Þjóðlíf - 01.10.1987, Page 29
athafnir. Þaö mátti sjá ótrúlegasta fólk á
svæðinu og þarna mættust bæði uppar og
gamlir hippar. Sumir með einhverjar hug-
myndir um að bæta samfélagið, aðrir í leit að
hverskonar leiðsögn eða tilgangi í lífinu, og
svo enn aðrir með aðeins praktísk fiff í
huga.“
Þetta eru aðeins fá dæmi af mörgum -
sýnishorn af þeirri „andlegu sjálfsstyrkingar-
bylgju"
sem gengur nú yfir þjóðina. Nefna
atá námskeið í stjörnukortagerð sem er ný-
hafið, hugræktarskóli Sigvalda heitins
Hjálmarssonar var endurvakinn á þessu
hausti og svo eru búddatrúarmenn á íslandi
orðnir tæplega eitthundrað talsins. Búdda-
trúarmenn trúa ekki á sérstakan guð heldur
*eggja áherslu á alheimsfrið á jörðu og að
styrkja eigið líf. Allt vekur þetta upp spurn-
lngar um trúarvakningu meðal þjóðarinnar.
hJÓÐLÍF greindi í ágúst frá mikilli trúar-
vakningu meðal kristilegra samtaka utan
Þjóðkirkjunnar. Sá sem fylgdist með nokkr-
____________INNLENT_________________
um samkomum þessara trúarhópa greindi
frá því eftirá að hann hefði furðað sig mest á
því hve hver og einn safnaðarmeðlimur virt-
ist einangraður og einn með sjálfum sér í
upphrópunum, söng og tilbeiðslu.
A vegum Þrídrangs er nú boðið upp á
einkatíma í endurfæðingu. Námskeiðið
byggir á uppgötvun bandaríska sálfræðings-
ins Leonard Orr sem gengur út á það að
uppræta mótandi áhrif fæðingarreynslunnar,
draga úr vöðvaspennu, örva eðlilegri öndun
og frjálsara tilfinningalíf. Þrídrangsmenn
segja: „Allir búa yfir þeim möguleika að
verða frjálsir, sjálfsöruggir og skapandi. f
sérhverjum einstaklingi leynast öfl sem miða
að samræmdum þroska og þar með lífsfyll-
ingu.“ Þá er þar einnig veitt ráðgjöf um
mataræði; grasafæði og blómadropa.
Það vekur athygli að á þeim námskeiðum
sem haldin eru víðsvegar á höfuðborgar-
svæðinu er oft erfitt að finna glögg skil á milli
viðurkenndra vísindaráða eða kukls. Hjá
Þrídrangi má finna lófalesara, miðla sem og
leiðbeinanda menntaðan í Iífeðlissálfræði.
Trúarlegt yfirbragð, leit á vit hins dulræna og
galdrar, er einkenni þeirra ráða sem beitt er
jafnhliða niðurstöðum vísindalegra rann-
sókna og kenninga. „Þetta hlýtur að fara
saman," segir einn meðlimur Þrídrangs í
samtali við ÞJÓÐLÍF. „Annað hvort erum
við að fást við hreina vitleysu eða staðreynd -
og ef þetta er staðreynd þá eru þetta vísindi
sem á eftir að uppgötva,“ segir hann. „Mikið
af okkar starfi felst í þerapíuvinnu, ekki
beinlínis lækningum, heldur að veita fólki,
sem þyrfti e.t.v. á sálfræðingi að halda, að-
stoð við að slaka á. Sálfræðingar hafa ekki
sinnt þessu sem skyldi," bætir hann við.
Ahersla á sérstakt mataræði vekur líka at-
hygli í fréttum af fólki sem leggur reglulega á
sig föstu, þarmahreinsun og stólpípu, „til að
hreinsa sig líkamlega sem andlega,“segja
þeir sem reynt hafa.
„Ég held að við séum hér að tala um ýkt-
ARI JÓHANNESSON
hækka okkur í hugsun og lífsfyllingu," eins
°&Jytta Eiríksson, skólastjóri kemst að orði.
Þarna eru líka reyndar heilunaraðferðir og
aTingar sem stuðla að því að læra að vera
°rkuleiðari fyrir orku frá hærri vitundar-
sviðum, stjörnuorku og orku meistara hinna
§eisla. Kennd er andleg þróun og kynntir
■ngerðari líkamar mannsins, eðli þeirra og
Próun. Jytta segir að áhuginn á þessum nám-
keiðum sé umtalsverður og hún telur mikla
P°’f fyrir námskeið af þessu tagi og segir:
j’Eg held að fólk vilji fá skilning á tilgangi
nsins og að fólk velti mikið fyrir sér spurn-
'ngum eins og af hverju er ég til. Það eina sem
, ., Þarf til er opinn hugur og áhugi.“ Þau
Ja heilunarskólanum leggja áherslu á að
^ann er ekki trúarbragðaskóli, „heldur
rekar guðspeki hagnýtt í daglegu lífi.“ Þetta
,r Þó ólíkt kenningum Guðspekifélags ís-
'ands.
ENGILL.
Eitt helgarnámskeið Suzanne Ger-
• „Folk vill fa skilning a tilgangi lífsins". Jytta Eiríksson skólastjóri.
leit, bandaríska miðilsins og danskennarans,
þar sem „Englakonungdómurinn" var
kynntur, kostaði kr. 5000 fyrir manninn. Það
stóð þó ekki í vegi fyrir mikilli aðsókn þegar
námskeiðið fór fram í september s.l.
„Allt í kringum okkur eru verndarar eða
leiðsöguenglar sem hjálpa okkur og eru sí-
fellt með okkur,“ segir Sigurborg Guð-
mundsdóttir, nuddfræðingur og forstöðu-
maður námskeiðsins. „í Englakonungdóm-
inum eru margar tegundir engla; einn vakir
yfir seremóníum, aðrir eru í sambandi við
tónlist, þriðju vinna við að byggja upp and-
legu hliðina, svo er ákveðinn verndarengill
sem fylgir hverjum manni. Þá má nefna engla
sem halda sig á heimilum - sérstaklega í
kringum börn og þar sem umhverfið er gleði-
legt o.s.frv. En til að kynnast þessu almenni-
lega þarf talsvert að læra á svona nám-
skeiði."
Sigurborg segir að margir sem sækja nudd-
tíma hjá henni hafi fengið áhuga á að kynnast
Englakonungdóminum og um sé að ræða
allskonar fólk. „Tilfinningarnar og líkaminn
er svo samtengt að oft áttar fólk sig ekki á að
allskonar Iíkamlegir erfiðleikar stafa af
bældum tilfinningum eða koma úr fyrri lífum
viðkomandi og hafa þá orsakirnar legið
djúpt í meðvitundinni. Suzanne hjálpar fólki
við andlega upplifun til að þroska sig og
verða betur meðvitað. Ein kona sem aldrei
hefur pælt í andlegum málum og er mjög
efniskennd fór í einkatíma hjá Suzanne og
varð mjög hrifin þannig að það er ekki aðeins
fólk með sérstakan áhuga á andlegum mál-
um sem nýtir sér þetta.“
HEILDRÆNAR AÐFERÐIR. Fræðslu- og
upplýsingamiðstöðin Þrídrangur tók til
starfa fyrir réttu ári síðan en hefur margeflst
á síðustu mánuðum og stendur fyrir fjöl-
skrúðugu námskeiðahaldi og starfsemi.
Meðal þeirra námskeiða sem Þrídrangur
hefur verið með má nefna námskeið í sjálf-
27