Fréttatíminn - 31.10.2014, Qupperneq 60
Staropramen
Tegund: Lager.
Styrkleiki: 5%
Verð: 289 kr. 330 ml flaska.
60 bjór Helgin 31. október-2. nóvember 2012
Góð saga
í jólapakkann
Í yfir 50 ár hefur fólk eignast
ógleymanlegar minningar á Hótel Sögu
Við bjóðum upp á fjölbreytt gjafabréf á Hótel Sögu,
svo allir finna eitthvað við sitt hæfi.
Kynntu þér Óskasögu, Rómantíska sögu, Draumasögu,
Ástarsögu og Dekursögu á vefnum okkar.
www.hotelsaga.is
A
N
T
O
N
&
B
E
R
G
U
R
B úist má því að fjöldi Íslendinga ferðist til Tékklands í næsta mánuði þegar við mæt-um Tékkum í undankeppni EM í fótbolta.
Leikurinn fer fram sunnudaginn 16. nóvem-
ber. Bæði þeir sem ferðast út og þeir sem horfa
heima í stofu ættu að fara að koma sér í gírinn
enda er um toppslag í riðlinum að ræða. Sígilt er
að kynna sér matar- og drykkjarmenningu and-
stæðinganna. Efstur á blaði fyrir þennan leik er
hinn vinsæli lagerbjór Staropramen.
Staropramen er klassískur tékkneskur lager-
bjór, ferskur en um leið með þægilegu humla-
bragði. Hér á landi fæst hann bæði í 330 ml
flösku og í 500 ml dós.
Staropramen-bjórinn á rætur sínar að rekja
til ársins 1869 en fyrsti bjórinn var bruggaður
árið 1871. Eftir síðari heimsstyrjöldina voru öll
brugghús í Tékkóslóvakíu þjóðnýtt en eftir hrun
kommúnismans stóðu þau á eigin fótum á ný.
Staropramen hefur verið á góðri siglingu síðan
1989 og er nú annar stærsti bjórframleiðandinn
í Tékklandi. Staropramen er vinsælasti bjórinn
sem framleiddur er í Prag.
Þeir sem eiga leið um Prag ættu að gera sér
ferð í Staropramen-brugghúsið. Þar er boðið upp
á skoðunarferðir um brugghúsið og að sjálfsögðu
fá gestir að smakka á veigunum að skoðunar-
ferðinni lokinni. Brugghúsið er á frábærum stað
og skoðunarferðirnar eru mjög vinsælar meðal
ferðamanna í Prag. Staropramen fæst í Vínbúð-
unum Heiðrúnu, Skútuvogi, Dalvegi, Skeifunni,
Hafnarfirði, Akureyri og Kringlunni.
Frábær bjór til að hita
upp fyrir Tékkaleikinn
Íslenska landsliðið í knattspyrnu sækir Tékka heim í undankeppni EM 2016 hinn 16. nóvember
næstkomandi. Nú er um að gera að fara að hefja undirbúning og fyrsta skrefið er að velja
rétta bjórinn. Staropramen er vinsælasti bjórinn sem framleiddur er í Prag og er frábær til
að hita upp fyrir leikinn.
Staropramen
Tegund: Lager.
Styrkleiki: 5%
Verð: 349 kr. 500 ml dós.
Staropramen
er klassískur
tékkneskur
lagerbjór,
ferskur en
um leið með
þægilegu
humlabragði.
Staropramen
er vinsælasti
bjórinn sem
framleiddur
er í Prag.