Þjóðlíf - 01.10.1987, Qupperneq 45
VIÐSKIPTI & FJÁRMÁL
Bókvitið og tölvumar_______________________
Orn Aöalsteinsson um þekkingarkerfi og notkun þeirra
SUMIR FRÆÐIMENN hafa sagt aö nú sé
pnnur iðnbyltingin að hefjast og að þekk-
'ngarkerfin muni leggja grunninn að henni.
kann e.t.v. að vera fullsterkt til orða
tekið, en hitt er víst að þekkingarkerfin eiga
eftir að valda straumhvörfum hjá mörgum
fyrirtækjum með því að spara þeim fé og
styrkja samkeppnisstöðu þeirra," sagði örn
Aðalsteinsson í samtali við ÞJÓÐLÍF.
Orn hefur starfað í Bandaríkjunum allt frá
PVl að hann lauk doktorsprófi í efnaverk-
fr*ði frá Massachussetts Institute of
Fechnology í Boston árið 1977, þar af
s>öustu átta árin hjá bandaríska stórfyrirtæk-
'nu Dupont og frá því seinni hluta ársins 1985
nefur hann haft með höndum umsjón með
Uppbyggingu þekkingarkerfa hja Dupont.
Hann kom hingað til lands nýverið og hélt
yrirlestur um þekkingarkerfi á endur-
jnenntunamámskeiði Háskóla íslands, sem
aldið var í samráði við Verslunarráð íslands
°8 Félag íslenskra iðnrekenda.
Þekkingarkerfin tilheyra þeirri grein
'ólvufræðanna, sem nefnd hefur verið gervi-
8reind. Með gervigreind er átt við hluti, sem
®8t er að kenna tölvu að gera á jafngóðan
°a betri hátt en meðalmaðurinn og má
„ 'Pta gervigreindinni í fimm svið. í fyrsta
°kknum eru vélmenni og tölvukerfi til
stýríngar á þeim. í næsta flokki eru ýmis
°nar tölvukerfi ætluð til að stjórna flóknum
^erlum, t.d. í iðnaði. Til þriðja flokksins
eyra kerfi, sem t.d. eru ætluð til hönnunar
tramleiðslu, svonefnd CAD forrit. í
J°rða flokknum eru forrit, sem ætluð eru til
að kenna tölvum að tala og loks eru það svo
þekkingarkerfin.
Eins og nafnið þekkingarkerfi ber með sér
eru kerfi þess ætluð til að setja þekkingu á
einhverju ákveðnu sérsviði upp á aðgengi-
legan, einfaldan og rökréttan hátt. Á þennan
hátt er komið í veg fyrir að þekking glatist þó
svo einhver starfsmaður innan fyrirtækisins
láti af starfi, þvert á móti er þekkingunni
ennþá haldið í fyrirtækinu og hana geta aðrir
starfsmenn fært sér í nyt, auk þess sem hægt
er að hafa gagn af henni við þjálfun á nýju
starfsfólki. Með tímanum safnast þannig upp
innan fyrirtækisins mikil þekkingarbrunnur,
sem sífellt er að bætast í.
Þekkingarkerfin eru í raun náskyld þeim
gagnagrunnum, sem víða eru notuð í fyrir-
tækjum í dag, því hægt er að nota þau við að
nýta þær upplýsingar, sem fyrir hendi eru, en
koma e.t.v. ekki nægilega vei fram. Þetta má
til dæmis gera með því að búa til einhverjar
reglur út frá þeim upplýsingum, sem er að
finna í gögnum fyrirtækisins.
Líklega er heppilegast að skýra hvað
þekkingarkerfi er með dæmi. Um er að ræða
forrit sem skýrir hvers vegna bíll fer ekki í
gang. Forritið gæti spurt notandann hvort
bensínmælir væri á núlli og ef svo væri ekki,
hvort að nóg rafmagn væri á bílnum. Þannig
mætti halda áfram, forritið spyrði notandann
hverrar spurningarinnar á fætur annarrar,
uns ástæðan fyrir bilun bílsins væri orðin ljós.
Fyndist engin skýring á biluninni fyrr en eftir
að viðgerðarmaður hefði yfirfarið bílinn,
mætti bæta þeirri vitneskju við forritið, t.d. í
formi spurningar. Þannig er sífellt hægt að
bæta við nýjum hlutum og þekkingin tapast
aldrei.
Eins og sést af þessu dæmi eru þekkingar-
kerfin í raun sáraeinföld, enda er það svið
vart til, þar sem þau kæmu ekki að notum.
Að mati Arnar henta þekkingarkerfin best
til að leysa vandamál, sem oft koma upp og
eru stöðluð, þannig að þau þurfi ætíð að
leysa á sama hátt. Með þessu er t.d. átt við
gæðaeftirlit í framleiðslu.
Þegar búið er að búa til þekkingakerfi er
mikilvægt að sérfræðingar noti kerfið í lang-
an tíma, bæði til að sníða af því alla agnúa og
lagfæra villur, og eins til að athuga hvort að
kerfið sé ekki samkvæmt sjálfu sér. Að því
loknu getur hver sem er notað kerfið.
Segja má að fyrirtæki eigi tvo valkosti við
uppbyggingu á þekkingarkerfum; hanna
sjálf forritin sem kerfin byggja á eða kaupa
þau frá utanaðkomandi aðilum. Boeing
fyrirtækið í Seattle er dæmi um fýrirtæki,
sem valdi fyrri leiðina. Þegar forráðamenn
þess ákváðu að tileinka sér tækni þekkingar-
kerfanna, leituðu þeir fýrst til háskóla-
prófessora í tölvunarfræðum og báðu þá um
að áætla hversu margir nemendur myndu
útskrifast næstu árin með magistersnafnbót í
gervigreind. Af svörum prófessoranna var
yfirmönnum Boeing Ijóst, að sá fjöldi myndi
vera ónógur til að sjá fyrir þörfum Boeing, og
því ákváðu þeir að mennta sína menn sjálfir.
Innan tölvudeildar Boeing var sett á stofn
eins árs skóli í gervigreind, sem sniðinn var
eftir magistersnámi nokkurra háskóla í
Bandaríkjunum, þó aðallega háskólanum í
Stanford. Á sex mánaða fresti eru tólf eða 13
sérfræðingar innan Boeing teknir inn í skól-
ann, en til að fá inngöngu verða þeir að
leggja fyrir tölvudeildina nákvæma lýsingu á
því hvaða verkefni þeir ætla að leysa með
notkun gervigreindar. Námið sjálft saman-
stendur svo af fimm mánaða bóklegum
kúrsum, og sjö mánaða verkefnavinnu. Að
skólaárinu loknu eiga nemendur að hafa sýnt
fram á, að verkefni þeirra megi í raun leysa á
þann hátt, sem þeir höfðu mælt með og þá er
hægt að hefja vinnu við þau í hinum ýmsu
deildum fyrirtækisins.
Dupont valdi hina leiðina. Nú er hægt að
fá forrit fyrir þekkingakerfi á einmennings-
tölvur, en forrit þessi eru kölluð skeljar
(shells) á ensku. Fyrir bragðið geta alls
ólærðir forritarar notað þessi forrit og búið
sér til sín eigin þekkingarkerfi, svo framar-
lega sem þeir fylgja þeim reglum, sem forrit-
ið setur þeim. „Þetta hefði ekki verið hægt
að gera fyrir fimm árum síðan, því að þá var
hugbúnaðurinn einfaldlega ekki til. En
framfararnir hafa verið geysilega örar síðan
þá,“ segir Örn, „og næsta skrefið er að setja
þekkíngarkerfin inn í stóru tölvurnar.“
Nú hafa um þúsund manns verið þjálfaðir í
notkun skeljanna og í áætlunum Dupont er
gert ráð fyrir að eftir fjögur ár verði um tvö
þúsund lítil þekkingarkerfi í fyrirtækinu.
Þekkingarkerfin er síðan hægt að tengja
43