Fréttatíminn - 31.10.2014, Qupperneq 58
58 matur & vín Helgin 31. október-2. nóvember 2012
Íslenska landsliðið í fótbolta komst ekki á HM og sömuleiðis ís-
lenska landsliðið í handbolta en það er í það minnsta eitt lands-
lið sem er á leiðinni á HM og það er kokkalandsliðið. Liðið, sem
skipað er mörgum okkar færustu matreiðslumönnum, er á leiðinni
á heimsmeistaramótið sem haldið verður í Lúxemborg í nóvember.
Vín vikunnar
F lestir para vín með grunn-þætti máltíðarinnar, sem er yfirleitt prótínið, rautt kjöt,
fuglakjöt eða fiskur og það er fín-
asta regla. Stundum borgar sig að
para vínið með öðrum þáttum eins
og sósu eða kryddi en það er önnur
saga. Þegar vín og prótín eru pöruð
saman er grunnreglan sú að finna
vín sem hefur svipuð einkenni og
maturinn, ljós einföld vín með léttri
áferð fyrir léttari máltíðir eins og
hvítan fisk og salöt og dökk, fyllri
og flóknari vín með flóknari og
bragðmeiri mat.
Fullyrðingin hvítt með fiski og
rautt með kjöti stendur alveg fyrir
sínu en þó ekki alveg. Með feitari
fiskum eins og laxi og silungi og
jafnvel skötusel er t.d. oft gott að
vera með léttari rauðvín eins og
Pinot Noir, sérstaklega ef hann er
grillaður og með léttara kjöti eins
og sumu svínakjöti og kálfakjöti (ef
þú finnur það) getur virkað vel að
vera með þyngri og fyllri hvítvín
eins og kalifornískt Chardonnay.
Shiraz-vín eiga það til að vera í
þyngri kantinum og vel krydduð.
Þetta Shiraz er er í þá áttina en
milt engu að síður miðað við og
nær einnig að vera vel rúnnað
með ágætsifyllingu. Dökkt
vín með dökkum berjum
og plómum. Byrjar örlítið
sætt en endar þurrt. Tilvalið
með krydduðum mat, t.d.
þyngri pottréttum með kjöti
eða jafnvel sterkrydduðum
asískum mat.
Mureda Tempranillo
Gerð: Rauðvín
Uppruni: Spánn, 2013
Styrkleiki: 14,5%
Þrúga: Tempranillo
Verð í Vínbúðunum: 1.899 kr.
Mureda er tiltölulega nýtt
vörumerki í ÁTVR. Þetta líf-
rænt ræktaða Tempranillo-
vín frá þeim lætur ekki
mikið yfir sér en kemur
ágætlega á óvart. Milt,
auðdrukkið og bragðgott
er það með berjakeim og
örlítilli sveit. Tannínin eru
þarna en þau taka ekki
völdin. Þetta er ekta létt
rauðvín til að drekka með
tómatpasta og öðrum létt-
ari réttum sem hugsanlega
annars hentuðu þyngra
hvítvíni.
Einfalt með einföldu og flókið með flóknu
Suður Afríka er spennandi
víngerðarland. Þetta vín er
ekta fordrykkur. Þurrt og
ferskt með sítrus og ávexti
og ekkert mikið meira um
það að segja. Það væri
gaman að prófa það með
sushi útaf þurrleikanum
sem virkar oft vel á móti
edikinu í sushi. Ef það
er drukkið með fiski er
líklega best að hafa réttinn
eins einfaldan og hægt er.
Alsace í Frakklandi er prýðis-
svæði með mörgum úrvalsvínum.
Þetta vín er eilítið sætt og milt og
rennur niður án teljanlegra átaka.
Ávaxtaríkt er það og sætan kemur
eiginlega mest þaðan enda er
hún ekkert aðalatriði. Flestir
myndu para þetta vín saman
við óágengan mildan mat eins
og kjúlla en sætan gerir það
að verkum að vínið getur alveg
staðið af sér smá seltu eins og í
reyktu kjöti o.þ.h.
Wyndham Bin 555 Shiraz
Gerð: Rauðvín
Uppruni: Ástralía, 2012
Styrkleiki: 14,2%
Þrúga: Shiraz
Verð í Vínbúðunum: 2.599 kr.
Arthur Metz Pinot Gris
Gerð: Hvítvín
Uppruni: Alsace, Frakkland 2013
Styrkleiki: 12,5%
Þrúga: Pinot Gris
Verð í Vínbúðunum: 2.299 kr.
La Motte Sauvignon Blanc 2013
Gerð: Hvítvín
Uppruni: S-Afríka 2013
Styrkleiki: 13%
Þrúga: Sauvignon Blanc
Verð í Vínbúðunum: 2.299 kr.
Höskuldur Daði Magnússon
Teitur Jónasson
ritstjorn@frettatiminn.is
S: 1819 | 1819. IS
ÞR
ÆL
GA
MA
N
S á sem þetta skrifar er áhuga-samur um mat og matseld og því var stutt í jáið þegar boðið
kom um að mæta á eina af lokaæf-
ingum fyrir heimsmeistaramótið
og borða hádegismat af keppnis-
seðlinum.
Ég vissi svo sem ekki mikið um
matreiðslukeppni annað en það
sem gerist í Masterchef í sjónvarp-
inu. Helst það að það sem gerist
í Masterchef fer ekkert út fyrir
Masterchef, en það er önnur saga.
Vissi þó að maturinn er hjúpaður
í gelatíni eða einhverju jukki til að
hann standist tímans tönn þar til
dómararnir komast í að dæma. Sem
betur fer var það bara hálf sagan
því kokkarnir eru dæmdir bæði
á þessu kalda borði þar sem allt
er hjúpað og líka eftir heitu borði,
venjulegum, eða kannski ekki svo
venjulegum, þriggja rétta matseðli
þar sem 110 gestum er þjónað til
borðs. Dómararnir grípa svo tíu
diska af handahófi til að dæma svo
það er eins gott að halda gæðunum
uppi.
Sem betur fer fyrir mig var
það æfing á heita matnum sem
boðið var í þetta þriðjudagshádegi.
Byrjað var á forrétti, en ekki hvað.
Í honum var meðal annars humar
og þorskur og var rétturinn borinn
fram með skelfiskssósu og vineg-
rette. Ég ákvað að geyma humar-
inn til síðast af því að hann er svona
spari. Komst þó fljótlega að því að
kokkalandsliðið eldar fisk ekki
eins og allir hinir því humarinn var
vissulega ljúffengur en þorskurinn,
sem var hægeldaður, var með því
betra sem ég hef smakkað lengi og
vinegrettið var út úr þessum heimi.
Lambakjöt í sparifötunum
Í aðalrétt var borið fram lamba-
kjöt, hvað annað. Ég kom stykkinu
ekki fyrir mig en það reyndist við
nánari athugun vera frá mjöðm
dýrsins. Ég hugsa að það hafi verið
við hlið þorsksins í hægelduninni
því ég gat tuggið mjöðmina með
augnlokunum, svo mjúk var hún.
Á diskinum var líka maukelduð
tungu- og skankablanda sem rann
einstaklega ljúft niður. Allt meðlæti
var augljóslega vel hugsað og ef það
hefði þótt samfélagslega ásættan-
legt í félagsskapnum þetta hádegið
Kokkalandsliðið er ekki skipað neinum aukvisum úr greininni og augljóst að framtíðin er björt í matreiðslu á Íslandi. Ljósmyndir/Hari
Löns hjá
landsliðinu
hefði ég sleikt diskinn í lokin.
Eftirrétturinn bar keim jarðar-
berja og sendi mig með afar ljúf-
fengt eftirbragð út í daginn. Það
eina sem vantaði eftir matinn var
að ég kæmist heim í kósíföt og upp
í sófa. Svona rétt til að melta þessa
ljúfu máltíð landsliðsins með þeim
hætti sem hún átti skilið.
Haraldur Jónasson
hari@frettatiminn.is