn „Beint í æð“ eftir
Ray Cooney, sem hún leikstýrir og frumsýnir í Borgarleikhús-
inu í kvöld, skilji ekkert eftir sig nema hamingju og hlátur. Hún
er mætt aftur í leikhúsið eftir að hafa farið í heimsreisu með
fjölskyldunni þar sem hún lærði meðal annars að rugl er lífinu
nauðsynlegt. Hún er hrifin af kynslóð dætra sinna sem er frjáls
og óhrædd við að rugla.
M ér var boðið að setja upp gamanleik og mér fannst það vera akkúrat það sem
hentaði mér. Ég var svo til í að fara
beint í það og þurfa ekki að hugsa
neitt sérstaklega um að búa til eitt-
hvað stórkostlegt listaverk,“ segir
Halldóra sem frumsýnir „Beint í æð“
í Borgarleikhúsinu í kvöld.
Góður farsi eins og gott partí
„Beint í æð“ fjallar um einn dag í
lífi Jóns Borgars, sem er læknir á
Landakostspítala. Á spítalanum er
ráðstefna þrjátíu erlendra tauga-
lækna sem enginn hefur áhuga
á nema Jón Borgar því hann á að
flytja eina mikilvægustu ræðu lífs
síns á ráðstefnunni. Allir aðrir eru
að hugsa um jólaballið
sem á að vera um kvöld-
ið. Stuttu fyrir fyrirlest-
urinn birtist svo gömul
kærasta af spítalanum
og Jón Borgar þarf að
gangast við gömlum
syndum, frá því fyrir
sautján árum og níu
mánuðum síðan. Þetta
er auðvitað ávísun á
mikið klúður, Jón Borg-
ar byrjar að hagræða
sannleikanum og úr
verður ein risa flækja.
„Þetta er auðvitað
pjúra farsi,“ segir Hall-
dóra, „hálfgert tónverk,
mikill hraði, opna dyr,
loka dyrum, inn, út og
aftur til baka og alveg
ógeðslega fyndið. Að stjórna svona
verki er í raun eins og að stjórna
hljómsveit. Eða eins og að búa til
gott popplag, stroka út og lengja
og velja hvað virkar og hvað virk-
ar ekki,“ segir Halldóra en það er
Gísli Rúnar Jónsson sem staðfær-
ir farsann yfir á Ísland. „Hann er
náttúrulega bara snillingur í því
og svo er ég með frábæran leik-
hóp. Hilmir Snær er í aðalhlut-
verki en hann hefur ekki leikið
í gamanleik í tuttugu ár. Það er
ógeðslega gaman að leika farsa en
hann er svo góður leikari að hann
er alltaf fenginn í Ríkharð þriðja
eða einhverjar dramatískar rullur.
En það er fátt skemmtilegra fyrir
leikara en að leika farsa því þú ert
í svo miklu sambandi við salinn,
færð ánægju eða óánægju áhorf-
enda beint í æð. Það er soldið eins
og að vera í góðu partíi, þú veist
alveg hvort það er góð stemning
og gaman í partíinu eða ekki. Von-
andi á þessi sýning ekki
eftir að skilja neitt eftir
sig annað en það að fólk
fari hamingjusamara
út. Eða eins og það hafi
vaknað, því ef maður
hlær mikið þá vaknar
maður.“
Stolt af heimsreis-
unni
Halldóra tók sér ársleyfi
frá störfum í fyrravor til
að ferðast um heiminn
með manni sínum og
tveimur yngstu börnum
þeirra og „Beint í æð“
er því hennar fyrsta
verkefni eftir langt frí.
„Þessi ferð er eitt af því
sem mér finnst ég geta
verið mjög stolt af að hafa tekist
á við. Þetta var bara dásamlegt í
alla staði og miklu auðveldara en
ég bjóst við. Það erfiðasta við þetta
allt saman var að taka ákvörðun
um að fara. Það er alltaf aðalmálið
að breyta til og fara út af sporinu
sínu,“ segir Halldóra sem finnst
líka gott að vera komin aftur í
leikhúsið. Hún stígur þó ekki á
svið fyrr en í desember þegar
sýningar á Jesú litla og Billy El-
liot hefjast. „Þetta er náttúrulega
bara skemmtilegasti vinnustaður
í heimi. Og að æfa farsa er svo
ógeðslega gaman, við erum búin
að hlæja stanslaust í sjö vikur. En
svo er líka gott að fara ekki upp á
svið fyrr en í desember og fá þann-
ig að vera áfram í fríi um helgar og
að geta borðað kvöldmat með fjöl-
skyldunni.“
Verðum að þora að rugla
Það eru fleiri en Halldóra sem hafa
gaman af því að grínast í fjölskyld-
unni því Steiney, dóttir Halldóru,
hefur vakið athygli fyrir frábæra
frammistöðu sína í Hraðfréttum.
„Hún fær mikið hrós fyrir og það
hlýjar auðvitað móðurhjartanu.
Hún Steiney er alveg frábær og
þrátt fyrir að vera komin í grínið er
hún að feta einhverja leið núna sem
er algjörlega hennar eigin,“ segir
Halldóra, en Steiney dóttir henn-
ar og Kolfinna, stjúpdóttir henn-
ar, eru báðar meðlimir í kvenna-
söngsveitinni Reykjavíkurdætrum.
„Þetta eru rosalega flottar stelpur
og ég er svo ánægð með þær. Ég
var sjálf í hljómsveit áður en ég fór
í leiklistarskólann en í gamla daga
þá var það dáldið þannig að allt
þurfti að vera svo fullkomið sem
stelpurnar gerðu. Við þorðum ekki
að rugla nógu mikið. Þess vegna
finnst mér svo ógeðslega gaman að
sjá Reykjavíkurdætur, því þær eru
svo frjálsar. Þessi kynslóð af stúlk-
um þorir mikið meira að rugla,
hlutirnir þurfa ekki endilega að
vera 100% því það er bara gaman að
rugla. Að vera ekki svona markmið-
asettur alltaf heldur læra að hafa
bara gaman af þessu öllu saman.
Og gera bara það sem manni dett-
ur í hug. Það var líka eitt sem ég
ákvað eftir heimsreisuna, að það
er nauðsynlegt að hafa meira rugl
í lífi sínu.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Halldóra Geir-
harðsdóttir er
ánægð með að
vera komin aftur
í leikhúsið eftir
ársleyfi, enda sé
það „skemmti-
legasti vinnu-
staður í heimi“.
Hver er
Maki:
Nikkó.
BöRn:
3 og 2 stjúpbörn.
Uppalin:
Í Fossvogi.
BýR núna:
Í Skerjafirði.
leyndUR Hæfi-
leiki:
Að bakka í stæði.
Halldóra
Geirharðsdóttir
?
32 viðtal Helgin 31. október-2. nóvember 2012