Þjóðlíf - 01.02.1990, Side 4
ÞESSU ÞJOÐLIFI
FJÓRIR MÁNUÐIR SEM
SKÓKU HEIMINN
Mörg smá atvik og einstaklingar sem skiptu sköp-
um í byltingunni í Austur- Evrópu koma við sögu í
sérstæðri frásögn Árna Snævarr af atburðunum
eystra á sl. ári. í fyrrasumar átti Árni m.a. viðtal við
Dienstbier kyndara í Prag fyrir Þjóðlíf, en hann er
nú utanríkisráðherra Tékkóslóvakíu og tekur þátt
í að klippa gaddavírinn við járntjaldið. Afdrif fleiri
viðmælenda Þjóðlífs í Austur-Evrópuríkjum eru
rifjuð upp. Tíðindamaður Þjóðlífs var m.a. við-
staddur þegar Samstaða var lögleyfð í Póllandi en
margir telja að ballið hafi einmitt byrjað þá...
28-31
ÞAÐ VORAÐI
SNEMMAí PRAG
Brynja Benediktsdóttir og Erlingur
Gíslason hittu Havel í Prag 1965 og sáu
uppfærslu á fyrsta leikriti hans þar.
Spjallað við Brynju sem stjórnar sýn-
ingunni á Endurbyggingu eftir Havel í
Þjóðleikhúsinu. Söguleg heimsókn Ha-
vels forseta Tékkóslóvakíu til Islands.
Verður væntalega í fyrsta sinn sem
hann sér sýningu á leikriti eftir sig í tutt-
ugu ár!
50-51
OFBELDI I
SJÓNVARPI
Anna G. Magnúsdóttir hjá Námsgagna-
stofnun um sjónvarpsefni fyrir börn :
Framboðið er það mikið að þau komast
aldrei yfir að skilgreina það sem þau
horfðu á síðast. Vantar mikið upp á að
uppalendur ræði við börn um það sem
þau hafa verið að horfa á og hjálpi þeim
að skilgreina það. Held að flestir séu
sammála um að öll sú valdbeiting sem
börn kynnast í myndum ýti undir of-
beldishneigð.
58-59
INNLENT
Jafnaðarmannaflokkur íslands —hvenær
kemur þú. Viðtal við Jón Baldvin
Hannibalsson utanríkisráðherra........ 8
„Viljum aðskilnað ríkis og kirkju", segir
Hope Knútsson um nýjan félagsskap um
borgaralegar
athafnir á íslandi ................... 16
Ræður efnahagur stjórnmálaafstöðu? Sagt
frá skoðanakönnun meðal stúdenta í HÍ
Meistari meistaranna. Áskell Örn segir
gerr af Garrí Kasparov............... 22
Horfum ekki nóg til heildarinnar segir
Málmfríður Sigurðardóttir þingmaður
Samtaka um kvennalista ................25
ERLENT
Ungverjaland—Rúmenía
Snúðu heim, snúðu heim. Gunnsteinn
Ólafsson, sem var í Ungverjalandi um
jólin, skrifar ....................26
Bandaríkin — Panama
Umdeilda innrásin. Jón Ásgeir Sigurðsson
skrifar um innrás Bandaríkjanna í Panama
.................................32
Erlent. Smáfréttir af fólki og viðburðum 34
Austur—Evrópa
Fjórir mánuðir sem skóku heiminn. Árni
Snævarr skrifar................... 28
V-Þýskaland
Oskar Lafontaine tilnefndur sem
kanslaraefni sósíaldemókrata. Eftir
einhvern glæsilegasta kosningasigur í
manna minnum í Saarlandi var Oskar
Lafontaine settur í rásmarkið fyrir
baráttuna fyrir kosningarnar í desember.
Hvor verður næsti kanslari V-Þýskalands,
Helmuth Kohl eða Oskar? .......... 38
menning ^^mmmmmmm^m
Ég kvað nokkrar stemmur. Spjallað við
Sigurð A.Magnússon ............... 42
Hljómplötur
Gunnar Ársælsson skrifar ......... 46
Það voraði snemma í Prag. Rætt við
Brynju Benediktsdóttur leikstjóra um
sýningu hennar og heimsókn Havels .. 50
Kvikmyndir
Góðar myndir væntanlegar ......... 49
Holdgervingur gagnrýnnar hugsunar. Á
undan samtíð sinni. Einar Heimisson
skrifar um Kurt Tucholsky en um þessar
mundir er þess minnst að öld er liðin frá
fæðingu hans. Hann svipti sig lífi í útíegð
eins og margir fleiri listamenn á meðan ríki
Hitlers stóð.................. 52
Austur-Þýskaland
Rithöfundarnir og glötuðu forréttindin.
Uppgjör við fortíðina. Harkaleg
tilvistarkreppa austur-þýskra
rithöfunda.................... 55
uppeldi mmmmmm^^^^^^m
Ofbeldi í sjónvarpi ruglar heimsmynd
barna. Rætt við Önnu G. Magnúsdóttur í
fræðslumyndadeild Námsgagnastofnunar
um börn og sjónvarpsnotkun.... 58
VIÐSKIPTI
Kanada
Dauðadansinn í Canso. Hrun fiskistofna
veldur gífurlegu atvinnuleysi og
vandræðum. Elsta sjávarþorp í Kanada er
að verða eins og dauður gullgrafarabær.
Ofveiði, mengun og kvótakerfi talin
orsökin. G.Pétur Matthíasson skrifar . 62
4 ÞJÓÐLÍF