Þjóðlíf - 01.10.1987, Síða 44
eins og áöur sagöi er þaö hugmyndaauðgin og
hæfileikinn til aö nota þaö sem hendi er næst
sem gerir verk þeirra fersk. „Það eru margir
aö þróa grafískar hönnunarstöðvar. Paint
Box er hvaö fullkomnust núna, en það eru
nokkrar á leiðinni sem hönnuöirnir lofa aö
séu jafnvel enn fullkomnari. Ég er ekki á
móti Paint Box eöa öörum kerfum. Þaö er
hægt aö nota þau í vissum tilfellum. Gallinn
er bara sá að hönnunin er svo umfangsmikil
að útkoman veröur undantekningarlítið
keimlík. Til dæmis var gaman aö sjá kynn-
ingarnar í íslenska sjónvarpinu. Þær eru svo
áberandi gamaldags og í þessari grein er tím-
inn fljótur að líöa. Þaö eru ekki nema fjögur,
fimm ár síðan hægt var að ná málmáferð á
formin. Allir fóru þá út í málminn, sem
endaði auövitaö með því aö málmáferð varö
bannvara. Þegar ég sá kynningarmynd ís-
lenska sjónvarpsins var það eins og aö hitta
gamlan vin. Þeir sem komu fyrstir með
málmáferðina eru að reyna að mjólka síö-
ustu dropana með því aö bjóða lausnir gær-
dagsins á útsöluverði til þeirra staöa þar sem
ekki er búið aö ofkeyra fídusinn.
,,í rauninni eigum viö aö hluta til tækni-
brellunum velgengni okkar að þakka! Þegar
allt er eins og sömu brögðunum sé beitt,
veröa þau verk þar sem tæknin ræöur ekki
ferðinni mun ferskari fyrir vikið. Þaö taka
LISTIR
allir eftir því sem viö gerum af því að þaö er
svo hrátt.
„Ég heimsótti nokkra myndbandafram-
leiöendur hér og þaö kom mér á óvart hvaö
þeir gátu gert með litlum tilkostnaði, eins og
t.d. þeir hjá Frostfilm. í Englandi og aö vissu
leyti í Bandaríkjunum líka er samkeppnin
svo hörö aö það eru mjög fáir sem hafa eitt-
hvað að ráöi út úr þessum bransa. Það er nóg
að gera t.d. í tónlistarmyndböndum en þaö
eru varla gerð meira en tvö, þrjú tónlistar-
myndbönd á mánuöi sem einhverjir veruleg-
ir peningar eru lagðir í. Nú er þaö orðin
staöreynd aö myndböndin eru forsenda fyrir
því aö lögin nái inn á listana, en þetta er
mikið kapphlaup. Ef hljómsveitirnar eru
ekki þekktar þá er fyrst beðið eftir því hvort
plöturnar hreyfist eitthvaö í búðunum, en ef
það gerist er rokið til og þá er yfirleitt ekki
nema vika til stefnu. Þegar við gerðum tón-
listina viö Star Trekkin þá var haft samband
við okkur á föstudegi og á sunnudeginum var
ákveöiö aö fara út í myndbandagerð. Viö
unnum samfleytt í tjóra sólarhringa og á
fimmtudagsmorgni kl. 6 sendum við inn
hrátt sýniseintak til BBC og þeir samþykktu
að sýna þaö um helgina. Viö höfðum þá tíu
tíma til aö ganga endanlega frá myndband-
inu. Ef lagið heföi ekki komist inn þá heföi
öll vinnan verið unnin fyrir gíg af því aö ekki
heföi verið hægt að kynna lagið viku seinna
sem nýtt lag. Ég er kominn á þá skoðun núna
aö þaö sé betra að sofa tvo til fjóra tíma á
sólarhring, vegna þess aö þaö veröa allir svo
sljóir á aö vaka svona lengi. Þaö kemur niður
á afköstum og gæöum.
„Hingað til höfum við aðallega gert tón-
listarmyndbönd, og nokkrar auglýsingar.
Það er betur borgaö fyrir auglýsingarnar og
þá höfum við líka betri tíma. Við höfum
nokkuð frjálsar hendur við útfærsluna vegna
þess að fólk leitar til okkar til að fá eitthvað
sem er „öðruvísi". Auðvitað langar okkur til
að fást við verkefni sem eru ekki jafn bundin
af fé og tíma og það sem við erum að fást við
núna, og það komum við til með að gera.
Robert Johnson, sá sem gerði myndbandið
við Sledgehammer fyrir Peter Gabriel er
kominn í þá stöðu aö geta unnið við kjör-
aðstæður. Hann og Gabriel undirbjuggu sig
mánuðum saman áður en þeir hófust handa
við útfærsluna og þá fengu þeir til sín þrjá at
bestu brúðugerðarmönnunum í bransanum.
„Þetta er erfið vinna, en mjög gefandi, og
það er eins og að leikreglurnar séu að rýmka.
Það er tekið eftir þeim sem gera hlutina
öðruvísi og þeir fá tækifæri. Það er mikil þörf
fyrir endurnýjun."
• ÖrnD. Jónsson
Samvinnuferdir - Landsýn
Austurstræti 12 ■ Simar 91 -27077 & 91 -28899
Hótel Sögu viö Hagatorg ■ 91 -622277. Akureyri: Skipagötu 14 • 96-27200
AMSTERDAM
GLASGOW
42