Þjóðlíf - 01.02.1990, Síða 27

Þjóðlíf - 01.02.1990, Síða 27
Skogarhöggsmaður dráttardýrum sínum Transylvaníu ásamt fallið í uppreisninni í Rúmeníu. Enda þótt Transylvanía hafi fyrst og fremst sögulega og þjóðernislega þýðingu fyrir Ungverja þá er trúin ekki síður mikilvægur hlekkur í baráttunni fyrir tilveru þjóðarbrotsins þar. Og þegar öllu er á botninn hvolft var það einmitt samstaðan um trúna sem varð því til lífs og kom uppreisninni í landinu af stað. AHetjutorginu flytur séra Laszló Tök- es ungversku þjóðinni þakkir fyrir stuðninginn af segulbandi. Hann lagði þunga áherslu á að með uppreisninni í Rúmeníu væri ekki barist um hver ætti yfirráðaréttinn yfir Transylvaníu, þrætu- epli Ungverja og Rúmena, heldur væri nú loksins tækifæri komið til þess að snúa við blaðinu og leyfa þjóðunum á þessu svæði að ráða sér sjálfar. Landamærin yrðu óhreyfð en enginn skyldi hér eftir spurður að þjóðerni né hverrar trúar hann væri. Nú skyldu þjóðabrotin í Transylvaníu búa saman í sátt og samlyndi, enginn skyldi ríkja yfir öðrum, dagar hrokans og drottn- unarinnar væru taldir. Séra Laszló átti sér ekki viðeisnar von þegar hann var fluttur ásamt konu sinni nauðugur viljugur á brott úr kalli sínu skömmu fyrir jól. Kalvínista-kirkjan sem bæði hann og faðir hans þjónuðu af trú- mennsku hafði snúið opinberlega baki við þessum „lýðskrumara, andkommúnista og óvini Rúmeníu“ að undirlagi stjórn- valda. Á samri stundu gerðist undrið; söfnuður hans fylkti liði inn í miðborg Temesborgar; þúsundir manna, bæði þýskættaðir Svabar, Serbar, að ógleymd- um Rúmenum sjálfum sameinuðust undir merki þeirra gegn óréttlætinu. Þetta voru sannkölluð vetrarsólhvörf í lífi þjóðarinn- ar. Svartnætti kúgunar og misréttis steypt á braut, í stað þess hækkandi sól frelsis og réttlætis. Mál til komið að snúa heim. byltingin eða öllu heldur klámbyltingin sem orðið hefur. í valdatíð kommúnista var öllu sem snerti niðurlægingu konunn- ar í myndum og prentuðu máli haldið í skefjum. Nú er sem landsmenn hafi aldrei séð nakinn kvenmann fyrr. Blaðasölurnar eru yfirfullar af ómerkilegum sorpblöðum sem ekki þekktust fyrir ári síðan. Sakleys- islegum fjölskyldutímaritum virðist einn- ig hafa orðið hált á siðgæðissvellinu — jafnvel vikuheftið sem geymir skrá yfir það sem er á döfinni í menningarlífi borg- arinnar kemst ekki af án þess að opinbera tvo til þrjá bera kvenmannsrassa á forsíðu. Samfara þessari þróun hafa klámbúllur skotið upp kollinum eins og gorkúlur um alla borg og þeim sem fyrir voru vaxið fiskur um hrygg. Þrátt fyrir þessa þróun í átt til léttlyndis í landinu hafa Ungverjar ekki gengið af trú sinni. Á aðfangadagskvöld þyrptust þús- undir manna á Hetjutorgið í höfuðborg- inni til samkirkjulegrar guðsþjónustu þar sem þeirra var minnst sem þegar höfðu ÞJÓÐLÍF 27

x

Þjóðlíf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.