Þjóðlíf - 01.02.1990, Blaðsíða 45

Þjóðlíf - 01.02.1990, Blaðsíða 45
hann var svo yfir sig hrifinn af landinu að hann vann allan tímann við að mynda. Hann var heillaður af landi og þjóð. En hvernig tók hinn rússneski Sichov landi og þjóð? — Hann er dálítið sérstakur. Sichov býr í París og hefur farið um allan heim. „Þetta er eina þjóðin sem er alveg eins og við Rússar“, sagði hann. Og ég varð mjög hissa, því mér hefur alltaf fundist að við værum eins og Grikkir. Það er líka hægt að sjá á myndunum hans af íslensku lista- mönnunum að hann hefur skilið margt betur í fari þjóðarinnar en við sálfir. Það heyrir til undantekninga að þú hafir gefið út veglegar bækur með ís- lenskum ljósmyndurum, nema í bókun- um um íslenska hestinn, þar sem Guð- mundur Ingólfsson á margar myndir. Hvers vegna útlendir ljósmyndarar? — Þetta eru tilviljanir, sem hafa ráðið, held ég. Þó er það þannig með ljósmynd- ara eins og aðra listamenn, að þeir eru oft næmari á hið sérstæða í fari þjóðar og jafn- vel landslagi heldur en innbyggjarar. Þetta má sjá á myndum snillinganna Sichovs og Siwiks. Hins vegar hef ég líka unnið texta í bækur þar sem myndir ís- lenskra ljósmyndara prýða síður. Þeir eru ekki síður góðir listamenn eins og Guð- mundur Ingólfsson. Og nú er væntanleg bók með myndum eftir Einar Ólason. — Þegar litið er yfir þessa bókasögu, sést að þetta er fjöldi bóka og ógrynni bæklinga og tímarita, sem þú hefur skrif- að og tekið þátt í að gefa út. En það er líka sláandi að margar tilviljanir hafa ráðið útgáfunni; hugsjónamenn í Iand- kynningu eins og Haraldur J. Hamar og sérstæðir karlar eins og auðugi betli- munkurinn, heppilegir sessunautar á ferðalögum og þess háttar. En hafa opin- berir aðilar ekki haft frumkvæði í þessu efni? — Já, það eru oft persónuleg sambönd og tilviljanir sem leiða til þessa. Oft er það þannig að menn koma hingað og verða hrifnir og vilja deila þeirri hrifningu með öðrum. Nei, opinberir aðilar eru afskap- lega daufir í þessu efni, mér kemur helst í hug aðstoð hins opinbera í sambandi við Scandinavia Today. Hefur allt þetta stúss og gífurlega vinna í kringum landkynningu ekki haft truflandi áhrif á þig sem listamann? — Jú það er alveg voðalegt, — hefur næstum því skemmt mig sem listamann. En það hefur líka verið tilbreyting og örv- un. Það er segin saga hjá flestum að þeir eru að reyna að flýja það sem þeir vita að þeir eiga að vera gera, reyna að fá tilbreyt- ingu frá því með öðru. Þess vegna segi ég alltaf já við því sem ég er beðinn um að gera af þessum toga. Því miður. En þú ert samt að starfa að þessu bæði sem rithöfundur og blaðamaður, ekki satt? — Jú, blaðamaðurinn í mér hefur aldrei sofnað. Og ljóðaþýðingar og þess háttar er auðvitað skapandi verk fyrir mig sem skáld og rithöfund, þannig að þetta kemur heim og saman oft á tíðum sem betur fer. Hefur þú nú lokið öllum störfum við landkynningu, eða ertu enn að? — Það er að koma út bók eftir mig í febrúar, The Icelanders, stór bók upp á 350 síður. Um er að ræða úrval greina og fyrirlestra um þjóðina. Þar er fjallað um bókmenntir, leiklist og einstaka staði á landinu. Það er forlagið Forskot sem er í tengslum við Modern Iceland, sem gefur bókina út. Og eins og áður sagði tók Einar Ólason myndirnar. Svo er ég að fara í fyrirlestraferð til Kanada. Og í byrjun maí tek ég þátt í mikilli menningarkynningu í Köln og nálægum borgum, les upp úr Kalstjörnunni, sem kom út í þýskri þýð- ingu 1984. En hvað er skáldið í þér að gera, ertu ekki að vinna að verkefni utan þessa? — Ég er alltaf að byrja á að vinna að stóru skáldverki. Og þegar ég byrja á því, sem verður snemma á árinu, þá ætla ég að segja nei við öllum útúrdúrum. Mitt vandamál er að ég hef of mörg áhugamál, er að snúast í alltof mörgu. Þannig lifi ég mjög tilbreytingaríku lífi, mér leiðist aldrei. En þetta fjöllyndi tefur fyrir stóra verkinu. Má spyrja nærfærnislega um hvað þetta skáldverk á að fjalla? — Æ, nei, það er leyndarmál. 0 Vúángarnir. Sigurður A. stóð fyrir og skipulagði för íslensku „víkinganna“ með knörrinn Leif Eiríksson til New York í tilefni af200 ára afmæli Bandaríkjanna 1976. Tóku þeirþáttí,, Operation Sail 1976“þar sem öllhelstu seglskip heims sigldu upp Hudson-fljót á þjóðhátíðardaginn 4. júlí. Frá vinstri: Óli Bardal seglasaumari, Hinrik Bjarnason fulltrúi Æskulýðsráðs Reykjavíkur, Sveinn Sæmundsson fulltrúi Flugleiða, Markús Örn Antonsson fulltrúi borgarstjórnar Rekjavíkur, Sigurður A. Magnússon og Viggó Maack, fulltrúi Eimskips og skipstjóri á Leifi Eiríkssyni. Aðeins eitt annað „víkingaskip“ varmeðíþeirri siglingu, langskip frá Danmörku. Skipverjarklæddust fornmannabúningum, sem til eru frá alþingishátíð- inni 1930. ÞJÓÐLÍF 45
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Þjóðlíf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.