Þjóðlíf - 01.10.1987, Page 58

Þjóðlíf - 01.10.1987, Page 58
STJÓRNMÁL Svavar áfram Landsfundurinn mun sennilega engu breyta ÞEGAR ALÞÝÐUBANDALAGIÐ hafði starfað í einn áratug hófust þar innanbúðar miklar deilur. Formaður þess og forseti Al- þýðusambandsins, Hannibal Valdimarsson, hafði stofnað til sérstaks framboðs í Reykja- vík í kosningunum 1967 og fékk til liðs við sig menntamenn og áhrifamenn úr verka- lýðsfélögunum. Listinn hlaut tæp 9% at- kvæða en Alþýðubandalagið í Reykjavík, með Magnús Kjartansson í broddi fylkingar, hlaut aðeins 13,3%; á landsvísu fékkyMþýðu- bandalagið án Hannibals tæp 14%. Ekki reyndist vera vilji til að jafna þennan ágrein- ing innan Alþýðubandalagsins og þegar leið að kosningunum 1971 stóð flokkurinn frammi fyrir miklum vanda: stofnaður hafði verið nýr stjórnmálaflokkur, Samtök frjáls- lyndra og vinstri manna, sem bauð fram í öllum kjördæmum nema á Norðurlandi vestra. Ýmsir af helstu forystumönnum Al- þýðubandalagsins höfðu gengið til liðs við hinn nýja flokk. Á Vestfjörðum var Hanni- bal í framboði og í Norðurlandi eystra Björn Jónsson, varaforseti ASÍ og þingmaður Al- þýðubandalagsins. í Reykjavík var efstur á lista Samtakanna Magnús Torfi Ólafsson, fyrrum ritstjóri Þjóðviljans og fyrsti formað- ur Alþýðubandalagsfélagsins í höfuðborg- inni. Á Suðurlandi hafði þingmaður Alþýðu- bandalagsins gengið í Alþýðuflokkinn og var þar í efsta sæti. Á þessum árum voru helstu forystumenn Alþýðubandalagsins þeir Lúðvík Jósefsson og Magnús Kjartansson. Þeir voru um margt ákaflega ólíkir; Magnús var menntamaður og ritstjóri en Lúðvík lagði áherslu á sjávar- útveg og byggðamál. Eitt meginmarkmið áttu þeirsameiginlegt: að Alþýðubandalagið yrði ekki smáflokkur heldur stór samfylking vinstri manria. Þannig var rækilega undir- strikað 1968, þegar Alþýðubandalaginu var breytt úr kosningabandalagi í sérstakan stjórnmálaflokk, að fólki utan Sósíalista- flokksins væri ætlaður þar veglegur sess. For- maður var valinn ungur maður, Ragnar Arnalds, sem hafði starfað í Þjóð- vafnarflokknum. Sömu ættar voru þau viðbrögð Alþýðubandalagsins við stofnun Samtakanna að leita til þekktra einstaklinga utan flokksins um að fara í framboð í kosn- ingunum 1971. Þriðja sætið í Reykjavík, baráttusætið, skipaði Svava Jakobsdóttir, rithöfundur. Hún var í hugum fólks helst talin standa nærri Sjálfstæðisflokknum; var lengi blaðamaður á Morgunblaðinu og eigin- maður hennar, Jón Hnefill Aðalsteinsson, var yfirlýstur sjálfstæðismaður. í Norður- landi eystra var efstur Stefán Jónsson, fréttamaður, en hann hafði starfað í Fram- sóknarflokknum. í kosningunum hlaut Al- þýðubandalagið 17,1% atkvæða og tíu þing- menn, þar af fjóra nýliða: Garðar Sigurðs- son, Helga Seljan, Ragnar Arnalds og Svövu Jakobsdóttur. Samtökin unnu að vísu mik- inn sigur en ekki á kostnað Alþýðubanda- lagsins heldur Alþýðuflokks og Framsóknar. ÉG RIFJA ÞETTA upp til að sýna hvemig Al- þýðubandalagið erfði frá forverum sínum, Sósíalistaflokknum og Kommúnistaflokkn- um, mikla hæfileika til að bregðast markvisst við áföllum, snúa vörn í sókn. Forysta þess- ara flokka hafði t.d. forgöngu um að leita nýrra samstarfsaðila utan flokksins. Með reglulegu millibili klofnaði síðan aðalkeppi- nauturinn, Alþýðuflokkurinn, og ýmsir af bestu forystumönnum hans gengu til sam- starfs til vinstri: Héðinn Valdimarsson, Sig- fús Sigurhjartarson, Finnbogi Rútur Valdi- marsson og bróðir hans Hannibal og Alfreð Gíslason læknir. Úr Sjálfstæðisflokknum kom Hermann Guðmundsson verkalýðs- leiðtogi í Hafnarfirði, og síðar úr Þjóð- varnarflokknum Gils Guðmundsson. Ég legg ekki dóm á baráttumál og hug- myndafræði íslenskra sósíalista; í því efni voru og eru skoðanir manna mjög skiptar. Hins vegar verður tæpast efast um hæfni forystu þeirra. Flokkar þeirra urðu stundum fyrir áföllum - 1934, 1953 og 1967 - en töpuðu aldrei tvennum kosningum í röð og er það einsdæmi í sögu íslenskra stjórnmála- flokka. Raunar má hiklaust fullyrða, að þarna sé ein meginástæða þess, að á íslandi varð róttækur vinstri flokkur mikið stærri en hliðstæðir flokkar víðast hvar í V-Evrópu. Á SÍÐASTA áratug hefur Alþýðubandalag- inu hnignað og tapað stöðugt fylgi: 1978 hlaut flokkurinn tæp 23%; í síðustu kosn- ingum ríflega 13%. Alþýðubandalagið ef orðið að smáflokki. Ýmsar ástæður eru fýr>r þessum umskiptum en veigamikil ástæða er tvímælalaust minnkandi hæfni tlokksforyst- unnar til að takast á við nýjar kringumstæð- ur. Þannig virðist flokkurinn m.a. hafa glatað þeim eiginleika að leita eftir samstarfsaðilum utan flokksins, endurnýja forystuna með nýju fólki. í staðinn hefur myndast í flokkn- um innra framgangskerfi, þar sem fólk færist smám saman upp eftir framboðslistunum. Fyrirkomulag framboðsmála skiptir þarna nokkru máli. Ekki er mjög líklegt, að nýú fólk gefi kost á sér í forvali, þar sem einung'S flokksfólk tekur þátt. Einnig hefur frambo á hæfum einstaklingum til forystustarfa 1 stjórnmálum almennt minnkað. Skólageng' nu fólki standa t.d. yfirleitt til boða marg''lS leg störf með betri launum, þægilegri vinnu tíma og minna álagi, svo ekki sé talað um 56

x

Þjóðlíf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.