Þjóðlíf - 01.10.1987, Síða 46
VIÐSKIPTI & FJÁRMÁL
saman og þannig má vefa mikinn þekkingar-
vef um allt fyrirtækið, sem starfsmenn geta
sótt í. Dupont hefur byggt kerfi sitt upp í
nijög nánu sambandi við starfsfólkið og séð
til þess að þjálfunin hafi náð jafnt til undir-
manna sem toppanna. Reynt hefur verið að
koma því þannig fyrir að einn starfsmaður á
sérhverjum vinnustað Dupont, sem eru ótal
margir því að fyrirtækið teygir anga sína um
gervalla heimsbyggðina, sjái um uppbygg-
ingu þekkingarkerfanna á hverjum stað.
„Dupont er viðurkennt sem leiðandi fyrir-
tæki í notkun þekkingarkerfa og það er fylgst
mjög vandlega með öllu því sem Dupont
gerir.“
En hvað ávinnst við notkun þekkingar-
kerfa?
,,í fyrsta lagi er mikilvægt að fyrirtæki glati
ekki þeirri þekkingu, sem búið er að búa til
innan þess, því að sú þekking kemur að
miklu gagni við ákvarðanatöku, bæði hvað
snertir mál innan fyrirtækisins og eins út á
við. Fyrir bragðið batnar samkeppnisað-
staða fyrirtækisins. Uppsetning þekkinga-
kerfa er ódýr og gefur af sér mikla arðsemi,
eða allt upp í 1500%. Þannig má nefna að
árið 1991 áætla stjórnendur Dupont að
þekkingarkerfin hafi skilað hundrað milljón
dollara hagnaði fyrir fyrirtækið," segir Örn.
Á íslandi eru fáir sérfræðingar í gervi-
greind og Örn er spurður að því hvort að
hann haldi, að það muni ekki gera notkun
þekkingarkerfa illmögulega á íslandi.
„Það gæti gert hana erfiðari en ella, en
fólk þarf ekki að vera neitt sérfræðimenntað
í tölvufræðum til að geta notfært sér þekk-
ingarkerfin, þar sem nú er hægt að kaupa
forritapakkana, eða skeljarnar, hér á landi.
íslendingar eru menntuð þjóð og fljótir að
tileinka sér nýjungar og auk þess henta
þekkingarkerfin vel á íslandi, því að fyrir-
tækin hér eru lítil og kerfin sjálf ódýr og
frekar fljótlegt að setja þau upp. Ég sé því
ekkert í veginum fyrir því að íslensk fyrirtæki
gætu notfært sér þessa tækni í ríkum mæli."
Á hvaða sviðum væri heppilegast að nota
þessa tœkni á íslandi?
„Alls staðar. Það mætti t.d. nota þekk-
ingarkerfi í frystihúsum, í öðrum iðnaði, við
sérfræðiaðstoð handa fötluðum o.s.frv. Það
eru í raun fá svið, ef nokkur, þar sem ekki
væri hægt að nota þekkingarkerfin. En Há-
skóli Islands og fyrirtækin þyrftu að styðja
vel við hvort annað til að svo gæti orðið.“
„En íslendingar geta gert fleira en notað
þekkingarkerfin, mér fyndist athugandi fyrir
þá að reyna að hanna sín eigin forrit sjálfir og
selja þau, því að í heiminum núna er geysi-
lega mikil eftirspurn eftir þekkingarkerfa-
forritum. Gamalt íslenskt máltæki segir að
bókvitið verði ekki í askana látið. Ég held að
það sé orðið tímabært að breyta því og segja
að bókvitið verði í tölvurnar látið.“
• Sveinn Agnarsson
Framtíðin___________
Hördur Ólafsson hjá Velti h.f.
ÞEKKINGARKERFI myndu nýtast okk-
ur í þessu fyrirtæki fyrst og fremst sem
greiningartæki við viðgerðir á bílum og
tækjum á verkstæðinu," sagði Hörður
Ólafsson, tölvunarfræðingur hjá Velti hf.
„Þá dettur mér í hug að hægt væri að
nota þekkingarkerfi í sambandi við við-
skiptabréf, til að fylgjast með hvað gert er
við víxla, skuldabréf og aðrar kröfur.
Hugbúnaðurinn myndi þá ráðleggja
stjórnendum hvað þeir ættu að gera með
hliðsjón af þróun vaxta og öðru. Einnig
gætu kerfin komið að gagni við eftirlit
með tölvukerfi fyrirtækisins, ef að t.d.
einn skjár niyndi detta út væri hægt að
nota þekkingarkerfi til að athuga ástæöur
bilunarinnar, því að sérfræðingar eru ekki
alltaf til staðar."
„Ég held að flest fyrirtæki gætu notfært
sér þekkingarkerfi, því að oftast byggja
þau á einhverri sérfræðiþekkingu, sem
hægt er að setja upp á kerfisbundinn hátt.
JENS ALEXANDERSSON
Þessi tækni á því að mínu mati tvímæla-
laust rnikla framtíð fyrir sér hér á landi,"
sagði Hörður Ólafsson.
Þarf þekkingu
Páll Kr. Pálsson, formaöur lóntæknistofnunar
ÞETTA ER GEYSILEGA öflug tækni, en
ég held að menn verði að leggja töluvert á
sig til að ná þeirri þekkingu, sem þarf til að
geta notfært sér hana,“ sagði Páll Kr.
Pálsson, forstjóri Iöntæknistofnunar
ríkisins.
„Háskóli íslands þarf því að bjóða
tæknimenntuðu fólki upp á endur- og
eftirmennturnarnámskeið, auk þess sem
leggja þarf aukna rækt við kennslu á þessu
sviði í Háskólanum. Þá þarf að gefa rann-
sóknastofnunum atvinnuveganna tæki-
færi á að vinna stór þróunarverkefni.
„Nú er hópur að vinna að gerð
ákvörðunarkerfis fyrir skipstjóra, sem ætti
að nýtast útgerðinni vel. Hér er um að
ræða hugbúnað sem tekur tillit til ýmissa
óvissuþátta, svo sem veðurs, aflaverð-
mætis og fjarlægðar á miðin og ráðleggur
skipstjórunum hvað þeir eigi að gera.
Þetta má segja að sé eina stóra verkefnið,
sem í gangi er í dag, en eflaust mætti nýta
þekkingarkerfi í fiskiðnaði og öðrum
framleiðsluiðnaði, þegar við höfum öðlast
frekari þekkingu á notkunarmöguleikun-
um.
„Á ýmsan hátt má segja að þessi kerfi
séu notuð þegar í dag, t.d. notar Eimskip
SIGURÐUR MAR
forrit sem hjálpar starfsmönnum að
ákveða farmgjöld. Ég gæti einnig vel trúað
að hægt væri að þróa forrit fyrir verktaka,
sem myndi hjálpa þeim að taka ákvarðan-
ir við gerð stærri mammvirkja, forrit. sem
myndi taka tillit til jarðvegs, fjármagns-
kostnaðar, vindhæðar og veðurfars, svo
dænti séu tekin."
44