Þjóðlíf - 01.02.1990, Page 56

Þjóðlíf - 01.02.1990, Page 56
MENNING UPPGJOR VIÐ FORTÍÐINA Sársaukafullt uppgjör austur-þýskra rithöfunda við fortíð sína EINAR HEIMISSON SKRIFAR í Austur-Þýskalandi voru bókmenntir og listir hluti af ríkiskerfinu og áttu að þjóna því. Rithöfundar nutu forréttinda en þeim forréttindum fylgdu einnig kvaðir um það sem þeir máttu setja á blað. Þessu tímabili er lokið. Uppgjör við for- tíðina stendur fyrir dyrum hjá austur- þýskum rithöfundum. Um leið er þeim mætt af tortryggni af alþýðu manna eins og öðrum fyrrverandi forréttindastéttum landsins. yrsti menningarráðhera Alþýðulýð- veldisins Þýskalands, Otto Grot- ewohl, starfaði í anda Leníns og Stalíns, stefna nýja ríkisins á listasviðinu var eftir sovéskri fyrirmynd. Árið 1951 fyrirskipaði hann að „bókmenntir og listir ættu að vera undir forsjá stjórnmálanna“ og „hugsjónir listanna yrðu að fylgja pólitískri baráttu samtímans.“ 9. nóvember 1989 féllu þessi orð úr gildi í Austur-Þýskalandi. Það miðlunarhlutverk, sem rithöfundar gegndu milli þjóðar og ríkisvalds, er úr sögunni. Dæmi um það hvernig hlutverk rithöf- unda hefur breyst í Austur-Þýskalandi er Hermann Kant. Kant tók við af Önnu Seghers sem forseti Rithöfundasambands Austur-Þýskalands, sem stóð mjög nærri Kommúnistaflokknum. í fyrstu hugðist hann sitja áfram í embætti en ákvað síðan að segja af sér. Annar þekktur austur- þýskur rithöfundur, Stefan Heym, lýsti því yfir að tungan í munni Kants hefði „sveigst úr einu munnviki í annað á einni nóttu“. Hermann Kant var forseti Rithöfunda- sambands Austur-Þýskalands í ellefu ár. Sambandið telur 2000 félaga. Kant hefur í áratug verið oddviti þeirra rithöfunda sem í orði hafa reynt að finna meðalveg milli aðlögunar að stjórnkerfinu og sjálfstæðra athafna. Á borði hafa þessir menn hins vegar ávallt gengið í lið með ríkjandi stjórnkerfi þegar á hólminn hefur komið. Hermann Kant var þannig oddviti þeirrar bókmenntastefnu sem gekk í lið með kommúnismanum. Sú staðreynd var tengd því að frá upphafi var við lýði í Austur-Þýskalandi Pajok-kerfið svokall- aða og samkvæmt því nutu rithöfundar og listamenn, „sem samræmdust hugsjónum kommúnismans“, ýmissa forréttinda. Rithöfundar höfðu þannig ávallt óskorað frelsi, óku um á vestrænum bifreiðum en ekki austur-þýskum, bjuggu í einbýlis- húsum en ekki fjölbýlishúsum. Auðvitað voru ekki allir rithöfundar Austur-Þýskalands tengdir ríkjandi stjórnkerfi á þennan hátt. Þegar eftir stofnun Alþýðulýðveldisins 1949 yfirgáfu það ýmsir þeirra manna sem áður höfðu kallað það „betra Þýskaland". En atburð- irnir 17. júní 1953 þýddu fyrsta raunveru- lega uppgjörið. Þá fordæmdu sumir rit- höfundar framgöngu ríkisvaldsins þegar hundruð verkamanna í verkfalli voru felldir á götum Austur-Berlínar. Aðrir fordæmdu ekki. Stefan Heym fullyrti til dæmis í skáldsögu sinni „5 dagar í júní“ að uppþotin hefðu verið „skipulögð af er- lendum leyniþjónustum“. Þar tók Heym undir skoðun, sem búin hafði verið til í aðalstöðvum Kommúnistaflokksins við Karl-Marx-torg, og gerði að sinni. En atburðir ársins 1956 í Ungverjalandi þýddu önnur skuldaskil rithöfunda við Kommúnistaflokkinn. Margir þeirra héldu til Vesturlanda eins og Uwe John- son, Gerhard Zwerenz, Martin Gregor- Delin, Christa Reinig og Heiner Kipp- hardt. Samt voru ófáir virtir rithöfundar enn eftir í Austur-Þýskalandi og voru þar áfram eftir að Berlínarmúrinn var reistur árið 1961. Sumir þeirra eins og Christa Wolf reyndu að fara milliveg milli les- endahóps síns og flokksins, reyndu af kostgæfni að „gera gott úr málinu“ án þess að ógna eigin stöðu. Eða fylgdu Stefan Heym, sem sneri við blaðinu og hóf upp beitta gagnrýnisrödd gegn ríkjandi kerfi. Smám saman var æ fleiri rithöfundum vís- að úr landi, til dæmis Wolf Biermann. Aðrir voru áfram í landinu og störfuðu í óþökk stjórnvalda og þar var Stefan Heym fremstur í flokki. Á mótmælafundi í Ber- lín 4. nóvember síðastliðinn var honum fagnað sem „leiðtoga hreyfingar okkar“ af Christa Wolf rithöfundur. Skilaði flokksskír- teininu sínu. Anna Seghers var forseti Rithöfundasam- bandsins um langt árabil, en lést fyrir nokkr- um árum. Hermann Kant tók við af henni, en varð að segja af sér á dögunum. milljón manns á Alexanderstorgi. Christa Wolf skilaði um sama leyti flokksskírteini sínu. Ljóst er að skilin eru óljós milli þeirra sem teljast hafa staðið við skoðanir sínar og hinna sem fóru eftir því sem þeir áttu að gera. Ekki er enn Ijóst hvernig uppgjör austur-þýskra rithöfunda við fortíð sína fer fram. í vor heldur austur-þýska rithöf- undasambandið fyrsta þing sitt eftir að breyttir stjórnarhættir voru teknir upp í landinu. Sagt hefur verið um Austur- Þýskaland að þar hafi mikið verið talað um „upplýsingu gegnum bókmenntir" en lít- ið verið gert af henni. í landi þar sem skýr skil voru milli forréttindahópa og annarra voru rithöfundar tvímælalaust flestir í fyrri hópnum. í hinum var alþýða lands- ins. Og því er ekki undarlegt að um þessar mundir skuli bera á andúð, stundum jafn- vel hatri á rithöfundum eins og öðrum gömlum forréttindastéttum landsins. Uppgjörið stendur fyrir dyrum. Og at- hyglisvert verður að fylgjast með því. Hvað gera þeir höfundar sem áður reyndu að samræmast stjórnkerfinu? Hvað segja þeir nú? Hvað skrifa þeir nú? 0 56 ÞJÓÐLÍF

x

Þjóðlíf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.