Þjóðlíf - 01.02.1990, Page 69
Tyrklcmdi
árum síðar. Suður-Afríku-
menn eru nú helstu framleið-
endur angóruullar og fram-
leiðsla þeirra hefur orðið á
kostnað Tyrkja. Ástralir og
Nýsjálendingar hafa nýlega
flutt inn frjóvguð angórugeit-
arfóstur og æda að hefja fram-
leiðslu angóruullar.
Angóruull er iðulega blönd-
uð við aðra ull, silki eða bóm-
ull og notuð í léttan klæðnað,
áklæði og ýmis konar tísku-
fatnað, t.d. peysur.
Ófarir nýrra búgreina á ís-
landi eru svo raunalegar og
hörmulegar að ekki er einu
sinni þorandi að hafa orð á því
að angórugeitur gætu orðið
hagkvæm aukabúgrein ís-
lenskra bænda. Þó mætti
nefna að breskir bændur hafa
nú hafið ræktun angóru- og
kasmírgeita og reyna jafnframt
að kynblanda þær eigin geita-
kynjum. Þar vænta menn mik-
ils af þessari nýju búgrein. Hér
mætti vafalaust reyna þetta en
vonandi hafa menn lært sína
lexíu og fara hægar í sakirnar
en gert var í loðdýra- og laxa-
ræktinni, svo dæmi sé tekið.
Skyldu geitur eiga eftir að fylla
auð loðdýrabú?
inu, t.d. minnkun á súrefni
eða aukning á styrk ýmissa
efnasambanda, lokast þær. Ef
skeljarnar loka sér og haldast
þannig í langan tíma gefur það
til kynna að vatnið sé óeðlilegt
á einhvern hátt.
Lítil tölva fylgist með hreyf-
ingum kræklinganna og ber
þær saman við útreiknuð við-
mið fyrir skeljahreyfingar.
Niðurstöður eru sendar til
stjórnstöðvar á landi. Verið er
að prófa tæki af þessu tagi við
frárennsli úr efnaverksmiðju í
Hollandi. Þar eru hreyfingarn-
ar bornar saman við magn frá-
rennslis frá verksmiðjunni.
Eftir 10 vikna notkun var
mælitækið enn í lagi.
Önnur gerð af tækinu er
notuð til að áætla magn klórs
sem skolast út úr kælikerfi
orkuvers. Þriðja gerðin mælir
vamsgæði í Rínarfljóti ásamt
öðrum tækjum, þ.á.m. öðru
líffræðilegu tæki þar sem
vatnaflóin Daphnia er notuð
sem nemi.
Hollenskir mengunarsér-
fræðingar hafa búið til nýjan
mengunarmæli sem byggist á
því að láta kræklinga fylgjast
með gæðum vatns sem tekið
er inn í vatnsveitur og síðan
notað til drykkjar. Tæki
þeirra samanstendur af átta
kræklingum sem eru tengdir
við rafmagnsmæla sem
greina hve vel þeir loka skelj-
um sínum. Kræklingarnir eru
límdir við stálplötur. Þegar
sex af átta skeljum haldast
lokaðar í tiltekinn tíma, t.d.
fimm mínútur, gefur tækið frá
sér viðvörunarmerki.
Þetta byggist á því að undir
venjulegum kringum-
stæðum er skel kræklinga opin
til þess að vatn geti streymt í
gegn. Dýrið getur þannig síað
fæðuagnir úr vatninu. Um leið
og breyting verður í umhverf-
Vitaskuldir
Fyrirtæki eitt hefur fundið
upp og sett á markað reið-
hjóladekk sem er slöngu-
laust en fyllt plastkvoðu í
staðinn. Það getur því ekki
sprungið og fæst ennfrem-
ur í mörgum litum.
★★
Frá 1. júní til 1. janúar
styttist vegalengdin milli
jarðar og sólar um tæpa
fimm milljónir metra, nán-
ar tiltekið 4.827.000 metra.
★★
Við stofuhita hreyfist hver
súrefnissameind andrúms-
loftsins með 450 m meðal-
hraða á sekúndu.
★★
Fyrsti kjarnaofn heimsins
var settur upp í kjallara
undir fótboltavelli háskól-
ans í Chicago. Hann var
tekinn í notkun 2. des.
1942.
★★
Nákvæm lengd sólarhrings
er 23 klukkustundir, 56
mínútur og 4.103 sekúnd-
ur. í hverju ári eru
365.2564 sólarhringar.
★★
Líftónagjafi (e. biomuse)
er nýtt tæki sem nemur raf-
merki líkamans og breytir
þeim í tónlist. Fíngerð raf-
skaut á húð greina rafboð
frá vöðvum og taugum og
senda þau til svuntuþeysis
sem vinnur úr þeim og ger-
ir að ómþýðum tónum.
★★
Á síðustu 600 milljónum
ára hefur náttúran (eða
Guð) skapað um fjóra millj-
arða tegunda lífvera. Af
þeim lifa nú örfáar milljón-
ir, þar af eru langflestar
skordýr.
Sam-
lokur
mæla
mengun
í vafni
ÞJÓÐLÍF 69