Þjóðlíf - 01.10.1987, Side 28
INNLENT
Þjóð í leit að fullnægingu
Aö lifa og vinna meö englum
HELGINA 19. og 20. september komu um
40 manns saman í Víkingsheimilinu í
Reykjavík. Þar var stödd bandaríski miðill-
inn og danskennarinn Suzanne Gerleit sem
andlegur leiðbeinandi á vakningarnám-
skeiði. Kynnti hún viðstöddum Engla-
konungdöminn og veitti leitandi sálum að-
stoð svo að þeir gætu lært að lifa og vinna
með englum, meisturum og tívum. Suzanne
hélt bæði hópnámskeið og var með einka-
tíma fyrir andlega leitandi fólk. „Þetta er
hluti af þeirri alheimsvitund sem er að
vakna. Við þurfum að læra að þekkja Engla-
konungdóminn því það eru verndarenglar
hjá okkur öllum og við þurfum að ná tökum
á því að vinna með þeim,“ segir Sigurborg
Guðmundsdóttir nuddfræðingur og for-
stöðumaður námskeiðisins sem í sömu
andránni hafnar því alfarið að þetta eigi eitt-
hvað sameiginlegt með trúarbrögðum.
„Trúflokkarnir mættu gjarnan koma til okk-
ar svo að við gætum betrumbætt þá eitt-
hvað,“ segir hún.
Á sama tíma og konungdómur hjálpar-
englanna var kynntur í Víkingsheimilinu var
fyrsta helgarnámskeið vetrarins á vegum
Heilunarskólans að hefja göngu sína í salar-
kynnum skólans í Breiðholti. Þar tóku þátt-
takendur þátt í hugleiðslu og meðtóku
fræðslu um dulræn efni og aðferðir til að
leiða alheimsorkuna til bóta fyrir mannkyn-
ið. ,,Það er komið víða við á námskeiðinu,"
segir Jytta Eiríksson, skólastjóri Norræna
heilunarskólans, sem hafði alla stjórn með
höndum á námskeiðinu. „Við fjöllum um
gerð innri mannsins og hvernig ytri áhrif geta
haft áhrif á manneskjuna og hvernig hægt er
að nota þessa þekkingu á hagnýtan hátt í
lífinu. Meðal annars er fjallað um gerheima,
sem eru tilfinningaheimurinn innra með
okkur og allt í kringum okkur," bætir hún
við.
Sunnudagskvöld, þessa sömu helgi, sýndi
ríkissjónvarpið svo þátt frá sálvaxtarmótinu
Snœfellsás 87 sem félagsskapurinn Þrídrang-
ur stóð fyrir. Þar komu rúmlega 300 manns
saman í samstilltri samleitni, hóphugleiðslu -
og innlendir sem erlendir áhugamenn um
mannrækt og andleg efni kynntu aðferðir
sínar. Einn óvirkur áhorfandi á mótinu sagði
eftirá:„það sem er einkennandi þarna, er að
það virðist vera pláss fyrir alla við þessar
ARI JOHANNESSON
• Orkuleiðni kennd hjá Heilunarskólanum,
• Englanámskeið I Reykjavík.
„Að *á það“
Á andlegum námskeiöum meö sálrænum
leiöbeiningum, englum og orkugjöfum
ÓTAL AÐILAR standa fyrir námskeiðahaldi
á veturna, jafnt háskólagengið fólk sem
sjálfmenntað og það fer ekki á milli mála að
námskeiðin eru orðin stór atvinnuvegur, líkt
og sólbaðsstofurnar og líkamsræktirnar. En
hvert er innihald þeirra óvenjulegu nám-
skeiða um ýmis andans mál sem skjóta nú
hvarvetna upp kollinum? Lítum á nokkur
dæmi:
STJÖRNUKORTAGERÐ. Störnukortagerð
og túlkun kortanna hefur komist í tísku á ný
hin síðustu ár og má skipta í tvennt: faglega
stjörnukortagerð og spádómlega. Iðkendur
stjörnukortagerðar hafa verið að snúa baki
við kerfunum, sem fram komu á miðöldum
og aðallega eru notuð til spádóma, því að
stjörnukerfaútreikningarnir, sem þau kerfi
byggja á, eru taldir rangir. Þess í stað hafa
kerfin frá því í fornöld verið hafin til vegs og
virðingar á ný, en þau þykja byggja á réttari
útreikningum.
Hjá félagsskapnum Stjörnukortarann-
sóknir er veitt tilsögn í gerð korta, auk þess
sem námskeið eru haldin í þróunar- ogsálar-
heimspeki.
I þróunarheimspekinni er farið yfir sköp-
un og þróun heimsins og að nokkru leyti
byggt á Shamballa, sem er indó-evrópsk
speki. Sálarheimspekin fjallar aftur á móti
um þróun einstaklingsins og er í báðum
greinum leitað fanga í trúarbragðaheimspeki
og goðafræði.
Að sögn aðstandenda Stjörnukortarann-
sókna er þetta þungt námskeið, þar sem
nemendur verða að leggja sig fram og reyna
virkilega á gráu heilasellurnar. Og gagnsem-
in? Um hana efast enginn. „Það hlýtur að
vera gagnlegt að vita hvernig maðurinn hef-
ur þróað hugmyndakerfi sín ígegnumaldirn-
ar,“ segir einn kennaranna.
ANDLEGA ORKAN. Norræni heilunarskól-
inn hefur skotið rótum hér á landi og er nú að
hefja þriðja skólaár sitt. Skólinn var stofnað-
ur, að sögn aðstandenda, vegna vaxand1
þarfar fyrir andlegt starf, kennslu og æfingar
í að starfa með þá andlegu orku sem er fyr,r
hendi á hærri vitundarsviðum mannsins.
Á helgarnámskeiðum skólans er þátttak-
endum m.a. kennd nokkur afbrigði af hug'
leiðslu, „sem á að stuðla að ró og jafnvægi og
26