Þjóðlíf - 01.02.1990, Page 52
A UNDAN SAMTIÐ SINNI
Hann var á undan sinni samtíð. Maður-
inn sem gagnrýndi allt sem hann taldi
gagnrýni vert, gyðingurinn sem gagn-
rýndi gyðinga og sagði þá stefna sjálfum
sér í glötun með einangrun sinni. Mað-
urinn sem fylgdi kommúnistum að mál-
um í þrjú ár en líkti svo Stalín við Hitler
þegar á árinu 1933! Hann þoldi ekki að
vera dæmdur til þagnar og svipti sig lífi í
útlegð. Nú er hann goðsögn og tákn
gagnrýninnar hugsunar. Hann hét Kurt
Tucholsky.
íunda janúar síðastliðinn var þess
minnst hér í Vestur-Þýskalandi að
hundrað ár voru liðin frá fæðingu einhvers
þekktasta rithöfundar, blaðamanns og
þjóðfélagsgagnrýnanda á þriðja áratug
þessarar aldar, Kurts Tucholskys. Hann
fæddist í Berlín 9. janúar 1890 og framdi
sjálfsmorð í útlegð í Svíþjóð 19. desember
1935.
Kurt Tucholsky var af borgaralegum
gyðingaættum í Berlín. Faðir hans hafði
komist áfram af sjálfsdáðum í lífinu, var
forstjóri stórfyrirtækis en dvaldist lang-
dvölum fjarri heimilinu uns hann lést árið
1905. Tucholsky samdi alltaf illa við móð-
ur sína sem hafði lítinn skilning á tilburð-
um hans í þá átt að stunda skáldskap.
Kannski engin furða að síðar í verkum
sínum fjallaði Tucholsky tíðum um varn-
arlaus börn, leiksoppa stjórnsamra og til-
fmningalítilla foreldra.
Fyrsta verkið sem Kurt Tucholsky
sendi frá sér þótt undir nafnleynd væri,
hét einfaldlega Márchen eða Ævintýrið
og er ádeila. Þetta verk sem kom út 1907 er
mjög stutt og þar gagnrýnir hið sautján ára
gamla skáld keisarann Vilhjálm annan
fyrir þröngsýni í menningarmálum og
fyrir að fúlsa við menningarstraumum
samtímans. Skömmu eftir þetta hóf
Tucholsky laganám en ferðaðist á námsár-
unum töluvert; dvaldist í Genf veturinn
1910 og fór til Prag árið 1911 þar sem hann
hitti meðal annars Franz Kafka. Kafka
lýsti Tucholsky svo að hann hefði verið
„undarleg blanda af sjálfsöryggi og örygg-
isleysi“. Um sama leyti birtist grein eftir
Tucholsky í málgagni þýskra jafnaðar-
manna Vorwárts sem nefndist Aftaka eða
„Hinrichtung“. Þar krafðist Tucholsky,
sem nú var 22 ára að aldri, tafarlauss af-
náms dauðarefsingar í landinu. Sama ár,
1912 kom út bókin Rheinsberg - Mynda-
bók handa ástföngnum, óvenjulega ein-
læg ástarsaga á þeirra tíma vísu. Sú bók
Hoidgervingur gagnrýninnar
hugsunar. Hundrað ár frá
fœðingu Kurts Tucholskys.
Svipti sig lífi í útlegð
EINAR HEIMISSON SKRIFAR
náði þegar vinsældum og seldist í þúsund-
um eintaka.
Eftir herþjónustu í fyrri heimsstyrjöld-
inni hóf Tucholsky á ný störf við skriftir
og blaðamennsku. Hann varð einn helsti
talsmaður hins nýja stjórnkerfis í Þýska-
landi, þess lýðveldis sem kennt var við
borgina Weimar. Hann skrifaði jöfnum
höndum blaðagreinar, ljóð og leikrit.
Hann varð sá blaðamaður á dögum Weim-
arlýðveldisins, sem pólitískir andstæðing-
ar óttuðust mest og réðust harkalegast á.
Eftir óðaverðbólgu og pólitísk átök ársins
1923 hafði Tucholsky hins vegar misst
trúna á afl hins ritaða máls til þjóðfélags-
legra úrbóta í Þýskalandi. Hann hélt til
Kirt Tucholsky rithöfundurínn orðhvassi.
Svipti sig lífí 1935.
Parísar, rétt eins og Heine hafði gert á
undan honum, og bjó þar í tvö ár. Árið
1926 hélt hann á ný til Þýskalands og skrif-
aði greinar í vikublaðið Weltbiihne, einn
gagnrýnasta fjölmiðil þriðja áratugarins í
Þýskalandi.
Kurt Tucholsky hafði ávallt fylgt jafn-
aðarmönnum að málum. Árið 1928 var
hins vegar svo komið að honum þótti
stefna þeirra ekki nógu róttæk. Hann
gekk því til liðs við Kommúnistaflokkinn
en sneri fljótlega baki við honum. Árið
1931 yfirgaf hann Þýskaland og hélt í út-
legð til Svíþjóðar þar sem hann bjó til
dauðadags. Hann var þá orðinn mjög frá-
hverfur kommúnisma og árið 1933 líkti
hann alræðisstefnu kommúnista við al-
ræðisstefnu nasista, líkti Stalín við Hitler.
Eftir valdatöku nasista voru rit Tuchol-
skys bönnuð og brennd á opinberri bóka-
brennu, 10. maí 1933. Fljótlega eftir það
var hann sviptur þýskum ríkisborgara-
rétti. Líkt og ýmsir aðrir þýskir útlagar,
sem dæmdir voru til þagnar í fjarlægu
landi, eins og Stefan Zweig og Klaus
Mann kaus Kurt Tucholsky að svipta sig
lífi. Hann framdi sjálfsmorð í Svíþjóð 19.
desember 1935.
ið mikla umtal, sem verk Tuchol-
skys hljóta þessa dagana hér í Vest-
ur-Þýskalandi, sýnir að hann lifir enn með
þjóð sinni. Hann var maðurinn sem var
ávallt á undan sinni samtíð, maðurinn sem
„sá“ þegar aðrir „sáu“ ekki, maðurinn
sem beitti rödd sinni af alefli fyrir viðhorf
sem hlutu ekki náð fyrir augum samtím-
ans en urðu síðar algild. Hann er nokkurs
konar holdgervingur gagnrýninnar hugs-
unar hér í landi. Gagnrýni hans snerti alla
hluta þjóðfélagsins; hann var sjálfur gyð-
ingur og var ljós sú hætta sem þeim stafaði
af andgyðinglegum áhrifum, sem stöðugt
jókst fylgi. Um leið gagnrýndi hann gyð-
inga ótæpilega fyrir að einangra sig í þjóð-
félaginu, umgangast ekki aðra og ala
þannig á tortryggni og sögusögnum um
sjálfa sig. Þekktasta verk Kurts Tuchol-
skys er óefað „Deutschland, Deutschl-
and iiber alles“, sem gefið var út árið
1929. Það var langt á undan sinni tíð, þar
er beitt samspili ljósmynda og texta um
þjóðfélag samtímans, sem ekki átti sinn
líka.
Kurt Tucholsky var rómantískt ljóð-
skáld sem orti á undarlega hlægilegan og
jafnframt kaldhæðnislegan hátt um sam-
skipti kynjanna. Sjálfur var hann mjög
óráðinn í þeim málum og skildi við báðar
þær konur sem hann giftist. Og oftar en
ekki líkti hann saman þeim ástum og hug-
sjónum sem eiga sér oftar en ekki álíka
sterkar andstæður í veruleikanum. í ljóð-
inu „Hugsjónir og veruleiki", sem Kurt
Tucholsky orti árið 1929 segir hann:
í kyrri nótt og mjóu rúmi
hugsarðu um það, sem líf þitt skortir.
Taugarnar þenjast.
Ef við hefðum nú það,
sem okkur vantar,
af því það er ekki þar, kvelur lágt...
Við hugsuðum undir keisarans veldi
um lýðveldi... og núna er þetta það!
Mann langar alltaf í háa, granna,
og síðan fær maður litla, feita... ()
52 ÞJÓÐLÍF