Þjóðlíf - 01.02.1990, Blaðsíða 23

Þjóðlíf - 01.02.1990, Blaðsíða 23
um réttinn til að skora Kasparov á hólm. Short var undrabarn á sinni tíð, tveimur árum yngri en heimsmeistarinn og á enn eftir að þroskast sem skákmaður. Þrátt fyrir þetta munu fáir veðja á þessa tvo. Þeir virðast ekki, fremur en vestrænir of- urmeistarar yfir höfuð, vera tilbúnir að leggja það í sölurnar sem þarf til að komast alla leið á tindinn. Þegar svona hátt er komið þurfa menn að geta breytt sér í fanatískar skákvélar 6-8 mánuði á ári til að mjaka sér síðustu skref- in. í slíkum málum standa misjafnlega makráðugir Vesturlandabúar höllum fæti í samanburði við þá hungruðu sovésku meistara sem sjá í skákframanum sína ein- ustu leið til nýrra og áður óþekktra lífs- þæginda. Enda virðast yfirburðir Sovét- manna á þessu sviði síst fara minnkandi, á nýja listanum eiga þeir 16 af þeim 29 sem hafa 2600 stig eða meira. Vasilí Ivantsjúk er 23 ára gamall sveita- strákur frá Hvítarússlandi og feikilega hæfileikaríkur. Hann er nýjasta stjarna Sovétmanna og því hugsanlegur arftaki Kasparovs. Þó er hætt við að honum verði síðustu skrefin á tindinn erfið. Hann þyk- ir hinn mesti furðufugl og það virðist há honum hversu taugaslappur hann er, í mörgum skáka sinna við Kasparov hefur hann fengið hörmulega útreið. Valerí Sa- lov er hugsanlega enn meira efni og tví- mælalaust meiri karakter til að standa uppi í hárinu á Kasparov. Hann hefur hinsvegar átt við alvarlegan blóðsjúkdóm að stríða sem dregið hefur úr honum mátt. Fleiri ungir menn koma á hæla þeim á listanum; Gelfand, Ehlvest, Drejev og Barejev og munu vafalaust allir láta til sín taka í auknum mæli á næstunni. Af þeim er sá fyrstnefndi forvitnilegastur en um þá alla má segja að þrátt fyrir góða spretti hefur enginn sýnt þá takta sem þarf til að hafa Kasparov undir. Og fermingarstrák- arnir bíða bak við næsta horn... „í draumi sérhvers manns er fall hans falið“ orti Steinn og má e.t.v. heimfæra upp á hinn djarfhuga Armena sem hér er svo mjög til umfjöllunar. Það skyldi þó ekki vera að mesta hættan kæmi frá hon- um sjálfum? Hvað bíður skákmanns sem hefur unnið alla titla og náð öllum áföng- um sem hægt er að láta sig dreyma um? Fischer var búinn að vera þegar hann náði sínu mikla takmarki. Kasparov er ekki jafn brothættur, en hversu lengi getur hann haldið áfram af þessum krafti? Skák- spekingar hafa löngum haldið á lofti þeirri kenningu að þeir sem gefa sig alla í skák- ina og eyða mikilli orku, „brenni út“ fyrr en hinir sem hafa rólegri stíl. Menn hafa nefnt Tal sem dæmi um mann í fyrr- Vasilí Ivantsjúk. Of slappur á taugum? nefnda flokknum, meðan karlar eins og Smyslov fylla þann síðari. Hann nálgast nú sjötugt og er enn í hópi 50 bestu. Hann hefur lengi farið vel með sig, leggur mest upp úr einfaldri stöðubaráttu þar sem reynsla hans nýtur sín en forðast flóknar stöður þar sem miklir útreikningar og taktískar brellur koma við sögu. Honum má líkja við aldraðan fótboltamann sem tekst með góðum staðsetningum, knatt- meðferð og yfirvegun í leik að vega á móti snerpu, úthaldi og spretthörku yngri manna. Langar, spennuþrungnar og lýj- andi skákir eru vitaskuld slítandi, einnig stormasamar sóknarskákir; sá sem reynir alltaf að kreista hið ítrasta út úr hverri skák þreytist fljótt. Því er spurt: verður Kasparov farinn að lýjast um þrítugt? Karpov hefur alla tíð þótt fara sparleg- ar með orkuforða sinn en Kasparov — sem hefur raunar látið þau orð falla að það sé einmitt akkilesarhæll heimsmeist- arans fyrrverandi, að geta ekki tæmt sig í bom þegar það er nauðsynlegt. Þótt síð- asta ár hafi verið hið lélegasta hjá Karpov um langa hríð er víst að hann er sá sem best á með að grípa tækifærið ef heims- meistarinn fer að lýjast. Hans logi brennur hægt og þótt hann sé tólf árum eldri en hinn örlyndi Kasparov er ekki óhugsandi að hann endist lengur í þessum bransa. 0 10 stigahœstu skákmenn heims 1. janúar 1990: 1. Garrí Kasparov (Sovétr.) . 2800 2. Anatólí Karpov (Sovétr.) 2730 3. Jan Timman (Holland)... 2680 4. Vasilí ívantsjúk (Sovétr.) 2665 5. Mikhaíl Gúrevits (Sovétr.) 2645 6. Valerí Salov (Sovétr.) ... 2645 7. Alexander Beljavskí (Sovétr.) 2640 8. Nigel Short (England) ... 2635 9. Ulf Andersson (Svíþjóð) . 2630 10. Viktor Kortsnoj (Sviss) .. 2625 Ljubomir Ljubojevic (Júgósl.) 2625 ÞJÓÐLÍF 23
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Þjóðlíf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.