Þjóðlíf - 01.02.1990, Blaðsíða 62

Þjóðlíf - 01.02.1990, Blaðsíða 62
VIÐSKIPTI DAUÐA- DANSINN í CANSO Stœrsta fiskvinnslufyrirtœki í Kanada í stórfelldum samdrœtti. Aflabrestur setur strik í reikninginn. Uppgangspláss breytist í draugabæ. G. PÉTUR MATTHÍASSON SKRIFAR FRÁ KANADA Það búa 1255 manns í smábænum Canso austast á meginlandi Nova Scotia í Kan- ada. Þetta er sjávarpláss, það elsta í landinu. Þar hafa menn veitt fisk í 400 ár. Helsti atvinnurekandi staðarins hefur verið stærsta fiskvinnslufyrirtæki Kan- ada: National Sea Production. Daginn áður en Stekkjastaur lagði af stað til byggða tilkynnti fyrirtækið að það myndi leggja niður starfsemi í Canso. Ollum 742 starfsmönnum í yrði sagt upp. elmingur þessa fólks býr í Canso og hinir í nágrannasveitarfélögunum. Aðrir vinnufærir starfa flestir í tengslum við sjávarútveg, beint eða óbeint. Utlit er fyrir að örlög Canso verði sömu og örlög gullæðisbæjanna í Yukon vestast í Kanada fyrr á öldinni. Allar líkur eru á að bærinn leggist í eyði. Eina sem eftir stæði væri nýreist myndarlegt safn um fiskveiðar. Samfara tilkynningunni um lokun í Canso tilkynnti NatSea að fyrirtækið myndi loka frystihúsi sínu í St. John’s á Nýfundnalandi þar sem 492 unnu. Einnig hættir fyrirtækið allri blautfiskverkun í North Sydney; saltfiskurinn verður einn eftir. Þar missa 280 manns vinnuna. Sá bær byggir einnig afkomu sína mikið til á fiskveiðum. Þetta kemur í kjölfar lokunar á fiskverkun NatSea í Lockeport, á Nova Scotia. Þá hafa hátt á annað þúsund manns misst atvinnu sína á síðustu mán- uðum auk allra þeirra sem unnu hjá sjálf- stæðu fiskframleiðendunum sem hafa lagt upp laupana. Það er svo útlit fyrir að margir þeirra sem enn starfa gefist upp. Líkt og íslendingar búa Kanadamenn við kvótakerfi. Kvótinn var harkalega skorinn niður árið 1989 og þó ríkisstjórnin í Ottawa hafi enn ekki gefið upp kvótatöl- ur ársins 1990 telja menn fullvíst að enn verði skorið. Menn velta því hins vegar fyrir sér hvernig svona lagað getur gerst. Á árunum 1983 til 1987 var landað að meðaltali 270.000 tonnum af botnfiski ár- lega á Nova Scotia. Kvótinn var 245.000 tonn 1983 og þá var talið að stofninn væri að vaxa. Mikil uppbygging átti sér stað í fiskiðnaðinum, ríkulega studd af stjórn- völdum. Fiskframleiðendum fjölgaði til dæmis úr 235 í 372 milli áranna 1986 og 1987. Flestir voru þó sjálfstæðir og smáir. NatSea byggði upp sína starfsemi á þess- um árum. 1989 var hinsvegar kvótinn 140.000 tonn og álitið er að hann verði skorinn niður í 95.000 tonn árið 1990, þó stjórnvöld hafi ekki enn staðfest það. Á fyrrgreindum uppbyggingartíma jókst verðmæti alls sjávarafla á Nova Scotia næstum um helming; úr 276 milljónum dollara 1983 í 511 milljónir 1987 (14.5 millj- arðar og 27 milljarðar íslenskra króna). I þessum tölum er ekki talinn stærsti þorsk- stofninn, norður-þorskurinn svokallaði, á hafsvæðinu í kringum Nýfundnaland. Sá kvóti hefur verið skorinn niður úr 235.000 tonnum árið 1988 í 190.000 tonn árið 1989 og verður skorinn enn. m miðjan áttunda áratuginn voru vísindamenn og stjórnmálamenn sannfærðir um að fiskistofnarnir væru í mikilli uppsveiflu og þeir myndu halda áfram að vaxa langt fram á níunda áratug- inn. Það hefur ekki gerst. Hátt fiskverð á þessum tíma og vilji stjórnvalda til að lána til uppbyggingar í greininni stuðluðu að gífurlegri fjölgun báta og frystihúsa. Nú eru menn að vakna upp við vondan draum. Það sér ekki fram úr ógöngunum næstu ár. Það virðist útséð um að fiskiðn- aðurinn verði jafn umsvifamikill og hann hefur verið. Þorpið Canso virðist dauða- dæmt. Auk minnkunar fiskistofna hefur fisk- verð lækkað mikið. Árin 1986 og 1987 fengust að meðaltali 55 sent (29 kr.) fyrir pundið miðað við 35 sent (18.50 kr.) nú. Auk þess fer fiskurinn hraðminnkandi. I St. Lawrence flóa, þar sem mengun er mikil, vóg sjö ára þorskur að meðaltali 2.4 kg 1977 en nú vegur jafn gamall fiskur að meðaltali ekki nema eitt kíló. Sterk staða Kanadadals gagnvart þeim bandaríska eykur síðan enn á vandann. Enginn kann skýringar á minnkun fiskistofnanna. Furðulítið er vitað um hvað hefur gerst. Hins vegar er hægt að benda á marga sökudólga án þess að fólk geti sannað nokkuð vísindalega. Flestir telja ofveiði Evrópubandalags- ríkja utan 200 mílna fiskveiðilögsögu Kanada eina aðalástæðuna fyrir minnkun stofnanna. Landgrunnið nær út fyrir 200 mílurnar og þar veiða einkum Spánverjar og Portúgalir í stórum stfl. Menn benda á að kvótinn sem Samband Fiskveiðiþjóða í 62 ÞJÓÐLÍF
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Þjóðlíf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.