Þjóðlíf - 01.02.1990, Side 47
Á NÓTTU SEM DEGI
Hvernig get ég varið sjálfan mig alnæmissmiti?
Tryggast er að eiga einn trúfastan maka. Annars skal ætið nota smokk við kynmök og
forðast tíð skyndikynni.
Hvenær á að nota smokk?
Nota skal smokk í hvert sinn er höfð eru mök við einhvern sem ekki er fastur maki og
þegar höfð eru mök við einhvern sem kann að vera smitaður. Ef maki þinn á kynmök
við aðra einnig, þá er öruggast að temja sér að nota ávallt smokk.
Hvernig veitir smokkur vörn við alnæmi og öðrum kynsjúkdómum?
Sé smokkurinn notaður rétt, þá nær hvorki sæði né slím úr leggöngum (sem og blóð) að
berast milli einstaklinga í samförum. Þar sem alnœmisveiran er í þessum vökvum, þá
kemur smokkur í veg fyrir að vökvarnir berist frá einum einstaklingi yfir í annan.
Er hættulegt að snerta eða vera nálægt smituðum, takast í hendur eða sitja saman yfir glasi?
Nei, alls ekki. Alnæmi smitast ekki manna á milli í daglegum samskiptum. T.d. þá
smitast alnœmi ekki með handabandi eóa vió aðra snertingu, ekki með hnerra eða hósta,
ekki af salernum, ekki með matvœlum eða matarílátum og ekki við að sitja saman og
spjalla.
Get ég séð á fólki hvort það er smitað af alnæmi eða ekki?
Nei, það sést ekki utaná fólki hvort það er smitað eða ekki. Mjög margir sem eru
smitaðir af alnæmisveirunni líta hraustlega út og líður vel í langan tíma eftir að þeir
smitast fyrst, þ.e. eru frískir smitberar og geta smitað aðra.
Get ég verið smitaður af alnæmi en samt ekki verið veikur?
Já, margir sem eru smitaðir af alnæmisveirunni eru alls ekki veikir af hennar völdum.
Þeir munu að öllum líkindum veikjast seinna, en liðið geta mörg ár þangað til.
Ef ég er smitaður og ekki veikur, hvert er þá vandamálið?
Það eru tvö vandamál. í fyrsta lagi, ef þú hefur smitast munt þú sennilega veikjast seinna
meir, mánuðum eða mörgum árum seinna. / öðru lagi þá getur þú smitað aðra með
kynmökum og með blóði þínu.
Ef ég er smitaður, get ég þá haft kynmök?
Það er algerlega óhætt að faðma, strjúka og nudda. En allar kynlífs athafnir, sem hafa í
för með sér að sýktur líkamsvessi (sæði, slím úr leggöngum og blóð) kemst í snertingu
við slímhúð kynfæra hjá ósýktum einstaklingi, hefur smithættu í för með sér. Báðir
aðilar verða að gera sér grein fyrir smithættunni. Sérhver smitaður er ábyrgur fyrir þvi að
upplýsa sinn rekkjunaut um smitið og saman veróa báðir einstaklingar að rœða saman og fá
ráðgjöf þannig að tryggja megi öruggt kynlif.
Landlæknisembættið